Fundargerð hreppsnefndar 03. nóvember 2011

08.11 2011 - Þriðjudagur

Hreppsnefndarfundur fimmtudaginn 3. nóv. 
2011 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.

Á fundinn voru mætt Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríðir Konráðsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir og Bárður Jónasson.

Jafnframt var mættur sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson og ritaði hann fundargerð.

 

Áður en gengið var til dagskrár óskaði oddviti eftir að 6. mál á dagskrá yrði til umfjöllunar í upphafi fundar, en á fundinn var mættur Halldór Jóhannsson, frá Teikn á lofti ásamt fulltrúum úr byggingar- og skipulags- og umhverfisnefnd sveitarfélagsins.

Var það samþykkt samhljóða.

Dagskrá:

1. mál  Á fundinn mætir Halldór Jóhannsson, Teikn á lofti og gerir grein fyrir hugmyndum að nýju deiliskipulagi sorphauga og jafnframt hugmyndum að nýju skipulagi kirkjugarðs og  svæðis umhverfis hann ofl. Fulltrúum skipulags- og bygginganefndar verður boðið að sitja kynninguna.

Á fundinn var mættur Halldór Jóhannsson frá Teikn á lofti.   Jafnframt voru mættir á fundinn fulltrúar í skipulags- og bygginganefnd og formaður umhverfisnefndar.

Halldór gerði síðan grein fyrir hugmyndum að nýju deiliskipulagi á urðunarsvæði Vopnafirðinga.   Í því sambandi var og lögð fram matslýsing vegna deiliskipulagstillögunnar.  

Jafnframt voru lagðar fram hugmyndir og útfærslur af stækkun og lagfæringu á umhverfi á kirkjugarði Vopnfirðinga í þéttbýlinu.

Eftir yfirferð Halldórs urðu fjörugar umræður um fyrirliggjandi hugmyndir og svaraði Halldór fyrirspurnum fundarmanna í þessum efnum.

Hreppsnefnd samþykkti síðan að fela Teikn á lofti að vinna áfram að fyrirliggjandi tillögum og ljúka þeim.

Ennfremur samþykkt að vísa skipulagstillögunum til umfjöllunar í skipulags- og bygginganefnd og umhverfisnefnd.

 

2. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 20. okt.  sl.

Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 20. okt. sl.

Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

3. mál  Fundargerð hafnarnefndar frá 28. okt. sl.

Lögð fram fundargerð hafnarnefndar frá 28. okt. sl.   Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 3. tl. fundargerðarinnar “ kaup á hlutabréfum”.  Lagði hann fram og kynnti samkomulag milli Hafnarsjóðs og Skiphólma dags. 28. okt. sl., varðandi kaup Hafnarsjóðs á hlutabréfum Skiphólma í HB Granda.   Í framhaldi urðu nokkrar umræður um fyrirliggjandi samkomulag og fyrirspurnir sem sveitarstjóri svaraði.

Hreppsnefnd samþykkti síðan samhljóða 3. tl. fundargerðarinnar fyrir sitt leyti.

Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.

4. mál. Fundargerðir stjórnar- og aðalfundar Skiphólma ehf. frá 28. okt. 2011.

Lagðar fram fundargerðir stjórnar og aðalfundar Skiphólma frá 28. okt. sl.   Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 2. tl. fundargerðar stjórnarfundar félagsins og útskýrði málin og svaraði framkomnum fyrirspurnum fundarmanna.

Hreppsnefnd samþykkti síðan fyrir sitt leyti tillögu stjórnar Skiphólma um sölu hlutabréfa sinna í HB Granda til Hafnarsjóðs Vopnafjarðar.

Fundargerð stjórnarinnar að öðru leyti lögð fram til kynningar.

Í aðalfundargerð Skiphólma kemur fram að í aðalstjórn fyrirtækisins voru kjörin: Þórunn Egilsdóttir, Sigríður Konráðsdóttir og Guðrín Anna Guðnadóttir og í varastjórn Bárður Jónasson og Eyjólfur Sigurðsson.

Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.

 

 

 

5. mál.  Fundargerð stjórnar- og aðalfundar Arnarvatns ehf. frá 31. okt. 2011.

Lagðar fram fundargerðir stjórnar- og aðalfundar Arnarvatns ehf.   Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 2. tl. fundargerðarinnar “ Leigusamningur, framlenging” og tillögu félagsins um að fela framkvæmdastjóra að vinna að framlengingu hans.

Hreppsnefnd samþykkti samhljóða þá málsmeðferð.   Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.

Í fundargerð aðalfundar félagsins kemur fram að í aðalstjórn voru kosin: Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson og Bárður Jónasson og í varastjórn Þórunn Egilsdóttir og Sigríður Konráðsdóttir.

Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.

 

6. mál   Bréf Skipulagsstofnunar varðandi staðfestingu á breytingu aðalskipulags Vopnafjarðarhrepps 2006-2026, breytt lega Norðausturvegar, tenging við þéttbýlið.

Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar frá 10. okt. sl., varðandi staðfestingu á breytingu á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006-2026, breytt lega vegar og ný tenging við þéttbýlið í Vopnafirði.

Að þessari staðfestingu hefur verið unnið um nokkurt skeið og er hún grunnur þess að unnt verði að hefjast handa við hina nýju tengingu inn í þéttbýlið, en fyrirhugað er að hefjast handa við hana í upphafi næsta árs.

Erindið sent til upplýsinga til Skipulags- og bygginganefndar.

 

7. mál. Allsherjarnefnd fundur um sorpmál o.fl.

Oddviti gerði grein fyrir fundi Allsherjarnefndar sem haldinn var 3. nóv. sl., þar sem fjallað var um sorphirðumál Vopnfirðinga almennt og hvernig til hefði tekist í þeim efnum frá því að nýtt flokkunarkerfi var tekið í gagnið um síðustu áramót.

Í máli hans kom fram að íbúar og fyrirtæki hefðu staðið sig vel í þátttöku sinni í þessu breytta fyrirkomulagi sorphirðumála á Vopnafirði.  Það sæist best á því að sorp,  sem til urðunar fer hefur minnkað verulega.   Heimilissorp hefði minnkað um tæp 60 % og fyrirtækjasorp um liðlega 46 %.   Annað hefði flokkast frá og farið til endurnýtingar.

Eins og hreppsnefnd hefur ákveðið verður á næstunni haldinn borgarafundur þar sem farið verður yfir sorpmálin og jafnframt er þar miðað við að kynna nýtt deiliskipulag haugasvæðis og nýjar tillögur að stækkun kirkjugarðs Vopnfirðinga.

Fram kom tillaga um að hafa fundinn 15. nóv. nk. og var það samþykkt.

 

8. mál. Bréf Sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytis dags 26. okt. sl. varðandi umsókn um byggðakvóta.

Lagt fram bréf Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins frá 26. okt. sl., varðandi umsókn um byggðakvóta vegna fiskveiðiársins 2011/2012.

Samþykkt að fela sveitarstjóra að senda inn umsókn fyrir Vopnafjarðarhrepp, vegna byggðakvóta 2011/2012.

Erindinu vísað til kynningar í atvinnumálanefnd.

 

9. mál.   Lagt fram bréf Langanesbyggðar dags. 17. okt. sl., varðandi námsvistargjöld grunnskóla.

Lagt fram bréf Langanesbyggðar, varðandi námsvistargjöld í grunnskóla.   Gerð var grein fyrir málinu og viðræðum sem farið hefðu fram milli sveitarfélaganna varðandi þessi mál en liggja skal fyrir samþykki lögheimilissveitarfélags fyrir greiðslu námsvistargjaldanna sé nemandi í námi utan lögheimilissveitarfélags.

Langanesbyggð er með í skoðun að breyta afstöðu sinni í málinu og hefur óskað eftir fresti í málinu.

Sveitarstjóra í samráði við skólastjóra falið að vinna áfram að málinu.

 

 

10. mál.   Erindi Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands frá 27. okt. sl., varðandi framtíð sjóðsins.

Lagt fram erindi Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands frá 27. okt. sl., varðandi fjárframlög sveitarfélaga til sjóðsins.

 

 

 

Lögð fram svofelld tillaga:

“ Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps áætlar að við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2012 verði gert ráð fyrir sambærilegu framlagi og verið hefur til Atvinnuþróunarsjóðs.  Sveitarstjórn telur þó að skoða ætti hvort ekki væri unnt að styrkja stoðir sjóðsins þ.a. hann geti stutt við góðar atvinnuhugmyndir á Austurlandi af meiri krafti en verið hefur.”

 

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum.

 

11. mál. Erindi SSA dags. 22.okt.  sl., varðandi árgjöld sveitarfélaga og fjárhagsáætlun SSA.

Lagt fram erindi SSA dags. 22. okt. sl., varðandi árgjöld sveitarfélaga til SSA.

Samþykkt að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir 2012.

 

12. mál. Erindi Velferðarráðuneytisins dags. 26. okt. sl., varðandi báráttu gegn einelti og sérstakan dag 8. nóv. nk., sem tileinkaður er þessari baráttu.

Lagt fram bréf Velferðarráðuneytisins frá 26. okt. sl., undir kjörorðunum “ Í þínum sporum.  Höldum saman gegn einelti”.

Hreppsnefnd tekur undir mikilvægi þess að taka höndum saman í baráttunni gegn einelti og mælir með því að 8. nóv. nk. verði með einum eða öðrum hætti tileinkaður verkefninu og áfram verði unnið að krafti að þessum málum eins og gert hefur verið. Í þessu sambandi verður dagurinn tileinkaður baráttunni við einelti í stofnunum sveitarfélagsins, skóla, leikskóla og í öðrum deildum sveitarfélagsins verður boðað til sérstaks fundar með öllum starfsmönnum um þessi málefni.

Málsmeðferð þessi var samþykkt samhljóða með öllum atkvæðum.

 

13. mál. Erindi SSA dags. 21. okt. sl., varðandi tilnefningar fulltrúa í tvær samstarfsnefndir.

Lagt fram bréf SSA dags. 21. okt., varðandi tilnefningar í tvær samstarfsnefndir.   Annars vegar er um að ræða svokallaða samstarfsnefnd sem var til undir nafninu Austfirsk eining á yfirstandandi ári og hins vegar er um að ræða sérstaka samgöngunefnd. Kjósa þarf einn aðalmann og einn til vara fyrir hvora nefnd.

Tillaga kom fram um fulltrúa í Austfirska einingu; aðalmaður verði Bárður Jónasson og til vara Björn Hreinsson og í samgöngunefnd verði aðalmaður Þorsteinn Steinsson og til vara Bárður Jónasson.

Fyrirliggjandi tillögur samþykktar samhljóða.

 

14. mál. Drög að samningi um atvinnuátak á Austulandi milli sveitarfélaga Þjóðskjalasafns og Vinnumálastofnunar.  Jafnframt yfirlit yfir opinber störf sem flytja mætti út á landsbyggðina. 

 

Lögð fram samningsdrög milli sveitarfélaga Vinnumálastofnunar og Þjóðskjalasafns varðandi sérstakt atvinnuátak í skráningu skjala. Ennfremur var kynnt yfirlit yfir hugsanlegar greiðslur vegna samningsins.   Miðað hefur verið við að fyrirtækið Blikar ehf. taki að sér verkstýringu og stjórn verkefnis og skaffi vinnuaðstöðu.  Fyrirtækið telur sig þurfa að fá sérstaka greiðslu til þess að standa straum af því.  Í viðræðum við fyrirtækið þyrfti slík greiðsla að vera um 25 þús. kr. á stöðugildi.   Til þess að ná öllum endum saman þyrfti sveitarfélagið hugsanlega að leggja þennan kostnað út miðað við yfirlit yfir kostnað sem kynnt hefur verið hér að ofan.

Hreppsnefnd samþykkir að taka þátt í þessu verkefni og felur sveitarstjóra að vinna áfram að málinu með Blikum ehf., þar sem kannað verði hvort einhverjir fáist af atvinnuleysisskrá til að vinna við viðkomandi skráningarverkefni hjá Þjóðskjalasafninu.

 

15. mál. Bréf HSA dags. 21. okt. sl., varðandi málefni Sundabúðar.

Gerð var grein fyrir bréfi HSA frá 21. okt. sl. og viðræðum, sem í gangi hafa verið varðandi þessi mál.   Jafnframt var gerð grein fyrir kostnaði vegna reksturs Sundabúðar fyrir árið 2010 og reiknuðum halla þess árs.

Oddviti og sveitarstjóri munu funda með fulltrúum Velferðarráðuneytisins um þessi mál á næstunni.    Mikilvægt er að finna lausn mála þannig að óvissu um reksturinn verði létt af.   Slíkt er nauðsynlegt gagnvart starfsfólki og ekki síður þeim, sem þjónustunnar njóta.

16. mál. Ýmis mál og fundargerðir

a) Fundargerð stjórnar SSA frá 18. okt.sl.

Lögð fram til kynningar

b) Stórnarfundur Héraðsskjalasafnsins frá 26. okt. sl. og ósk um tilnefningu fulltrúa sveitarfélaganna í sjórn.

Lagt til að í aðalstjórn verði Ólafur Valgeirsson, Vopnafirði og til vara Páll Baldursson, Breiðdalshreppi.

Samþykkt samhljóða.

c) Breytt fyrirkomulag umsókna um styrki og úthlutanir þeirra á safnliðum á fjárlögum.

Lagt fram til kynningar.
d) Möguleikar á kaupum á víkjandi orku, samskipti Orkusölunnar og Snæfellsbæjar.

Lagt fram til kynningar.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.45

 

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir