Fundur atvinnumálanefndar haldinn í Miklagarði kl. 12.00 miðvikudaginn 14. september 2011.
Á fundinn voru mættir: Björn Halldórsson, Guðrún Stefánsdóttir, Berghildur Fanney Hauksdóttir, Jón Sigurðsson og Emil Erlingsson.
Jafnframt var mættur á fundinn sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Þá voru mættir til fundar fulltrúar Þróunarfélagsins Hafliði H. Hafliðason og Ólafur Áki Ragnarsson.
Dagskrá fundarins:
1. Mál. Fundargerð síðasta fundar
Lögð fram fundargerð nefndarinnar frá 28. feb. sl.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
2. Mál. Fulltrúar Þróunarfélags Austurlands Mæta á fundinn og gera grein fyrir starfsemi og framtíðarsýn félagsins
Á fundinn voru mættir Hafliði H. Hafliðason og Ólafur Áki Ragnarsson fulltrúar Þróunarfélags Austurlands. Gerðu þeir grein fyrir starfsemi félagsins og hvernig best væri að nýta þjónustu félagsins. Jafnframt fóru þeir yfir sýn sína á fyrirhuguðum sameiningarhugmyndum stoðstofnana á Austurlandi og hvernig þær hugmyndir hefðu áhrif á starfsemi Þróunarfélagsins og vinnu þess fyrir einstaklinga og fyrirtæki á svæðinu. Almennt töldu þeir að hugmyndir um sameiningu væru af hinu góða.
Að lokinni yfirferð sinni urðu nokkrar umræður um þessi málefni og svöruðu fulltrúar Þróunarfélagsins spurningum fundarmanna. Fundarmenn tóku jákvætt í hugmyndir um sameiningu en töldu að vel yrði að vanda til verks og gæta þess að þjónustan yrði betri við slíkan samruna en hún er í dag. Jafnframt kom skýrt fram í máli fundarmanna að mjög mikilvægt væri að styrkja útstöðvar slíkrar sameinaðrar stofnunar vítt og breytt í fjórðungnum.
3. Mál. Viljayfirlýsing Toppfisks. Byggðakvóti o.fl.
Lögð fram og kynnt viljayfirlýsing dags. 1. sept. sl., frá Toppfiski ehf., þar sem fyrirtækið lýsir yfir vilja sínum um að styðja og styrkja fiskvinnslu á Vopnafirði. Félagið hefur þegar tekið á leigu húsnæði, sem áður hýsti fiskmarkaðinn til þessarar starfssemi.
Undir þessum lið var einnig gerð grein fyrir því hvernig gengið hefði að úthluta þeim byggðakvóta sem til ráðstöfunar var á síðasta fiskveiðiári. Jafnframt taldi nefndin mikilvægt að tímanlega yrði farið yfir úthlutunarreglur fyrir nýtt fiskveiðiár svo unnt yrði að afgreiða málin til sjávarútvegsráðuneytisins strax þegar ný úthlutun byggðakvóta lægi fyrir af hendi ráðuneytisins.
4. Mál. 20/20 Sóknaráætlun
Lagt fram samantekt og greinargerð yfir tillögur Vopnafjarðarhrepps inn í sóknaráætlun 20/20. Helstu verkefni þar eru frekari vinnsla sjávarafurða, Mennta-, menningar- og þekkingarsetur Kaupvangi, Drekasvæði þjónustu og umskipunarhöfn, uppbygging loðdýrabús og samgöngumál.
Nokkrar umræður urðu um þessar hugmyndir og hvernig best yrði staðið að framgangi þeirra.
5. Mál. Önnur mál
Undir þessum liðvar tekið fyrir erindi Helga Þorsteinsonar frá 13. sept. sl., þar sem hann segir frá setu í nefndinni sem aðalmaður um leið og hann þakkar samstarfið á liðnum árum.
Atvinnumálanefnd vísar því til hreppsnefndar hvort kjósa eigi nýjan fulltrúa í nefndina.
Fleira ekki gert og fundi slitið.