Fundargerð landbúnaðarnefndar
Fundur haldinn í landbúnaðarnefnd 18. ágúst 2011.
Mættir voru Friðbjörn H. Guðmundsson, Jóhann Marvinsson, Ingvar Björgvin Eðvaldsson, Helgi Sigurðsson, Karl Steingrímsson og Sigurjón Hauksson.
1. Mál. Tekið fyrir bréf frá Jörgen Sverrissyni dags. 18. Maí 2011.
Landbúnaðarnefnd samþykkti að vísa þessu bréfi til sveitarstjórnar og að sveitarstjón semji alfarið um þetta við hann.
2. Mál. Girðing með veginum austan Hofsár frá Hofsárbrú.
Rætt var um fyrirhugaða girðingu sunnan Hofsár frá Hofsárbrú og inn fyrir Guðmundarstaði. Ákveðið var að ræða við landeigendur og kanna svo kostnað á svona framkvæmd. Senda síðan landeigendum kynningarbréf á þessu verki. Einnig var rætt um það hvort ekki væri hægt að klára að girða hinu megin við Hofsá inn Hofsárdalinn, þannig að þetta fylgist að. Með þessu þyrfti færri ristarhlið.
3. Mál. Rætt um fjallskil.
Ákveðið að raða niður göngum þann 25. ágúst nk.
4. Mál. Önnur mál.
Ákveðið var að sækja um styrk úr Fjallvegasjóði til þess að gera slóð frá réttinni við Fagurhól og upp að Dragakofa. Einnig kom fram að laga þyrfti slóð að gangnakofanum Gelding í Hraunfellsparti
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið
Fundargerð ritaði Karl Steingrímsson