Fundur í fræðslunefnd haldinn í Miklagarði 2. nóv. 2011 kl. 15:30.
Mætt til fundar: Helga Jakobsdóttir, Signý Björk Kristjánsdóttir, Haraldur Jónsson,
Gísli Sigmarsson og Þórdís Sumarliðadóttir.
Undirritun síðasta fundar
Tónlistarskóli
Mættur til fundar Stefen Yates tónlistarkennari sem fór yfir stöðu tónlistarskólans og upplýsti að 28 nemendur eru skráðir í skólann í ár sem eru allir á aldrinum 6 ára til 11 ára utan 1 sem er í 7. bekk sem er fækkun frá fyrra ári sem Stefen telur að sé vegna lítils lesskilnings á nótur og togstreitu á tíma nemenda milli skóla, tónlistarskóla og iþróttaiðkunnar og að tónlist sé ekki í hávegum höfð í sveitafélaginu og nemendurnir séu ekki nógu áræðnir til að stunda hann vegna ótta við viðhorf samfélagsins en að lönguninn sé til staðar og hæfileikarnir .
Einnig vill Stefen árétta að lítið hefur verið um aðstoð frá skólanum til að ýta á nemendur til að sinna tónlistarskólanum.
Ennfremur upplýsir Stefen að hann sé að æfa barnakór yngri barna sem gengur vel.
Enn ítrekar fræðslunefnd að auglýst verði eftir tónlistarkennara til að kenna á blásturshljóðfæri og gítar.
Stefen yfirgefur fund.
Grunnskólinn
Mætt til fundar Aðalbjörn skólastjóri og Bjarney kennari.
Gerðu grein fyrir námsferð kennara til U.S.A.
Þar sem heimsóttir voru 5 mismunandi skólar voru þau sammála um að það voru flest allir sem fóru mjög ánægðir með þessa ferð en þau skiptu liði til að sjá sem mest og mátu kennarar það sem sneri að kennslunni en aðrir það sem sneri að þeirra vinnu hér heima meira.
Tilgangur ferðarinnar var að vekja fagfólk til umhugsunar um mismunandi skólastarf og skólaumhverfi og nýta nýjar aðferðir og hugmyndir.
Í lok hvers dags var fundað og gerð samantekt og verið er að vinna skýrslu um ferðina og verður hún aðgengileg á vef skólans.
Áberandi þótti þeim hversu tæknivæddir skólarnir voru og framarlega í kennslugögnum og það hversu augljóslega sýnt fram á allt það sem börnin gerðu, allstaðar voru myndir á veggjum og göngum og hversu mikil virðing er borin fyrir öllu starfi barnanna, sem og það hve öguð börnin voru í frítima að það sé til fyrirmyndar.
Samt stakk það í stúf hversu stólar og borð nemendanna voru í raun döpru ástandi og þætti ekki viðunandi hér.
Greindu þau líka frá þvi að þar sem börn vel stæðra foreldra gengju í skóla það var viðhöfð sjálfboðavinnuskylda og ekkert endilega að foreldri væri að annast sitt barn heldur bara vinna að skólanum sem heild.
Þakkar Aðalbjörn skilning og jákvæðni skólasamfélagsins varðandi þessa ferð.
Varðandi skólann hér heima segir Aðalbjörn enn sem fyrr skólann glíma við einelti og að það sé tekið á því á ákveðnari hátt og að ábyrgð foreldra gerenda sé mikil.
Það þurfi miklu meiri samskipti foreldranna í millum og virkja þá betur.
Hrista þá saman.
Bjarney var með kynningu á heilsueflandi skóla sem Vopnafjarðarskóli vinnur eftir,nú er sérstaklega unnið með hugtökin hreyfing og öryggi en skipt er um hugtök hverja önn.
Aðalbjörn og Bjarney yfirgefa fund.
Erindi frá aðalfundi Foreldrafélags Vopnafjarðarskóla 31. október 2011.
Mættur til fundar Sr. Stefán Már.
Stefán Már leggur fram svohljóðandi ályktun fyrir hönd Foreldrafélags Vopnafjarðarskóla:
´´Á aðalfundi Foreldrafélags Vopnafjarðarskóla þann 31. október síðastliðinn var lagt til að sveitastjórn ynni að stofnun framhaldsskóladeildar á Vopnafirði“.
Fræðslunefnd tekur heilshugar undir þessa ályktun og hvetur sveitastjórn til að hefjast handa sem fyrst, enda sé þetta ávinningur sveitafélagsins í heild sinni.
Fræðslunefnd bendir á að nú þegar er starfrækt framhaldsdeild á Þórshöfn í samstarfi við Framhaldsskólann á Laugum og virðist ríkja almenn ánægja með það fyrirkomulag. Slík starfsemi gæti skapað 1 starf.
Fleira ekki fundi slitið 17.33.