Fundur hafnarnefndar Vopnafjarðarhrepps var haldinn föstudaginn 28. okt. 2011 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 12.00
Á fundinn voru mættir Hafþór Róbertsson, Þorsteinn Halldórsson, Magni Hjálmarsson, Hjörtur Davíðsson og Halldór Jónasson.
Jafnframt var mættur Hafnarstjóri, Þorsteinn Steinsson, og ritaði hann fundargerð.
Dagskrá:
1) Fundargerð hafnarnefndar frá 13. des. 2010
Lögð fram fundargerð hafnarnefndar frá 13. Des. 2010.
Fundargerðin síðan samþykkt.
2) Ársreikningur hafnarinnar 2010
Lagður fram ársreikningur hafnarinna fyrir árið 2010. Hafnarstjóri gerði grein fyrir reikningunum og svaraði framkomnum fyrirspurnum.
3) Kaup á hlutabréfum í HB Granda af Skiphólma.
Lögð fram drög að samkomulagi milli Skiphólma og Hafnarsjóðs varðandi kaup á hlutabréfum í HB Granda. Samkomulagið er dags 28. Okt. 2011.
Gerð grein fyrir skjalinu og þeim hugmyndum sem þar koma fram. Í framhaldi af umræðum var lögð fram svofelld Bókun:
„ Hafnarstjórn samþykkir að leggja til við hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps að Hafnarsjóður kaupi alla eignarhluti Skiphólma ehf. í HB Granda til samræmis við sérstakt samkomulag þar um milli Skiphólma ehf. og Hafnarsjóðs dags. 28. okt. 2011“
Fyrirliggjandi bókun og samkomulag var síðan borið undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
4) Sérstakt strandveiðigjald/Byggðakvóti
Lagt fram bréf Fiskistofu dags. 26. sept. sl., varðandi sérstakt strandveiðigjald til hafna.
Hreppsnefnd hefur lagt til að gjald þetta nýtist sem stofnframlag inn í sérstakan Atvinnueflingarsjóð Vopnfirðinga.
Jafnframt lagt fram skjal sem gerir grein fyrir úthlutun byggðakvóta vegna síðasta kvótaárs. Yfirlitið sýnir hvernig úthlutun stendur miðað við september 2011.
Unnið er að endanlegri úthlutun hjá Fiskistofu.
5) Framkvæmdir og lagfæringar hafnarinnar. Gerð grein fyrir fjárveitingum o.fl.
Gerð var grein fyrir því að stærstur hluti fjárveitinga til lagfæringar á trébryggju, sem hugmyndin var að hefjast handa við á þessu ári hefur verið færð yfir á næsta ár. Um framkvæmdirnar verða teknar sérstakar ákvarðanir við fjárhagsáætlanagerð fyrir árið 2012.
6) Önnur mál.
Farið var yfir ýmis mál m.a. aðkomu að smábátahöfn, siglingaljós í innsiglingu, kjaramál starfsmanns hafnarinnar og rafmagnssölu til björgunarbáts.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14.05