Hafnarnefndarfundur haldinn mánudaginn 28. nóv. 2011 kl. 17.00 í félagsheimilinu Miklagarði.
Á fundinn voru mættir Hafþór Róbertsson, Agnar Karl Árnason, Jörgen Sverrisson, Hjörtur Davíðsson og Þorsteinn Halldórsson.
Jafnframt var mættur hafnarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál. Fundargerð hafnarnefndar frá 28. okt. sl.
Lögð fram fundargerð hafnanefndar frá 28.okt. sl.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
2. mál Fjárhagsáætlun hafnarinnar fyrir árið 2012.
Lögð fram fjárhagsáætlun hafnarinnar fyrir árið 2012 eins og hún var lögð fram við fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Hafnarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum og lagði til við hafnarnefnd að áætluninni yrði vísað til samþykktar við síðari umræðu í sveitarstjórn.
Nokkrar umræður urðu um fyrirliggjandi gögn og svaraði hafnarstjóri fyrirspurnum fundarmanna.
Gerðar voru nokkrar breytingar á áætluninni, sem leiddu til 3.900 þús. kr. hækkunar á tekjum og var hafnarstjóra falið að koma þeim til skila.
Hafnarnefnd samþykkti síðan samhljóða að vísa fjárhagsáætlun hafnarinnar til samþykktar við síðari umræðu í hreppsnefnd.
3. mál. Gjaldskrá hafnarinnar
Lögð fram gildandi gjaldskrá hafnarinnar og gerð grein fyrir helstu liðum hennar.
Fram kom tillaga um að nauðsynlegt væri að reikna hana upp til verðlags. Hafnarstjóra og hafnarverði falið að vinna tillögu að nýrri gjaldskrá, sem lögð verði fyrir hafnarnefnd á næsta fundi.
4. mál. Önnur mál.
Engin önnur mál.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.00