Fundargerð hreppsnefndar 08. september 2011

12.09 2011 - Mánudagur

Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 8. sept.  2011 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.

 

Mætt voru: Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður Konráðsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir og Bárður Jónasson.

 

Jafnframt var mættur, sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.

Dagskrá:

1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 25. ágúst  sl.

Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 25. ágúst sl.

Fram komu ábendingar um skekkjur í fundargerðinni, sem voru lagfærðar.

Fundargerðin síðan samþykkt svo breytt samhljóða með 7 atkvæðum.

Fundarmenn voru sammála um að viðhöfð yrði sú regla að fundargerðin yrði send út til allra nefndarmanna til samþykktar áður en hún væri sett á heimasíðu sveitarfélagsins.

 

2. mál  Fundargerð húsnæðisnefndar frá 22. ágúst sl.

Lögð fram til kynningar fundargerð húsnæðisnefndar frá 22. ágúst sl.

 

3. mál. Fundur Landbúnaðarnefndar frá 18.ágúst sl., erindi varðandi Arnarvatn.

Lögð fram fundargerð landbúnaðarnefndar frá 18. ágúst sl.   Jafnframt lagt fram bréf Jörgens Sverrissonar frá sama tíma, vegna málefna ganagnakofans að Arnarvatni.   Ennfremur lagt fram bréf landbúnaðarnefndar frá 22. ágúst sl., þar sem landbúnaðarnefnd tekur jákvætt í að gerður verði samningur við Jörgen um gangnamannakofann að Arnarvatni, þar sem hann sjái um viðhald og endurbætur  húsa og fái heimild á móti til þess að leigja út gistinætur í samráði við landbúnaðarnefnd og Fjallskilasjóð.

Hreppsnefnd tekur undir sjónarmið Landbúnaðarnefndar og telur allra athygli vert að koma á samvinnu aðila eins og þarna er lýst.  Sérstaklega er þó bent á mikilvægi þess að ávallt verði unnt að nýta gangnamannakofann sem neyðarskýli.

 

Sveitarstjóra ásamt formanni landbúnaðarnefndar falið að ræða við bréfritara með það fyrir augum að gerður verði samningur milli aðila um viðhald og afnot gangnamannakofa að Arnarvatni.

Málsmeðferð þessi var samþykkt samhljóða af hreppsnefnd.

 

4. mál.  Málefni Vatnsveitu - Staða mála.- Aðgerðir

Gerð var grein fyrir tilkynningum, sem sendar höfðu verið út vegna vatnsmála í þéttbýli Vopnafjarðar og hvernig brugðist hefði verið við til þess að koma vatnsmálum í lag aftur.

Sveitarstjóri gerði síðan grein fyrir mikilvægi þess að gripið yrði til frekari aðgerða í vatnsveitunni til þess að minnka möguleika á því að óhöpp af þessu tagi gætu hent sig í framtíðinni.

 

Í framhaldi lagði hann til að sér ásamt forstöðumanni áhaldahúss yrði falið að afla tilboða í geislatæki fyrir vatnsveituna og láta forhanna hús utan um slíkt tæki og nauðsynlegan búnað.  Á grundvelli þessa verði unnin kostnaðaráætlun vegna nauðsynlegra framkvæmda í þessu sambandi.

 

Hreppsnefnd samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu sveitarstjóra.

 

5. mál   Orkusjóður, Styrkur, vegna skýrslu um varmakosti og nýtingu þeirra.

Lagt fram bréf Vopnafjarðarhrepps til Orkusjóðs, varðandi styrk til skýrslu, sem unnin var um orkumál í Vopnafirði.

Styrkur að fjárhæð liðlega 2.300 þús. kr. fékkst frá sjóðnum.   Hreppsnefnd lýsir ánægju sinni með styrk þann sem Orkusjóður veitti til verksins.

Rætt var  um möguleika á áframhaldi á hitaveituleit.   Töldu fundarmenn ástæðu til að halda áfram við rannsóknir á svæðinu og nýta þann styrk sem til reiðu væri til þessara mála gegn mótframlagi sveitarsjóðs.  Hugmyndir að slíkum framkvæmdum verða sérstaklega kynntar í sveitarstjórn.

 

6. mál  Innanríkisráðuneytið bréf dags. 1. sept. sl., varðandi uppgjör á fasteignagjöldum

Lagt fram bréf Innanríkisráðuneytisins varðandi uppgjör á fasteignagjöldum, sem Jöfnunarsjóður sveitarfélaga greiðir á móti greiddum fasteignagjöldum í sveitarfélaginu á grundvelli breytinga á álagningarstofni fasteignaskatts.   Alls er miðað við að framlag þetta verði 32.693 þús. kr. á árinu 2011, sem er liðlega 3.000 þús. kr. hærra en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2011.   Þegar hefur verið greitt 27.058 þús. kr.   Eftirstöðvar til greiðslu eru því 5.635 þús. kr., sem greiddar verða út í september 2011.

 

7. mál.   Guttormsson Family foundation. -Styrkur-

Lagt fram bréf frá Guttormsson family foundation, þar sem greint er frá því að sjóðurinn hefur gefið styrk að fjárhæð 2.500 dollarar til smíði á vörðu, sem tengd er Vopnfirðingasögu.    Að þessari vörðu hefur verið unnið að af svokölluðum “ Vinum Vopnfirðingasögu”.   Styrkur þessi  mun að sjálfsögðu renna til þeirra svo unnt verði að hefjast handa við umrædda vörðu hið fyrsta.

Hreppsnefnd Vopnafjarðarhepps þakkar Guttormson family foundation fyrir höfðinglega gjöf, sem nýtast mun Vopnfirðingum vel í uppbyggingu á sögutengdri ferðaþjónustu til framtíðar.

 

8. mál.   Húsfriðunarsjóður, styrkur vegna Kaupvangs.

Lagt fram bréf Húsafriðunarnefndar varðandi styrk að fjárhæð 700 þús. kr. til Kaupvangs.

Greint var frá því að hugsanlega væru til staðar ónýttar styrkveitingar frá fyrra ári.   Styrkir þessir hafa verið veittir til endanlegrar hönnunar á þriðju hæð Kaupvangs.

Sveitarstjóra falið að ræða við fulltrúa sjóðsins og kanna hvort unnt sé að nýta styrkinn eða hluta hans til nauðsynlegra viðhaldsframkvæmda á húsinu.

 

9. mál.   Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 13. og 14. okt. nk. í Reykjavík

Gerð grein fyrir því að fjármálaráðstefna sveitarfélaga verður haldinn í Reykjavík dagana 13. og 14. okt. nk.

 

Fram kom tillaga um það að sveitarstjóri ásamt oddvita sæki ráðstefnuna.

 

Í framhaldi urðu nokkrar umræður um það hverjum ætti að bjóðast að fara á ráðstefnuna og hvernig fyrirkomulagið hefði verið í þessum efnum á umliðnum árum.  

 

Fyrirliggjandi tillaga var síðan samþykkt með 5 atkvæðum  gegn 2 atkvæðum.

 

10. mál. Stoðstofnanir á Austurlandi.  Skýrsla vinnuhóps um austfirskar stoðstofnanir tekin til umræðu.

Tekin til umræðu skýrsla vinnuhóps um austfirskar stoðstofnanir, sem gerð var sérstök grein fyrir á síðasta fundi sveitarstjórnar.

Oddviti gerði grein fyrir því að Vopnfirskir sveitarstjórnarmenn þyrftu að móta sér línu í afstöðu sinni til þeirra tillagna sem fram koma í skýrslu starfshópsins, varðandi sameiningu ýmissa stoðstofnana á Austurlandi.

Ráðgert er  að greiða þurfi atkvæði um tillögur í þessu sambandi á næsta aðalfundi SSA, sem haldinn verður í lok september 2011.

Fundarmenn voru almennt jákvæðir fyrir því að skref af þessum toga yrði stigið.   Ljóst yrði þó að vera að markmiðið væri að bæta þjónustu þessara stofnana frá því sem nú er.

 

11. mál. Lyfjaverslun Vopnfirðinga.   Hugmyndir um að flytja starfsemina úr Heilsugæslu í Kauptún.   Umræður.

Gerð var grein fyrir hugmyndum um hugsanlegan flutning Lyfsölu Vopnafjarðar úr Heilsugæslunni í Kauptún.   Í því samvandi voru kynnt bréfaskipti Vopnafjarðarhrepps og Lyfjastofnunar um þessi mál og kynntar teikningar af fyrirhugaðri staðsetnigu verslunarinnar ef til flutnings kemur.   Kallað var eftir sjónarmiðum sveitarstjórnarmanna varðandi þessa hugmynd.

 

Hreppsnefndarmenn lýstu síðan hugmyndum sínum og óskuðu eftir því að tekið yrði saman yfirlit yfir kostnað sem hljótast mundi af flutningnum, húsaleigu o.fl.  Ennfremur að rætt yrði við aðila sem tengjast flutningnum og kallað eftir sjónarmiðum þeirra.

Almennt voru hreppsnefndarmenn áhugasamir um þetta fyrirkomulag lyfsölumála og lýstu áhuga á því að vinna málið áfram.

 

Endanlegri afgreiðslu frestað til næsta fundar.

 

12. mál. Ýmis mál og fundargerðir

a) Hestamannafélagið Glófaxi.-Ársreikningur 2010.-

Lagður fram til kynningar ársreikningur Hestamannafélagsins Glófaxa fyrir árið 2010.   Vopnafjarðarhreppur hefur styrkt félagið með sérstöku fjárframlagi.

b) Fundargerð stjórnar skólaskrifstofu Austurlands frá 2. sept. sl.

Fundargerð stjórnar skólaskrifstofu Austurlands frá 2. sept. sl. lögð fram til kynningar.

c) Afrit af bréfum vegagerðarinnar varðandi breytingar í vegaskrá.   Bréfin eru dags. 30. ágúst sl.

Nokkrar umræður urðu um þessi mál.   Sveitarstjóra falið að ræða við Vegagerðina um ákvörðun þessa og jafnframt að kanna hvaða áhrif þetta hefur á viðkomandi aðila sem fengið hafa svona bréf.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.15





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir