Fundargerð hreppsnefndar 07. júlí 2011

08.07 2011 - Föstudagur

Hreppsnefndarfundur fimmtudaginn 7. júlí 
2011 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.


Á fundinn voru mætt Þórunn Egilsdóttir, Ásrún Jörgernsdóttir, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður Konráðsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir og Bárður Jónasson.

Jafnframt var mættur sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:

1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 23. júní  sl.

Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 23. júní sl.

Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

2. mál  Fundargerðir Menningarmálanefndar frá 3. og 30. júní sl.

Lagðar fram fundargerðir menningarmálanefndar frá 3. og 30. júní sl.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

3. mál. Bráðabirgðauppgjör Vopnafjarðarhrepps fyrir fyrstu 5 mánuði ársins 2011.-

Lagður fram árshlutareikningur Vopnafjarðarhrepps fyrir 5 fyrstu mánuði ársins 2011.   Í reikningnum kemur fram myndrænt hvernig staða hinna mismunandi málaflokka er samanborið við hlutfallaða fjárhagsáætlun ársins.   Þá er lagður fram rekstrarreikningur samstæðinnar, efnahagsreikningur, sjóðstreymisyfirlit, sundurliðaður rekstrarreikningur niður á allar stofnanir sveitarfélagsins og málaflokkayfirlit.   Öllum þessu skjölum er stillt upp miðað við bókhald fyrir 5 fyrstu mánuði ársins samanborið við hlutfallaða fjárhagsáætlun ársins 2011.

 

Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum.   Í máli hans kom fram að vel hefur tekist til við að halda almennum rekstrargjöldum, launum og rekstrargjöldum innan marka fjárhagsáætlunar.   Þetta eru þau gjöld sem stjórnendur sveitarfélagsins geta stýrt að nokkru leyti.  Í rekstrarreikningi kemur fram að þessi gjöld eru 92, 5 % af því sem hlutfölluð fjárhagsáætlun ársins gerir ráð fyrir að þau megi vera. 

Rekstrartekjur eru 42,2 m. kr. lægri en hlutfölluð fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir.   Skýring þessa er að útsvör eru lítillega undir áætlun, sama er að segja um framlög úr Jöfnunarsjóði og mestur munurinn er á öðrum rekstrartekjum, sem skýrist af því að ýmis framlög og tekjur, sem koma frá ríki og annars staðar frá hafa ekki verið hlutfallaðar niður á þetta tímabil heldur bókast þegar þær koma inn.

Þrátt fyrir að tekjur séu ekki að skila sér að fullu á þessu tímabili þá er gert ráð fyrir að tekjuáætlun rétti af þegar lengra líður fram á árið.   Rekstrarniðurstaða þessa tímabils er af þessum sökum neikvæð um 12,9 m.kr. meðan hlutfölluð fjárhagsáætlun, sem gerir ráð fyrir jöfnu tekjuflæði alla mánuði gerir ráð fyrir 26,4 m. kr. hagnaði.   Hér er því um 39.3 m. kr. mismun að ræða og hafa þá verið innreiknuð fjármagnsgjöld sem eru 13,8 m.kr. hærri en ráð hafði verið fyrir gert sökum þess að verðbólguhraði hefur verið mun meiri en reiknað var með um síðustu áramót þegar fjárhagsáætlun ársins 2011var unnin.

Í heild verður að segja að vel hafi tekist að halda sjó í rekstrarútgjöldum öðrum en fjármagnsgjöldum.

Handbært fé í ársbyrjun var rétt um 19,5 m. kr.  Gengið hefur verið á það á þessu tímabili til að greiða kostnað við rekstur sveitarfélagsins fram að þessu þ.a. handbært fé er nú 9,5 m. kr.    

Í árslok 2010 fékk sveitarfélagið 30 m. kr. lánsheimild hjá Lánasjóði Sveitarfélaga.  Ekki hefur enn þurft að hefja þetta lán.

Sem stendur er því staða rekstarútgjalda í ágætum málum, tekjum sem á vantar þarf að ná í hús og vonast er til þess að verðbólgan fari ekki á skrið.

Hreppsnefnd lýsir ánægju með það að árshlutauppgjör sveitarfélagsins, fyrir 5 fyrstu mánuði ársins, liggi fyrir á fundinum og jafnframt fyrir greinargóða yfirferð sveitarstjóra. 

 

4. mál.  Bréf Umhverfisráðuneytisins frá 22. júní sl. og svar Vopnafjarðarhrepps.

Lagt fram bréf Umhverfisráðuneytisins frá 22. júní sl., varðandi undanþágubeiðni Vopnafjarðarhrepps um gassöfnun á haugasvæði sveitarfélagsins.   Í bréfinu er óskað eftir frekari skýringum og rökstuðningi fyrir tilteknum atriðum.

Jafnframt er lagt fram svar Vopnafjarðarhrepps í bréfi dags 4. júlí sl., þar sem settur er fram rökstuðningur fyrir þeim atriðum sem Umhverfisráðuneytið óskaði eftir.

Sveitarstjóra falið að vinna áfram að málinu.

 

5. mál   Nýr samningur við Þekkingarnet Austurlands dags. 22. júní sl.

Lagður fram nýr samningur milli Vopnafjarðarhepps og Þekkingarnets Austurlands um starfsstöð Þekkingarnetsins á Vopnafirði.    Fyrri samningur rann út um síðustu áramót, en gildistími hins nýja samnings er til ársloka 2013 að því gefnu að fjármagn fáist á fjárlögum til rektursins.

Hreppsnefnd lýsir ánægju með fyrirliggjandi samning og samþykkir hann fyrir sitt leyti.

 

 

 

 

6. mál  Viðhaldsverkefni á vegum sveitarfélagsins-Gerð grein fyrir helstu verkefnum.-

Lýst var óánægu með það að ekki hefði legið fyrir í fundarboði hvaða framkvæmdir hér væri um að ræða.  Sveitarstjóri svaraði því og skýrði frá því að hér væri first og fremst im að ræða utanhúss viðhald á húseignum sveitarfélagsins, sem ætlað væri að skýra og fara yfir á fundinum.

Gerð var grein fyrir helstu verkefnum í utanhússviðhaldi húseigna í eigu Vopnafjarhrepps.   Nokkrir fjármunir voru áætlaðir til þessara verkefna á fjárhagsáætlun.

Jafnframt hafa nokkrar eignir í eigu sveitarfélagsins verið seldar og unnt að nýta hluta söluandvirðis þessara eigna í viðhaldsframkvæmdir. 

Á grundvelli þess að mikilvægt er að halda eignum við er sveitarstjóra og oddvita falið að vinna að framgangi þessara mála.  Í fyrstu lotu er talað um að mála íbúðarhús í Þverholti 3, 7 og 9 og kítta upp glugga í Kaupvangi og mála, ásamt dyrabúnaði.   Frekri verkefni af þessum toga verði síðan skoðuð í framhaldi.   Komi til stærri ákvarðanna í þessum málum á sumarleyfistíma hreppsnefndar verður slík ákvörðun lögð fyrir alsherjarnefnd sveitarfélagsins.

 

7. mál.   Björgunarbátasjóður bréf dags. 22. júní sl., varðandi styrkbeiðni.

Lagt fram bréf Björgunarbátasjóðs frá 22. júní sl., þar sem óskað er eftir styrk til uppgjörs á raforkuskuld sjóðsins við Hafnarsjóð.

Gerð var grein fyrir skuldastöðu sjóðsins sem er um 1 m.kr. um síðustu áramót.

Lögð fram tillaga um að fella niður helming uppsafnaðrar skuldar vegan áranna 2008 til 2011og skoða síðan fastan styrk fyrir árið 2012 við gerð næstu fjárhagsáætlunar.

Hreppsnefnd samþykkir málsmeðferð þessa og felur sveitarstjóra að ræða við bréfritara varðandi frágang málsins.

8. Mál. Ýmis mál og fundargerðir

a) Menningarráð Austurlands, samningur við ríkið annars vegar og milli sveitarfélaga hins vegar.
Menningarsamningar lagðir fram til kynningar.

 

9. Mál   Sumarleyfi hreppsnefndar.
Oddviti gerði grein fyrir að þetta væri síðasti fundur fyrir sumarleyfi.   Næsti fundur verður ekki fyrr en í lok ágúst.

Því næst óskaði Oddviti sveitarstjórn gleðilegs sumars og ánægjulegs sumarleyfis.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.30

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir