Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 25. ágúst 2011 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.
Á fundinn voru mætt Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður Konráðsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir og Bárður Jónasson.
Jafnframt var mættur sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 7. júlí sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 7. júlí sl.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.
2. mál Fundargerð Skipulags- og bygginganefndar frá 22. ágúst sl.
Lögð fram fundargerð skipulags -og bygginganefndar frá 22. ágúst sl.
Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 2. tl. fundargerðarinnar og gerði grein fyrir athugasemdum við skipulagið og svari skipulagsnefndar í þeim efnum.
Jafnframt var spurst fyrir um tl. 6. “Sláturfélag Vopnafjarðar, varðandi sviðaaðstöðu”. Fundarmenn samþykktu að beina því til forsvarsmanna sveitarfélagsins að gengið yrði eftir því að tilskilinna leyfa yrði aflað að hálfu umsækjanda eins og tilgreint er í bókun Skipulagsnefndar.
Fundargerðin síðan samþykkt í heild sinni samhljóða með 7 atkvæðum.
3. mál. Fulltrúar vinnuhóps um Austfirskar stoðstofnanir (AST), kynna tillögur hópsins.
Á fundinn mættu fulltrúar AST og kynntu skýrslu sína um endurskoðun á stoðkerfi atvinnulífs, menntunar og menningar á Austurlandi. Farið var yfir helstu atriði í lokaskýrslu hópsins. Kynning þessi var mjög þörf og varpaði ljósi á ýmsar áleitnar spurningar sem vakna við skoðun á þessu máli. Hugmyndin er að þessar helstu stoðstofnanir á Austurlandi verði sameinaðar í eina stofnun og við það miðað að sameiningin eigi sér stað miðað við 1. janúar 2012. Í umræðum kom þó fram að allmikil vinna er eftir og meðal annars þarf að ræða við ríkisvaldið um aðkomu þess að hinu nýja fyrirhugaða samlagi.
Talsverðar umræður urðu um þessi mál og svöruðu fulltrúar AST framkomnum spurningum fundarmanna.
Um þessi mál verður nánar fjallað á aðalfundi SSA sem haldinn verður um mánaðarmótin sept./okt. nk. Á þeim fundi er við það miðað að tekin verði ákvörðun um það hvort skrefið verður stigið eða ekki.
4. mál. Málefni Heilsugæslu Vopnafjarðar o.fl.-Gerð grein fyrir stöðu mála.
Gerð var grein fyrir stöðu læknamála á Vopnafirði og samskiptum forsvarsanna Vopnafjrðarhrepps við fulltrúa HSA og Velferðarráðuneytisins í þeim efnum. Fram kom að þrátt fyrir ályktun hreppsnefndar Vopnafjarðarhepps frá 23. júní sl., þar sem því er mótmælt að læknislausir dagar væru á Vopnafirði hafa slíkir dagar orðið fleiri í sumar. Ástandi þessu hefur verið mótmælt bæði í ráðuneyti Velferðarmála og einnig hjá forsvarsmönnum HSA.
Lögð fram svofelld bókun:
“ Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps ítrekar fyrri bókun sína frá 23. júní sl., þar sem þess er krafist að læknalausir dagar verði ekki fleiri á Vopnafirði og að sjálfsögð grunnþjónusta á sviði lækninga verði ávallt til staðar þar”
Fyrirliggjandi bókun samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
5. mál Málefni hjúkrunardeildar að Sundabúð. Gerð grein fyrir fundi heilbrigðisyfirvalda og heimamanna um málið 11. ágúst sl.
Lagt fram bréf Velferðarráðuneytisins dags. 10. ágúst sl., þar sem svarað er bréfum Vopnafjarðarhepps frá 10. janúar, og 18. febrúar sl., þar sem tilkynnt er hverjir eru fulltrúar Velferðarráðuneytisins í viðræðunefnd um málefni Sundabúðar legudeildar.
Oddviti gerði síðan grein fyrir fundi sem haldinn var 11. ágúst sl. um málefni Sundabúðar. Á þann fund voru mættir fulltrúar Vopnafjarðarhepps, HSA, tilnefndir fulltrúar Velferðarráðuneytisins, hjúkrunarforstjóri Sundabúðar og fulltrúi félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs.
Fulltrúum Vopnafjarðarhepps falið að vinna áfram að málinu.
6. mál. Kosning 3ja fulltrúa á aðalfund SSA og jafnmargra til vara.
Aðalfundur SSA verður haldinn dagana 30. sept. og 1. okt. nk. Kjósa þarf þrjá aðalfulltrúa og jafnmarga til vara.
Tillaga kom fram um að aðalmenn verði: Björn Hreinsson, Bárður Jónasson og Sigríður Konráðsdóttir og til vara verði Guðrún Anna Guðnadóttir, Þórunn Egilsdóttir og Eyjólfur Sigurðsson.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
7. mál. Samkomulag um gítarkennslu og hljómsveitarvinnubúðir o.fl. Eyjólfur Sigurðsson vék af fundi undir afgreiðslu þessa liðar.
Lagt fram samkomulag um gítarkennslu á haust- og vorönn Tónlistarskólans, við Baldvin Eyjólfsson.
Hreppsnefnd lýsir ánægju sinni með fyrirliggjandi samkomulag og samþykkir það fyrir sitt leyti.
8. Mál. Ýmis mál og fundargerðir
a) Fundargerð framkvæmdaráðs SSA frá 25. júlí sl.
Lögð fram til kynningar
b) Fundargerð starfshóps um Austfirska einingu frá 15. ágúst sl.
Gerð var grein fyrir 3. tl. fundargerðarinnar og í því sambandi lagðar fram tillögur Vopnafjarðarhepps inn í Sóknaráætlun 20/20.
c) Yfirlýsing frá samninganefndum félags leikskólakennara og sambands ísl. Sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar
d) Fundargerð Brunavarna á Austurlandi frá 26. júní sl.
Lögð fram til kynningar.
9. mál. Landskipti, Skóga 2, Vopnafirði.
Áður en fundur hófst hafði oddviti óskað eftir því að taka þetta erindi á dagskrá, en það hafði ekki verið með útsendum gögnum. Var það samþykkt samhljóða.
Lagt fram erindi frá Víglundi Pálssyni dags. 23. ágúst sl., þar sem óskað er samþykkis sveitarstjórnar vegna sölu á 5 hektara spildu í jörðinni Skógar 2 í Vopnafirði. Uppdráttur unnin af Verkfræðistofu austurlands fylgir erindinu, sem sýnir legu umræddrar spildu.
Hreppsnefnd samþykkir fyrirliggjandi erindi samhljóða með sjö atkvæðum og felur sveitarstjóra að undirrita nauðsynleg gögn í því sambandi.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.45