Stjórnarfundur Arnarvatns ehf. 31.10.2011

31.10 2011 - Mánudagur

Fundargerð stjórnarfundur Arnarvatns

 

Stjórnarfundur haldinn í Arnarvatni ehf. Mánudaginn 31.okt. 2011  í félagsheimilinu Miklagarði kl. 12.00.

Á fundinn voru mættir Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson og Bárður Jónasson.   Jafnframt var mættur á fundinn Þorsteinn Steinsson, framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.

 

Á dagskrá fundarins var:

 

  1. Ársreikningar fyrirtækisins fyrir árið 2010.

Lagður fram ársreikningur fyrirtækisins fyrir árið 2010.   Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir helstu stærðum hans.   Í máli hans kom meðal annars fram að:   Tilgangur félagsins er rekstur hótels, veitingarekstur hvers konar og lánastarfsemi í því sambandi.  Ekki síður er tilgangurinn rekstur fasteigna og skyld starfsemi.   Félagið var í upphafi stofnað til þess að kaupa og reka hótel Tanga, sem á þeim tíma var komið í eigu Byggðastofnunar eftir hrakfarir fyrri eigenda í rekstri þess.   Enginn launaður starfsmaður starfaði hjá félaginu á árinu 2010.   Launagreiðslur voru því engar á árinu 2010.

 

Samkvæmt rekstrarreikningi ársins var rekstrartap ársins 2010 rúmar 2,2 m.kr.

 

Í árslok nam hlutafé félagsins 2,2 m.kr. og var Vopnafjarðarhreppur, kt. 710269-5569, eigandi alls hlutafjárins.   Að loknu máli sínu lagði framkvæmdastjóri til að stjórnin samþykkti fyrirliggjandi ársreikning fyrir árið 2010.

Nokkrar umræður urðu um fyrirliggjandi ársreikning, þar sem stjórnarmenn spurðu ýmissa spurninga sem framkvæmdastjóri svaraði.  

Að svo búnu voru ársreikningarnir bornir undir atkvæði og voru þeir samþykktir samhljóða og vísað til afgreiðslu á aðalfundi félagsins.

 

  1. Leigusamningur, framlenging.

Lagður fram og kynntur gildandi leigusamningur, sem upphaflega var gerður 2006.   Framkvæmdastjóri fór yfir helstu atriði hans og taldi nauðsynlegt að stjórnin tæki ákvörðun um það hvort hún vildi framlengja samningnum og þá um leið endurskoða ákvæði hans.

Umræður urðu síðan um samninginn og ýmis atriði hans.   Fundarmenn urðu síðan sammála um að fela framkvæmdastjóra að vinna að fralengingu hans.

 

 

  1. Önnur mál.

Gerð var grein fyrir því að hótelið var í sumar auglýst til sölu, en engin áhugaverð tilboð bárust.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13.10.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir