Aðalfundur Arnarvatns ehf. 31.10.11

31.10 2011 - Mánudagur

Aðalfundur Arnarvatns ehf., haldinn kl. 13.10 mánudaginn

31. okt. kt. 2011 í félagsheimilinu Miklagarði.

 

 

Á dagskrá aðalfundar voru:

 

1.     Skýrsla stjórnar félagsins og ársreikningur vegna ársins 2010

Framkvæmdastjóri lagði fram ársreikninga fyrirtækisins  fyrir árið 2010 og kynnti svofellda skýrslu stjórnar fyrirtækisins með ársreikningunum:

“Skýrsla stjórnar Arnarvatns ehf.

 

Tilgangur félagsins er rekstur hótels, veitingarekstur hvers konar og lánastarfsemi í því sambandi.  Ekki síður er tilgangurinn rekstur fasteigna og skyld starfsemi.   Félagið var í upphafi stofnað til þess að kaupa og reka hótel Tanga, sem á þeim tíma var komið í eigu Byggðastofnunar eftir hrakfarir fyrri eigenda í rekstri þess.   Enginn launaður starfsmaður starfaði hjá félaginu á árinu 2010.   Launagreiðslur voru því engar á árinu 2010.

 

Samkvæmt rekstrarreikningi ársins var rekstrartap ársins 2010 rúmar 2,2 m.kr.

 

Í árslok nam hlutafé félagsins 2,2 m.kr. og var Vopnafjarðarhreppur, kt. 710269-5569, eigandi alls hlutafjárins.

 

Eins og að framan greinir var rekstrartap á árinu 2010.   Arður verður því ekki greiddur til hluthafa á árinu 2011, vegna rekstrarársins 2010.

Stjórnin vísar að öðru leyti til ársreikningsins um ráðstöfun hagnaðar/taps og annarra breytinga á eiginfjárreikningum.

 

Með áritun sinni á ársreikning félagsins fyrir árið 2010 hefur stjórnin staðfest hann.

 

Vopnafirði  31.okt. 2011

Þorsteinn Steinsson

Framkvæmdastjóri”

Ársreikningurinn og skýrslan síðan samþykkt samhljóða.

 

2.     Ákvörðun um þóknun stjórnar

Framkvæmdastjóri lagði til að þóknun stjórnar yrði engin.

Tillagan samþykkt samhljóða.

3.     Kosning í stjórn félagsins og varastjórn

Lögð fram tillaga um að í aðalstjórn félagsins yrðu:   Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson og Bárður Jónasson og til vara yrðu Þórunn Egilsdóttir og Sigríður Konráðsdóttir.

Engin önnur tillaga kom fram og var fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.

 

4.     Kosning endurskoðanda

Fram kom tillaga um endurskoðunarfyrirtækið KPMG sem endurskoðanda.

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða

 

5.     Önnur mál.

Enginn önnur mál tekin fyrir

 

Fundi slitið kl. 13.25





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir