Stjórnarfundur Ferðamálasamtaka Vopnafjarðar

10.11 2011 - Fimmtudagur

Fundur Ferðamálasamtaka Vopnafjarðar

09. nóvember 2011, haldinn í Miklagarði kl. 12:00

 

Fundur ferðaþjónustuklasa haldinn miðvikudaginn 09. nóvember 2011 í félagsheimilinu Miklagarði og hófst kl. 12:00.

 

Mætt til fundar: B. Fanney Hauksdóttir, Guðjón Böðvarsson, Sigríður Bragadóttir og Magnús Már Þorvaldsson og tók Magnús eftirfarandi saman.

 

 

Dagskrá:

 

1.      mál: Næstu skref – Forgangsverkefni næstu vikna og mánaða er ráðning starfsmanns og markaðssetning Vopnafjarðar undir forystu FSV. Samtökin eru komin með kennitölu og reikning svo nú er gerlegt að innheimta árgjald. 1.5 milljónir eru til á reikningi, sem til eru komnar í gegnum styrk VAXA – og miðað við samninginn þarf að sýna fram á framgang verkefnis. Mun Fanney hér með ganga frá samningi við stoðstofnunina og í framhaldinu verður 50% greidd enda liggi fyrir samþykkt verkáætlun og verksamningur.

 

Var lagt að Sigríði að taka að sér starfið, sem metið er 25% starf næstu 7 mánuði ca. eða fram til sumars, mán.mótin maí-júní 2012. Eftir nokkurn eftirgang samþykkti Sigríður að taka verkefnið að sér, fram til áramóta til að byrja með og mun njóta fulltingis stjórnar og aðgang að þeim gögnum sem t. a. m. sveitarfélagið getur veitt. Standa vonir til að Sigríður staldri lengur við en í mörg horn er að líta við rekstur ferðaþjónustunnar á Síreksstöðum. Var Sigríður boðin velkomin til starfa með lófataki.

 

Bent var á að hingað komu fulltrúar 10 ferðaskrifstofa í síðasta mánuði, fengu vel unnar upplýsingar um sveitarfélagið í hendur og nákvæma kynningu á því samfara ferðalagi um það. Nýta þarf þau tengsl sem mynduðust með heimsókninni.

 

  1. mál: Auglýsinga- og kynningarmál – Stjórn einhuga um að vanda þurfi mjög til verka og rétt að leita til fagfólks í þeim tilgangi að nýta það fjármagn best sem til skiptanna er. Hugmynd að koma Vopnafirði á framfæri í skjáauglýsingum sjónvarpsstöðvanna, sem hafa gríðarmikið áhorf – skoða þarf málið í samhengi við önnur kynningarmál. Ferðaþjónustuaðilar í Vopnafirði greiði til helminga á móti FSV.

 

Hjalti Stefánsson, kvikmyndagerðarmaður, á mýmörg skot frá Vopnafirði og er reiðubúinn að vinna myndband fyrir okkur gegn vægu gjaldi eða 50.000 krónum. Hvernig sem kynningarmálum er háttað þarf staður eins og Vopnafjörður að minna stöðugt á sig. Hafa í huga að við erum hluti af Markaðsstofu Austurlands, nýta sér það.

 

Heimasíða FSV til umræðu en það er réttmæt ábending að síðan þarf ekki að vera í sömu endurnýjun og fréttasíður sem upplýsingasíða. Magnús tók að sér að kanna hvað aðilar eins og TM Software (síða Vopnafjarðar er vistuð þar) og Teikn, ráðgjöf og hönnun, taka fyrir slíka vinnu. Flipa á heimasíðu sveitarfélagsins er mikilvægt að fá og eins að á heimasíðu samtakanna verði auðvelt að fara inná aðrar Vopnfirskar síður.

 

3.      mál: Önnur mál. Tjaldstæði Vopnafjarðar er allt í senn snoturt, vel staðsett og býður uppá fagurt útsýni – en það er barn síns tíma og þar með allt of lítið. Smæð þess stendur ferðamálum fyrir þrifum auk þess sem bæta þarf aðstöðuna alla. Stjórn FSV er á einu máli að aðgerða er þörf og ályktar um málið:

 

„Stjórn Ferðamálasamtaka Vopnafjarðar hvetur sveitarstjórn að vinna að stækkun tjaldstæðis sveitarfélagsins. Fyrsti kostur er að leita leiða að stækkun þess þar sem það er nú staðsett Með breyttum ferðamáta er tjaldstæðið allt of lítið, stækkun er því óumflýjanleg um leið og aðstæður allar verða betrumbættar“.

 

Árni Róbertsson, kaupmaður í Kauptúni, hefur boðist til að greiða fyrir gönguleiðaskilti, skilti er marka upphaf og endi merktra gönguleiða í Vopnafirði. Vill stjórn koma á framfæri þökk til Árna enda vel boðið. Vinna þarf að málinu í vetur.

 

Fanney vinnur að því að stika út gönguleið innan þorpsins. Setja þarf upp skilti og útbúa bækling hér að lútandi. Rætt hefur verið við allnokkra íbúa um að hús þeirra verði merkt og sagan sögð og verið vel í tekið. Verkefni í vetur.

 

Rætt um merki ferðamálasamtakanna, sem þörf er á að hanna. Til greina kemur að nýta sér drekann en einnig kom fram í umræðunni að nýta sér náttúruna, t. a. m. „Fílinn“. Magnús kom með þá hugmynd að fá nemendur grunnskólans til að taka þátt í samkeppni um gerð merkis og var vel í tekið. Málið er hér með komið á dagskrá.

 

Ákveðið að fundað verði innan skamms og ítrekað að Sigríður starfsmaður hefur aðgengi að öllum aðilum og gögnum sem kunna að gagnast henni í starfinu.

 

 

Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 13:20.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir