Stjórnarfundur Skiphólma ehf.
Stjórnarfundur haldinn í Skiphólma ehf. föstudaginn 28. okt. í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00.
Á fundinn voru mætt Þórunn Egilsdóttir, Sigríður Konráðsdóttir og Guðrún Anna Guðnadóttir . Jafnframt var mættur framkvæmdastjóri, Þorsteinn Steinsson og ritaði hann fundargerð.
Á dagskrá fundarins var:
- Ársreikningar fyrirtækisins fyrir árið 2010.
Framkvæmdastjóri lagði fram og skýrði ársreikning Skiphólma fyrir árið 2010. Í máli hans kom meðal annars fram að tilgangur félagsins er hverskonar eigna- og fjármálaumsýsla s.s. viðskipti með hlutabréf, lánastarfsemi ofl., er þessum rekstri tengist, auk reksturs fasteigna. Enginn launaður starfsmaður starfaði hjá félaginu á árinu 2010. Samkvæmt rekstrarreikningi ársins var rekstrartap ársins 2010 rúmar 8,1 m.kr. Í árslok nam hlutafé félagsins 0,5 m.kr. og var Vopnafjarðarhreppur, kt. 710269-5569, eigandi alls hlutafjárins.Eins og að framan greinir var rekstrartap á árinu 2010. Arður verður því ekki greiddur til hluthafa á árinu 2011, vegna rekstrarársins .
Nokkrar umræður fóru síðan fram um fyrirliggjandi ársreikning og svaraði framkvæmdastjóri fram komnum fyrirspurnum.
Ársreikningurinn síðan borinn undir atkvæði og var hann samþykktur samhljóða.
- Sala hlutabréfa í HB Granda
Lagt fram og kynnt samkomulag milli Skiphólma og Hafnarsjóðs Vopnafjarðar varðandi sölu hlutabréfa Skiphólma í HB Granda til Hafnarsjóðs. Samkomulagið er dags. 28. okt. 2011.
Nokkrar umræður urðu um málin þar sem framkvæmdastjóri útskýrði málin og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.
Í framhaldi lögð fram svofelld tillaga: „Stjórn Skiphólma ehf. Samþykkir að selja Hafnarsjóði Vopnafjarðarhrepps alla eignarhluti sína í HB Granda til samræmis við sérstakt samkomulag þar um milli Skiphólma ehf. Og Hafnarsjóðs dags. 28. Okt. 2011.“
Fyrirliggjandi tillaga ásamt samkomulagi samþykkt samhljóða.
- Önnur mál
Engin önnur mál.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16.30