Félagsfundur Ferðamálasamtaka Vopnafjarðar 03. október ´11

05.10 2011 - Miðvikudagur

Opinn félagsfundur Ferðamálasamtaka Vopnafjarðar

03. október 2011, haldinn í Miklagarði kl. 16:00

 

Stjórn Ferðamálasamtaka Vopnafjarðar hélt opinn fund mánudaginn 03. október 2011 í félagsheimilinu Miklagarði og hófst kl. 16:00.

 

Mætt til fundar: B. Fanney Hauksdóttir, Sigríður Bragadóttir, Ágústa Þorkelsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir, Cathy Josephson, Þórunn Egilsdóttir, Kristín Brynjólfsdóttir og Magnús Már Þorvaldsson. Síðar mættu auk heldur Pétur V. Jónsson, Dagný Sigurjónsdóttir og Jósep H. Jósepsson.

 

 

Dagskrá:

 

1.      Kosning fundarstjóra

2.      Kosning ritara

3.      Skýrsla formanns

4.      Farið létt yfir verkefnaskýrsluna frá því í fyrra vor

5.      Hugmyndir félagsmanna um skipulagningu vetrarstarfsins

6.      Almennar umræður

7.      Fundi slitið

 

1.      mál: Kosning fundarstjóra – Tillaga formanns að Sigríður Bragadóttir verði fundarstjóri var samþykkt samhljóða.

 

  1. mál: Kosning ritara – Tillaga formanns að Magnús Már Þorvaldsson verði ritari fundarins var samþykkt samhljóða.

 

3.      mál: Skýrsla formanns – Hóf formaður mál sitt á að tilkynna að samtökin hafi fengið samþykktan 1.5 mkr. styrk úr VAXA eftir að hafa verið hafnað í öllum tilfellum áður en alls höfðu umsóknir farið á 7 aðila. Sú umsókn sem samþykkt var nú var áður hafnað en fundur með fulltrúum Þróunarfélagsins þann 14. september sl. skilaði þessari ánægjulegu niðurstöðu. Ekki lá fyrir hvernig styrkurinn er skilgreindur en hann breytir miklu fyrir komandi starf í ferðamálum Vopnafjarðar.

 

- Skrýtin þessi veröld á stundum, það sem einu sinni var ekki nógu gott er það nú.

 

Farið yfir þau verkefni sem lokið er. Gönguleiðir Skjólfjörur og Drangsnes stikaðar en skilti vantar við Skjólfjörur þó þar sé kominn staur fyrir slíkt. Kostnaður við gerð á einföldum upplýsingaskiltum er vel viðráðanlegur eða 12 þús./m2. Þjónustunámskeið var í boði og tókst með ágætum. Ágústa tók saman upplýsingar yfir afþreyingu á Vopnafirði í upphafi sumars.

 

4.      mál: Verkefnaskýrslan yfirfarin – Áðurnefndar gönguleiðir. Veiði: 5 vötn til skoðunar, m. a. í samstarfi við Bakkfirðinga. Þéttbýlið: Hrund hefur tekið að sér að vinna upplýsingakort. Fuglaskoðun: Möguleikar taldir vera miklir, hugmynd um sjónauka og skilti í Miðhólma. Heiðin: Brunahvammur og Fagrakinn næst á dagskrá m. t. t. merkinga. Fjölskyldutengd dorgveiði við höfnina og sílaveiðar eru í vinnslu. Sandvíkin og fleira er varðar fjölskylduna og börnin.

 

5.      mál: Hugmyndir um skipulagningu vetrarstarfsins – Lagði formaður til að áhugafólk skipti á milli sín verkefnum og þeir sem væru í forsvari tiltekins verkefnis kölluðum fólk til – hitt er fullreynt, þ. e. að bíða frumkvæðis annarra en þeirra sem beinlínis vilja. Þannig að:

 

Skilti við þjóðvegi, vega- og upplýsingaskilti: Magnús Már. Ber að athuga möguleika á að upplýsingaskilti verði uppsett er sýna gönguleiðir, örnefni o. fl. Golfvallarskilti er til en í geymslu, af hverju? Samstarf við Halldór Jóhannsson og Vegagerðina.

 

Heiðarbýli, merking þeirra framhaldið: Þórunn. Kálffell, Brunahvammur, Fagrakinn o. fl. Fanney nefndi ferð á Langanesið hvar sett hafa verið upp skemmtileg skilti gerð úr plönkum og Jósef myndaði.

 

Bæklingar og texti fyrir skilti: Ágústa og Cathy. Lagði Ágústa fram lista yfir skilti sem hún telur þörf á að sett verði upp – sum varða þéttbýlið og eru þá ábyrgð þeirra sem það hafa með að gera.

 

Listinn: 1) Kaupvangur: Menningar- og fræðasetur, Múlastofa, Vesturfaramiðstöð, Þekkingarnet, upplýsingamiðstöð, Kaupvangskaffi. Framkvæmdaaðili/greiðandi: Vopnafjarðarhreppur. Ábyrgðarþáttur þéttbýlinga. 2) Endurnýja stóru upplýsingaskiltin í þéttbýli, neðan Vatnsdalsgerðis, á vegamótum Háreksstaðaleiðar. Framkv.aðli: Vegagerðin og fellur þá undir ábyrgðarþátt MM. 3) Athuga að ræða við landeigendur um heimild til skiltauppsetningar. 4) Merkja heiðarbýli við þjóðveg (MM). 5) Merkja a. m. k. 4 gönguleiðir og lagði þá til: a) Fuglabjargarnes, b) Þverárgil, c) Skjólfjörur og d) Tangasporður. Ágústa lagði til að verktakavinna verði keypt af Cathy við bæklingagerð og var það samþykkt.

 

Þéttbýli: Fanney, Hrund og Guðrún Anna. Útbúa kort yfir þéttbýlið með upplýsingum fyrir ferðamenn, afþreying, merking gönguleiðar, merking húsa o. fl.

 

Veiði: Jósep Joð og Pétur Joð. Samantekt upplýsinga, skiltagerð o. fl.

 

Fuglaskoðun: Helgi Þorsteins, Þorsteinn Steinsson … Ýmsir staðir til skoðunar, Fuglabjarganes, hólmarnir, o. fl. staðir

 

Barnaafþreying: Anna J. í Vatnsdalsgerði og Guðrún Anna. Barnaafþreying, krakkakort, Sandvíkin o. fl.

 

Samþykkt að innan mánaðar komi hópurinn saman og upplýsi um stöðu verkefnismála.

 

6.      mál: Almennt – Magnús upplýsti að dagana 12. og 13. október n. k. verði um s. k. FAM kynningu að ræða, þ. e. að til Austurlands komi fulltrúar „Incoming“ ferðaskrifstofa, hugmyndin er að hafa „míni workshop“ með almennri kynningu og sérstakri áherslu á afþreyingu menningar- og fræðsluferðaþjónustu. Mun ferðaskrifstofuhópnum verða skipt í tvo hópa, annar fer norður og hinn suður – og verðum við að vera vel undirbúin.

 

MM nefndi uppskeruhátíð Markaðsstofunnar þann 21. október n. k. að Hallormsstað, í fyrra mættu nokkrir Vopnfirðingar og standa vonir til að fleiri mæti ár enda maður manns gaman. Ennfremur greindi MM frá, hversu lygilegt sem það hljómar, að einungis 1% innkoma safna á Austurlandi í formi aðgangeyris, 99% tekna af öðrum meiði! Að lokum vildi hann koma að sérlega jákvæðri frétt Reykjavík Grapevine á www.grapevine.is en einn og ½ dag dvaldi hér blaðamaður ásamt ljósmyndara undir leiðsögn ferðamálafulltrúa.

 

Hafandi fjármagn til athafna er næsta skref að finna áhugaverðan starfsmann til að leiða vinnuna í náinni framtíð. Sagði Fanney það sláandi hversu lítil þekking heimamanna væri í raun á umhverfi sínu og lagði til að einn dag í vor yrðu Vopnfirðingar ferðamenn í eigin sveitarfélagi þar sem víðtæk kynning væri í boði. Var vel í hugmyndina tekið og kannski má líta á verkefnið sem æfingu fyrir sumarið næsta.

 

Greindi Fanney frá hugmyndum ferðaklasans að fara í kynningarferð innanlands, á Strandirnar sem dæmi, og eins væri verl til fundið að horfa til ferðar til BNA og Kanada.

 

 

Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 17:20

 

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir