Aukafundur hreppsnefndar 29. nóvember 2011

30.11 2011 - Miðvikudagur

Auka hreppsnefndarfundur haldinn þriðjudaginn 29. nóv.
2011 kl. 17.00 í félagsheimilinu Miklagarði.

Mætt Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður Konráðsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir og Bárður Jónasson.

Jafnframt var mættur sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, og ritaði hann fundargerð.

 

Dagskrá:

1. mál. Vinna við gerð fjárhagsáætlunar 2012.

Gerð var grein fyrir tillögum að breytingum áætlunarinnar frá fyrri umræðu og farið yfir mismunandi atriði.

Síðari umræða fjárhagsáætlunar verður 5. des. nk.

 

2. mál Tilboð í Hlutabréf Vopnafjarðarhrepps í HB Granda.

Lagt fram tilboð í hlutabréfaeign Vopnafjarðarhrepps í HB Granda alls 39.559.057 kr. Að nafnverði.   Tilboðið kemur frá Verðbréfafyrirtækinu Virðingu og er dagsett 29. nóv. 2011.

Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum, þar sem fram kemur hvaða verð er boðið fyrir hlutina og hver kostnaður yrði við söluna.

Hreppsnefnd samþykkti samhljóða að fela sveitarstjóra að ganga frá sölunni til samræmis við umræður á fundinum.

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl 18.30





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir