Fundur fræðslunefndar haldinn í Miklagarði miðvikudaginn 7. sept.2011.
Mættir: Signý Kristjánsdóttir ,Gísli Sigmarsson, Einar B Kristbergsson, Helga Jakobsdóttir og
Þórdís Sumaliðadóttir.
Formaður setti fund.
Gísli segir af sér sem formaður. Gísli stingur uppá Helgu Jakobsdóttur sem formanni, samþykkt samhljóða. Gísli stingur uppá Þórdísi Sumaliðadóttur sem nýjum ritara, samþykkt samhljóða.
Fundargerð síðasta fundar lesin upp. Skoðast samþykkt.
Aðalbjörn skólastjóri mætti til fundarins, skóladagatal sett fram án athugasemda utan spurninga um að breyta vetrarfríisdögum frá enda febrúar í byrjun mars. Heildarlaun v/kennslu 4.333.000kr.á mánuði aukin samkennsla vegna aukatímar sérkennslu nemenda.
13 kennarar í 10,7 stöðugildum.
2 stuðningsfulltrár í 1,3 stöðugildurm
91 nemandi þar af 1 frá Langanesbyggð.
Engar breytingar á kennaraliði skólans fyrirséðar á skólaárinu fyrir utan að 1 kennari fer í heilsueflingu eftir áramót og búið að fá forfallakennara það tímabil.
Íþróttakennari dró umsókn sína um leyfi til baka og kennir því áfram.
Fyrirséð er að aðeins 4 nýjir nemendur koma til skóla í 1.bekk á næsta ári í stað 9 sem útskrifast í vor úr 10. bekk.
Fundardagur fræðslunefndar fastsettur 1. miðvikudag hvers mánaðar kl.15,30.
Skólaakstur.
Keyrt hefur verið á 2 bílum leiðina Hauksstaðir – Hámundarstaðir á morgnanna en notast við 1 bíl til heimkeyrslu. Markmiðið er að staðsetning skólabíls sé Hauksstaðir kl. 7,20 og að hver leið taki ekki lengri tíma en 60 mínútur, með því að notast við 1 bíl gæti sparast 800 – 950.000 kr. á ári. Fræðslunefnd leggur til að notaður verði 1 bíll til reynslu a.m.k.
Aðalbjörn yfir gefur fund.
Leikskólinn:
Mættar til fundar: Sandra Konráðsdóttir og Hafrún Róbertsdóttir.
Farið var fram að sveigjanlegir vistunartímar verði aflagðir og aðeins verði hægt að vista hvert barn eins alla vikuna.
Fræðslunefnd fellst á að afnema þennan sveigjanleika enda einfaldi það skipulag skólans töluvert.
Síðasta hækkun skólagjalda átti sér stað í upphafi þessa árs um 3% og telur Sandara að tími sé til að endurskoða skólagjöld enda hefur margt hækkað síðan þá.
Vilji fræðslunefndar er fyrir að miða við skólagjaldahækkun nágrannaskóla sem miðað hefur verið við ef talin er þörf á hækkun. Skóladagatal leikskólans lagt fram, samþykkt án athugasemda.
Breytingar á starfsmannahaldi:
Sandra verður frá í 11 mánuði frá miðjun október að telja ( óákveðin dagsetning) í barnsburðarleyfi. Halldóra Árnadóttir tekur við starfi leikskólastjóra og Hafrún Róbertsdóttir.
Nýjar starfsstúlkur koma til tímabundinna starfa í tvær 50% stöður þ.e. Sigurbjörg Halldórsdóttir og Monse Arlette Márbun. Sigríður Dóra er í ársleyfi.
Grænfánaverkefnið heldur áfram og þemavinnan er átthagarnir og gengur það vel. Skipt verður um rólur á næstunni enda eru þær ólöglegar.
Sandra fer fram á að fá heimild fræðslunefndar til að innheimta sekt hjá þeim foreldrum sem virða ekki vistunartíma barna sinna. Hugmyndin er að sekta einungis ef um ítrekuð brot er að ræða. Fræðslunefnd fellst á það.
Tónlistarskóli:
Búið er að gera samning við Baldvin Eyjólfsson um að koma í tvö til þrjú skipt á önn til gítarkennslu og hljómsveitarvinnu.
Fræðslunefnd leggur til að nánari dagsetningar verði fastsettar í upphafi hverrar annar .
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl: 17.22
Þórdís Sumarliðadóttir
Þórdís Sumaliðadóttir