Fundargerð hreppsnefndar 22. september 2011

27.09 2011 - Þriðjudagur

Hreppsnefndarfundur fimmtudaginn 22. sept. 2011 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.

 

Á fundinn voru mætt:  Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður Konráðsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir og Hafþór Róbertsson

Vegna fjarveru Þorsteins lagði Þórunn fram þá tillögu að Guðrún Anna yrði fundaritari. Samþykkt samhljóða og gengið til dagskrár

Dagskrá:

1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 8. sept.  sl.

Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 8 sept. sl.

Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

2. mál  Fundargerð atvinnumálanefndar frá 14. sept. sl.

Lögð fram til kynningar fundargerð atvinnumálanefndar frá 14. sept. sl.

3. mál. Fundargerð umhverfisnefndar frá 5. sept. sl.

Lögð fram til kynningar fundargerð umhverfisnefndar frá 5. sept. sl.

Ákveðið var að hafa borgarafund í byrjun nóvember og kanna stöðu sorpmála hvernig til hefði tekist og hvað mætti betur fara.

 

4. mál.  Fundargerð landbúnaðarnefndar frá 25. ágúst sl.

Lögð fram til kynningar fundargerð landbúnaðarnefndar frá 25. ágúst sl.

 

5. mál   Fundargerð skipulags- og bygginganefndar frá 19. sept. sl.

Lögð fram fundargerð skipulags- og bygginganefndar frá 19. sept sl.

Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

 

6. mál  Fundargerð fræðslunefndar frá 7. sept. sl.

Lögð fram fundargerð fræðslunefndar frá 7. sept. sl.    Gerð var smávægileg leiðrétting á fundargerðinni undir liðnum gjaldskrármál leikskóla.   Í fundargerðinni kemur fram að gjaldskráin hafi ekki verið hækkuð í 2 ár. Hið rétta er að hún var síðast hækkuð í janúar sl.

 

7. mál.   Erindi formanns stjórnar foreldrafélags Vopnafjarðarskóla, varðandi áheyrnarfulltrúa foreldra í fræðslunefnd.

Lagt fram erindi stjórnar foreldrafélags Vopnafjarðarskóla varðandi áheyrnarfulltrúa í fræðslunefnd, þegar fjallað er um málefni grunnskólans.

Hreppsnefnd beinir því til stjórnar foreldrafélagsins að foreldrar kjósi sér slíkan fulltrúa.

Erindinu að öðru leyti vísað til kynningar í fræðslunefnd.

 

 

8. mál.   Tilboð í hlutabréf í eigu Vopnafjarðarhrepps

Lagt fram tilboð frá verðbréfafyrirtækinu Virðingu dags. 16. sept. sl. í tiltekinn eignarhluta Vopnafjarðarhrepps í HB Granda.

Oddviti gerði grein fyrir málinu og því að í fjárhagsáætlun yfirstandandi árs yrði reynt að selja eignir, sem nýtast myndu til þess að greiða niður skuldir sveitarfélagsins hraðar en þar er áætlað.   Jafnframt til þess að ljúka þeim framkvæmdum sem ekki yrði komist hjá að ljúka.

 

Lögð fram svofelld tillaga:   ,,Sveitarstjóra er falið að vinna að því að finna heppilegustu leið til þess að afsetja þessar eignir með tilliti til þess að hæsta mögulega verð fáist á hverjum tíma.   Þegar endanlegt tilboð liggur fyrir skal það borið upp til endanlegrar samþykktar í sveitarstjórn.

Varðandi fyrirliggjndi tilboð er sveitarstjóra falið að gera gagntilboð.”

 

Nokkrar umræður urðu síðan á fundinum um þessi mál og hvað gæti talist eðlilegt söluvirði eignanna.  

Fyrirliggjandi tillaga var síðan borin upp til atkvæða og samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

 

9. mál. Erindi Héraðsskjalasafns Austfirðinga dags. 6. sept. sl., varðandi rekstur safnsins

Lagt fram erindi Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 6. sept. sl.  Í erindinu kemur fram að rekstur safnsins er erfiður og jafnframt að framlag ríkisins til rekstrarins hefur verið lækkað um nálega helming.   Í erindinu kemur fram beiðni um að hækka framlög sveitarfélaganna verulega til safnsins milli ára eða um liðlega 20 %.

Oddviti greindi frá fundi sem sveitarstjóri og oddviti áttu með framkvæmdastjóra safnsins um meðal annars  þessi mál.   Á þeim fundi kom fram mikilvægi þess að ná þyrfti fram heilstæðri línu í þessi mál gagnvart öllum aðildarsveitarfélögunum.   Tillaga kom því upp um það að kalla fulltrúa allra sveitarfélagana saman til fundar í tengslum við aðalfund SSA og leitast þar við að ná sameiginlegri niðurstöðu hvað framlög þessi varðaði.

Hreppsnefnd samþykkti samhljóða að þessi málsmeðferð yrði viðhöfð.

 

10. mál.  Erindi Orkustofnunar dags. 8. sept. sl., varðandi umsögn um áform Sóley Minerals um leit og rannsóknir á magnetite á hafsbotni.

Lagt fram erindi Orkustofnunar varðandi umsögn um áform Sóley Minerals um leit og rannsóknir á magnetite á hafsbotni utan netalagna.   Í meðfylgjandi gögnum er gerð grein fyrir málinu og hvar svæðin eru sem fyrirtækið hyggst leita á.   Svæðin eru í megindráttum stærsti hluti strandlengu suðurlands og eitt svæði á Austurlandi sem er við Héraðsflóa á hluta þess svæðis hefur Vopafjarðarhreppur lögsögu.

Lögð fram tillaga að umsögn sveitarfélagins dags. 19. sept. sl. En megin niðurstaða hennar er þannig:

 

„Vopnafjarðarhreppur sér ekkert því til fyrirstöðu að rannsóknir af þessum toga fari fram í sveitarfélaginu, enda liggi fyrir tilskilin leyfi að öðru leyti, svo sem frá Veiðimálastofnun, Umhverfisstofnun og Umhverfisráðuneyti.

Jafnframt er rétt og eðlilegt að leitin sé gerð í fullu samráði við sveitarstjórn og landeigendur.“

 

Hreppsnefnd samþykkti fyrirliggjandi tillögu að umsögn samhljóða með 7 atkvæðum.

 

11. mál. Erindi Tónlistarskólans á Akureyri dags. 5. sept. sl.,  varðandi námsvistargjöld, vegna tiltekins nemanda í grunn og/eða miðnám í skólanum.

Guðrún Anna vék af fundi undir þessum lið. Þórunn tók við ritarastarfi.

Lagt fram erindi Tónlistarskóla Akureyrar þar sem skólinn óskar eftir því að Vopnafjarðarhreppur greiði námskostnað vegna nemanda í skólanum sem hefur lögheimili í Vopnafirði.   Í erindinu kemur fram að reiknaður námskostnaður vegna nemanda við skólann er 486 þús.kr. á nemanda, sem falla myndi á lögheimilssveitarfélagið.

Með erindinu fylgja einnig reglur um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til eflingar tónlistarnámi og jöfnunar á aðstöðumun nemenda hvað þessi mál varðar.   ´

Í reglunum kemur fram að framlagi ríkisins er ætlað að gera nemendum kleift að stunda tónlistarnám óháð búsetu og efnahag með því að standa straum að kennslukostnaði í tónlistarskólum vegna hljóðfæranáms á framhaldsstigi og söngnáms á mið-framhldsskólastigi ásamt tengdum kostnaði.

Þetta á ekki við um nemendur sem eru styttra komnir í náminu.   Gagnvart þeim er einungis heimilt að sækja um styrk fyrir allt að helmingi kostnaðarins, enda séu fjármunir til staðar í Jöfnunarsjóði.   Lögheimilssveitarfélag greiðir það sem eftir stendur sem aldrei er minna en helmingur reiknaðs kennslukostnaðar.

 

Lögð fram svofelld tillaga að afgreiðslu:

“Hreppsnefnd Vopnafjarðar getur ekki orðið við erindi Tónlistarskóla Akureyrar um það að ábyrgjast hin tilteknu skólagjöld eins og um er beðið.   Hreppsnefnd beinir því til þar til gerðra stjórnvalda að fyrirliggjandi reglur um jöfnun námskostnaðar taki einnig til þeirra nemanda sem ekki eru komnir eins langt í tónlistarnámi eins og krafist er í umgetnum reglum, enda stundi viðkomandi nemendur framhldskólanám í framhaldsskóla í því sveitarfélagi, sem viðkomandi tónlistarskóli er í”.

 

Tillaga þessi var síðan samþykkt samhljóða.

Guðrún Anna sneri aftur til fundar.

 

12. mál. Lyfsala Vopnafjrðar, hugmyndir að flutningi, áður tekið fyrir á fundi hreppsnefndar 8. sept. sl.

Um þetta málefni var áður fjallað á fundi hreppsnefndar 8. sept. sl. og var því þá vísað til afgreiðslu á næasta fundi sveitarstjórnar.

Lagt fram bréf Lyfjastofnunar frá 19. sept. sl., þar sem stofnunin samþykkir fyrir sitt leyti að hafist verði handa við innréttingu nýs húsnæðis fyrir Lyfsöluna miðað við innsendar teikningar með tilteknum skilyrðum.

Jafnframt lagt fram yfirlit yfir áætlaðan kostnað við innréttingu hins nýja húsnæðis og hver kosnaður við leigu er.

Fram kom að leigusamningi við Heilbrigðisstofnun Austurlands vegna núverandi húsnæðis hefur verið sagt upp miðað við það að tilfærslan eigi sér stað eigi síðar en um næstkomandi áramót ef af verður.

Nokkrar umræður urðu um þetta mál og hvort skynsamlegt væri að færa lyfjaverslunina úr heilsugæslunni niður í hið tiltekna rými í Kauptúni.   Eins og fram hafði komið á fundi nefndarinnar 8. þessa mánaðar þá voru fulltrúar í hreppsnefndinni allir jákvæðir fyrir þessum flutningi, enda samræmist hann hugmyndum um að auka mannlíf í miðbæ Vopnafjarðar.

 

Lögð fram svofelld tillaga: ,, Hreppsnefnd Vopnafjarðahrepps samþykkir að Lyfsala Vopnafjarðar flytjist úr Heilsugæslu í nýtt húsnæði við Hafnarbyggð 4.   Í því sambandi samþykkir hreppsnefnd einnig að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á húsnæðinu til samræmis við fyrirliggjandi kostnaðaráætlun þar um, en samkvæmt henni er áætlað að breytingakostnaður nemi um 1.800 þús. kr.”

 

Fyrirliggjandi tillaga var síðan samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

13. Mál. Ýmis mál og fundargerðir

a) Fundargerð stjórnar Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 12. sept. sl.

Lagt fram til kynningar,

b) Yfirlit yfir úhlutaðan byggðakvóta á Vopnafirði af byggðakvóta 2010/2011.

Lagt fram til kynningar.

c) Fundargerð heilbrigðisnefndar Austurlands frá 14. sept. sl.

Lagt fram til kynningar

d) Gögn vegan aðalfundar SSA, sem haldinn verður í Hallormsstað dagana 30. sept. og 1. okt. nk.

Lagt fram til kynningar

Fundi slitið kl 16:45





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir