Samráðsfundur Menningar- og ferðamálafulltrúa

21.11 2011 - Mánudagur

Samráðsfundur Menningar- og ferðamálafulltrúa

Samráðsfundur haldinn þann 16.11.2011

 Fundarstaður:  Reyðarfjörður

Fundartími: kl. 10.30 – 14.30

Fundarritari – Sigrún Lóa

Mættir:  Ásta, Þórarinn, Sigrún, Alla, Ingibjörg, Hrafnhildur, Hildigunnur, Magnús í síma. Fjarverandi: Signý og Helga

Dagskrá

1.      Ísland- allt árið
Markaðsstofa Austurlands er þátttakandi og lagði 100.000 í verkefnið.

Hvað þarf til að auka ferðamannastraum á jaðartíma á Austurlandi?
Auka framboð á afþreyingu! Þó er á sama tíma verið að skera niður framlög til safna og setra.

·         Afþreyingu að vetrum þarf að kynna betur og setja í áhugaverða pakka, og koma á framfæri við flugfélag, fyrirtæki og ferðaskrifstofur t.d. gæti Austurför komið að því..

·         Teljum að markhópurinn að vetrum séu hópar, hægt að opna söfn og slíkt

·         Fram komu nokkrar tillögur um verkefni sem geta dregið að hópa:

·         Gönguskíðaferðir  og helgarnámskeið væri hægt að byggja upp.

·         Snjóþrúguhlaup

·         Óðinshestar eru með hesta á járnum allt árið.

·         Rætt um vetrarmiðstöð í Laugarfelli, hugsanlega snjósleða o.fl. Náttúruböð og norðurljós...

·         Þarf að leiða mismunandi þjonustuaðila saman og vinna í hönnun pakka.

·         Fjármagn er þó takmarkandi þáttur, erfitt að koma á fót afþreyingu, erfitt fyrstu 5 árin.

·         Taka þarf saman ca 4 daga sögu- og menningarpakka með vetrarblæbrigðum, það þarf að gera fyrir Íslandsstofu.

·         Vörupakka þarf að koma áram á ferðaskrifstofur, þá aðila t.d. sem voru í kynnisferð um austurland í haust.

·          

Búið er að stofna „Framkvæmdasjóð ferðaþjónustunnar“, Landsbankinn leggur inn töluverða upphæð. Um er að ræða vöruþróunarsjóð í tengslum við „Ísland allt árið“ fyrir fyrirtæki. Verður auglýst á næstu dögum. Geta verið möguleikar hér.

.

 

2.      Síðasta sumar – helstu tölur

a.       Gisting kom vel út í sumar, það er aukning í júlí og ágúst, og líklega sept líka.

b.      Á Breiðdalsvík virðist traffík í bæinn hafa aukist, samhliða fleiri möguleikum í afþreyingu. Sama er að gerast á Stöðvarfirði, með komu Salthússins  stoppar fólk lengur og myndar skemmtilegan bæjarbrag. Gott sumar og almenn ánægja á Seyðisfirði.

c.       Mest útlendingar, eru lengur fram á haustið en mjög lítið af Íslendingum.


3.      Útgáfumál 2012

a.       Þjónustukort

                                                              i.      Umræða um að setja inn „highlights“ inn á kortið okkar, litlar myndir t.d.

                                                            ii.      Hvað er „main attraction“ á austurlandi? Hvað er „Vá“? Hvað finnst fólki hér að sé ómissandi fyrir ferðamanninn að sjá?  Getum við valið 10 ómissandi staði?

                                                          iii.      Vilji til að breyta kortinu aðeins, fundarmenn senda hugmyndir á Markaðsstofuna. Ásta vill laga liti og gefa kortinu meiri dýpt, einnig setja myndir við „stjörnusegla“.

                                                          iv.      Kortið klárast alltaf, rennur út, upplag 30.000. Prentunin hefur verið greidd af þeim þremur sem auglýsa, þó stefnan að kortið sé ekki undirlagt auglýsingum. Aðeins aðilar sem eru um allt Austurland (BA, N1 og Lyfja). Prentkostnaður um 500.000 + 200.000 í leiðréttingar, en með endurhönnun kostar það væntanlega ca. 200.000 til viðbótar.  

 

b.      Smábók ( enska og þýska). Hefur kostað um prentun 1.800.000  fyrir 30.000 eintök, með vinnu um 2,5 millj. kr. Þýsk þýðing á texta er tilbúin. Svolítið öðruvísi og efnismeiri en aðrar smábækur. Væri hægt að hafa 20.000 á ensku, 10.000 þýsku.  Kostnaður við það væri likast til svipaður

                                                              i.      Mætti skerpa númer við þjónustustaði td. setja í hring.

                                                            ii.      Má auka lítillega skerpu ( og etv. Stytta texta sumsstaðar?

 

c.       Lokkari VETRAR

                                                              i.      Sameiginlegt kynningarefni fyrir veturinn á Austurlandi? Tengist vöruinnpökkun fyrir veturinn. „Hvað er í boði og hvar er hægt að fá þá þjónustu/afþreyingu...“ Sækja um í hjá VAXA í verkefninu „Austurland í vetur“ pening í sameiginlegt markaðsefni. (Ásta ath snjósleðaferðir ( east highlanders og Jeeptours – með Jöklajeppum? Óðinsferðir, 2 skíðasvæði, vetrarferð í fjarðabyggð, gönguleiðsögn og gönguskíðaleiðsögn (Ísl Alparnir)). 

d.      Vefur – Þýska bætist við. Ferðamálafulltrúar rýna aðeins vefinn og senda athugasemdir. Vefurinn, mikilvægt markaðstól, er hann of flókinn og of mikið efni.?  

e.       Viðburðadagatal

                                                              i.      Sækja saman um styrk í Menningarráð til að útbúa kynningarefni. Hægt að setja helstu viðburði á VisitIceland. Ferðaskrifstofur vilja fá upplýsingar um hátíðir og fasta menningartengda viðburði. Ferðamálafulltrúar senda uppl. um fasta viðburði á east@east.is .

f.       D-kort, væri gaman að gefa út disk, Video og ljósmyndir. Ekki hefur verið til fjármagn í myndatökur. „Ímynd austurlands“ umsókn í VAXA var hafnað. Er lykillinn að ferðamálafulltrúar sveitarfélagana kvitti undir í stað Markaðsstofu Austurlands. Þarf að leggja áherslu á „atvinnuskapandi“.  Eldri umsókn verður send á fundarmenn til skoðunar  og fá tillögur og aftur sótt um hjá VAXA.

4.      Sameiningin

a.       MA eftir áramót -  milar umræður

                                                              i.      Útgáfa eftir áramót  - verða breytingar?

                                                            ii.      Verða félagsgjöld eða á að selja aðilum aðgang?

b.      Upplýsingamiðstöðin – með í sameiningu eða sér?

                                                              i.      Upplýsingamiðstöð/ þjónar öllu Austurlandi

1.      Upplýsingamiðlun

2.      Verslun og bókunarþjónusta

3.      Vefumsjón og dreifiaðili?

                                                            ii.      Vonast til að Upplýsingamiðstöðin verði aðskilin og rekin áfram á gömlu kennitölu Markaðsstofunnar. Geti séð um útgáfu og vef fyrir nýja stofnun/Ferðamálafélag.

                                                          iii.      Fjármögnun eftir sameiningu?  Gera ráð fyrir sömu útgjöldum sveitarfélaga til upplýsingamiðstöðvar.

5.      Önnur mál

·         Kynnisferðin: tókst vel, þegar farnar að berast bókanir frá þeim ferðaskrifstofum sem heimsóttu okkur. Fundarmenn sammála að svona kynnisferðir eru mjög góð markaðssetning.

a.       Flugvallarmál: Áfram unnið að málinu, allir sammála um mikilvægi. Áhugi á að auka samstarf við Akureyri og flugklasann. Á nordurland.is er flipi AIR66 North, þar er t.d bæklingur um Norðurland sem er áhugavert að skoða. Fundarmenn sammála að samvinna geti verið styrkur fyrir alla aðila

b.      Innanlandsmarkaðssetning næsta árs: Það verður sameiginlegt markaðsátak innanlands með markaðsstofunum næsta sumar. Ekki víst að Íslandsperlurnar verði aftur, en sú sýning hefur þó skilað Austurlandi góðri kynningu.

 

Ásta þakkar mjög gott samstarf síðustu 3 árin –og talaði um þann mikla ávinning sem samráðsfundirnar hafa haft fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi.  Fundarmenn þökkuð Ástu samstarfið á liðnum árum.  

 

Fundi slitið kl. 13:30

 

Verkefnalisti

·         Allir: senda upplýsingar um hvað er opið allt árið á Markaðsstofu sem fyrst.

·         Markaðsstofan mun senda á Íslandsstofu og ferðaskrifstofur.

·         SAGA trails verkefni 4 daga sögu- og menningarpakka með vetrarblæbrigðum, það þarf að gera fyrir Sigrún Hlín hjá FMS hefur umsjón!  Markaðsstofan sendir tillögur

·         Númer við þjónustustaði í smábók – gera rauðan hring utan um númerin! Menn virðast eitthvað missa af því.

·         ALLIR: rýna vefinn – ( hvað má missa sig – hvað má bæta)

·         VAXA

o   Hildigunnur – sækja um fyrir vetrarbækling – hið minnsta Seyðisfjörður, Hérað og Firðir.

o   Ímyndarverkefni – sækja aftur endurbætt og nú með öllum kt.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir