Fundargerð hreppsnefndar 20. október 2011

24.10 2011 - Mánudagur

Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 20. október
2011 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.

 

Á fundinn voru mætt Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson, Einar Björn Kristbergsson, Sigríður Konráðsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir og Hafþór Róbertsson.

 

Jafnframt var mættur, Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð

Dagskrá:

1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 22. sept. sl.

Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 22. sept. sl.

Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

 

2. mál Sundabúð-Staða mála.   Fundargerðir frá 11. ágúst sl. og 28. sept. sl.

Lagðar fram fundargerðir frá 11. ágúst og 28. sept. sl., varðandi áframhaldandi rekstur á legudeildinni að Sundabúð.

Oddviti gerði grein fyrir stöðu mála.   Sveitarstjóra og oddvita falið að vinna áfram að framgangi málsins.

 

3. mál. Fundur með Þingmönnum kjördæmisins 25. okt. nk. kl. 9.30.

 

Gerð var grein fyrir því að þingmenn kjördæmisins koma á fund Vopnafjarðarhrepps kl. 9.30 á þriðjudaginn 25. okt. nk.  Fundurinn verður í félagsheimilinu Miklagarði.

Sveitarstjóra og oddvita falið að taka saman gögn fyrir fundinn.

 

4. mál. Vegagerðin- Breytt fyrirkomulag snjómoksturs.

 

Lagt fram bréf Vegagerðarinnar, þar sem greint er frá breyttu fyrirkomulagi snjómoksturs vegna tilkomu nýs vegar um Vopnafjarðarheiði niður til þéttbýlis Vopnafjarðar.   Í bréfinu kemur fram að áætlað er að mokstursdagar verði 6 á Vesturárdalsleið þ.e. alla daga nema laugardaga.   Ráðgert er að mokstursdagar verði 2 frá Vopnafirði til Bustarfells.

 Samkvæmt reglum um helmingamokstur er heimilt að moka einn dag til viðbótar inn Hofsárdal.

Hreppsnefnd telur eðlilegt að þessi regla verði viðhöfð í vetur til reynslu.   Mokstursreglurnar verði síðan skoðaðar sérstaklega að fenginni reynslu og þegar svokölluð Millidalaleið hefur verið tekin í notkun.

Jafnramt er ítrekað mikilvægi þess að mokstursreglur um Vopnafjarðarheiði séu að fullu samræmdar við þær reglur sem gilda á leiðinni Egilsstaðir-Akureyri.

 

5. mál Fjárhagsáætlun 2012, tímaáætlun og vinnubrögð.

 

Undirbúningsvinna við gerð fjárhagsáætlunar Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2012 er farin í gang.  Gert er ráð fyrir að fyrri umræða fjárhagsáætlunar fari fram 17. nóvember nk.  Síðari umræða verði síðan í kring um miðjan des. nk.   Milli umræðna er við það miðað að setja upp sérstaka vinnufundi hreppsnefndar um fjárhagsáætlanagerðina.

Þrátt fyrir að ný sveitarstjórnarlög hafi verið samþykkt gilda eldri lög um gerð þessarar fjárhagsáætlunar þar sem hin nýju lög taka ekki gildi fyrr en 1. janúar 2012.  Samkvæmt gildandi lögum skal ljúka gerð fjárhagsáætlunar næsta árs fyrir lok desember og þriggja ára áætlun innan tveggja mánaða frá afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2012, nema annað verði ákveðið.

 

6. mál Bréf eftirlitsnefndar sveitarfélaga til sveitarstjórna dags. 21. sept. sl.

 

Lagt fram bréf eftirlitsnefndar sveitarfélaga, móttekið 6. okt. sl. Í bréfinu kemur fram samantekt á fjárhagsstöðu sveitarfélaga í landinu öllu sem eftirlitsnefndin hefur unnið úr ársreikningum sveitarfélaga fyrir árin 2009 og 2010.  Ljóst er samkvæmt bréfinu að staða margra sveitarfélaga er erfið og leggja þarf mikið kapp á að greiða niður skuldir á næstu árum.

Bréfið að öðru leyti lagt fram til kynningar.

 

7. mál. Bréf Fjárlaganefndar Alþingis dags. 5. okt. sl., varðandi fund við nefndina.

 

Lagt fram bréf Fjárlaganefndar Alþingis frá 5. okt. sl., þar sem boðið er upp á fund með nefndinni.   Jafnframt kynnir nefndin breytt fyrirkomulag umsókna um styrki og úthlutanir þeirra á safnliðum.

Samþykkt að fela sveitarstjóra og oddvita að taka saman erindi fyrir nefndina og koma þeim á framfæri, en boðið er upp á fund með nefndinni

 

8. mál. Bréf Veiðifélags Selár dags. 10. okt. sl.,  varðandi kalt og heitt vatn í nýtt veiðihús. Jafnframt lögð fram drög af skýrslu Jarðfræðistofunnar Stapa varðandi dæluprófun.

 

Lögð fram erindi Veiðifélags Selár dags. 10. okt. sl., varðandi nýtingu vatns í veiðihús félagsins sem er í byggingu við Selá ofan Sundlaugar.   Annars vegar er óskað  heimildar til nýtingar neysluvatns úr borholu VF-26 og hins vegar heimildar til að nýta sér heitt vatn úr holu FN-5.

Umsóknaraðili gerir sér grein fyrir að allt nýtanlegt vatn á þessu svæði sem fyrirhugað er til notkunar í Selárdalslaug mun hafa forgang umfram það vatn sem veiðihúsið mun nota.

 

Jafnframt lögð fram drög að skýrslu Jarðfræðistofunnar Stapa dags. 11. okt. sl., þar sem gerð er grein fyrir dæluprófun á borholum við Selárdalslaug.   Í þessari samantekt telur jarðfræðingurinn að það geti verið jarðhitaverkefninu við Selárdalslaug til framdráttar ef hægt væri að dæla stöðugt úr holum FN-5 og FN-1í vetur nálægt 6 l/s til þess að kanna áhrif þess á vatnsborð og vinnslugetu svæðisins til lengri tíma litið.

 

Lögð fram svofelld tillaga: 

 „Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að selja veiðifélagi Selár vatn eins og óskað er eftir, enda verði dælt í vetur til reynslu úr holum FN-1 og 5.   Miðað skal við að veiðifélagið greiði fyrirfram fyrir kostnað vegna nýtingarinnar.  Ljóst skal og vera að vatn til Sundlaugarinnar hefur ávallt forgang umfram vatn til veiðihússins, komi til þess að vatnið verði ekki nægilegt fyrir báða staði í einu.   Um þetta skal gera sérstakt samkomulag milli Vopnafjarðarhrepps og Veiðifélags Selár.

Samkomulagið byggir á því að niðurstöður dælinga verði skoðaðar á komandi vori og þá ákveðið um áframhald samkomulagsins á grundvelli reynslunnar.

Forstöðumanni áhaldahúss og sveitarstjóra falið að vinna að framgangi málsins í samráði við Jarðfræðistofuna Stapa, sem hefur yfirumsjón með dælingunni.“

Eftir nokkrar umræður þar sem fundarmenn lýstu sjónarmiðum sínum var fyrirliggjandi tillaga borin upp til atkvæða.

Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

 

 

 

9. mál. Bréf Fiskistofu dags. 26. sept. sl.,varðandi sérstakt strandveiðigjald til hafna.

 

Lagt fram bréf Fiskistofu frá 26. sept. sl., varðandi sérstakt veiðigjald, sem innheimt er af strandveiðibátum.   Galdið sem greitt er til Vopnafjarðarhrepps er alls kr. 471.891.

 

Fram kom tillaga um það að galdið verði lagt fram í sérstakan atvinnueflingarsjóð.

Tillagan samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

 

10. mál.  Fjármálaráðstefna sveitarfélaga.  Farið yfir helstu mál.

Oddviti og sveitarstjóri gerðu grein fyrir ferð sinni á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga og bentu fundarmönnum á það hvar mætti nálgast þau erindi sem á ráðstefnunni voru.   Einnig sögðu þau frá aðalfundi samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, sem haldinn var í lok ráðstefnunnar.

 

11. Mál. Ýmis mál og fundargerðir

a) Fundargerð stjórnar skólaskrifstofu Austurlands frá 6. okt. sl.

Lögð fram til kynningar.

b) Fundargerð stjórnar Brunavarna á Austurlandi frá 21. sept. sl.

Lögð fram til kynningar

c) Fundargerð opins fundar Ferðamálasamtaka Vopnafjarðar frá 3. okt. sl.

Lögð fram til kynningar.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.05

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir