Fundað um kofa í landi Mælifells
30. nóvember 2011 kl. 11:00
Starfsmaður byggingafulltrúaembættisins, Magnús Már, boðaði til fundar í Kaupvangi fulltrúa Mælifellsbræðra, eigendur fjallakofa í landi Mælifells, Ingólf og Steindór Sveinssyni, ásamt formanni skipulags- og bygginganefndar, Hrund Snorradóttur. Bauð Magnús fundarmenn velkomna og gerði í stuttu máli grein fyrir ástæðu fundarins.
Ingólfur kaus að kveða sér hljóðs og útskýrði málið frá sjónarhóli eigenda. Þeir hafi sótt um heimild til þess að staðsetja fjallaskála í landi Mælifells og fengið samþykkt stöðuleyfi fyrir fjallaskála til eins árs á fundi skipulags- og bygginganefndar þann 24. janúar 2011. Skipulagsstofnun gerði, í tölvubréfi dags. 01. apríl 2011, ekki athugasemd við að sveitarstjórn veitti leyfi fyrir umræddum kofa, sem skyldi nýtast jafnhliða sem gagnamannakofi og neyðarskýli. Lögðu þeir bræður áherslu á að verki þeirra væri ólokið og vildu í þessu sambandi vekja athygli á öðrum kofa, enn hærra í landi en þeirra, s. k. Austari símakofi. Hefur málefni hans verið meðhöndlað með samskonar hætti? Málið þekkir starfsmaður bygg.flltr.embættis ekki.
Hvað Mælifellsbræður hyggjast gera er að sækja um heimild til reisa 1.5 metra breiða viðbyggingu við skálann/kofann, sömu lengdar og kofinn þar sem komið verður fyrir anddyri og snyrtingu. Með þessu býðst þeim sem nota vilja korfann, s. s. gangnamenn, færi á að komast á snyrtingu auk húsaskjóls. Er það fjallskilastjóri sem sækir um afnot af húsinu en sem neyðarskýli verður lykill í glerkassa að utanverðu. Á þá hlutaðeigandi alltaf aðgengi að skjóli í anddyri kofans en þurfi hann lengra verður talnabox staðsett við inngöngudyr ásamt símanúmerum þeirra er talnarununa kunna. Símasamband úr skýlinu er með ágætum. Þegar inn í húsið er komið eru upplýsingar um hvernig koma má hita á ofna og önnur praktísk atriði.
Ofangreind vinna verður unnin sumarið 2012 og þegar að hausti gefst gangnamönnum færi á að nýta sér kofann. Sveitarfélagsins er að samþykkja heimildina um stækkun, sem augljóslega er allra hagur, en að öðru leyti er það til forsætisráðuneytis að sækja heimildar til áframhaldandi stöðuleyfis.
Gera Mælifellsmenn við það athugasemd að í bréfi Skipulagsstofnunar, dags. 31. október 2011, skuli vera staðhæft að pallur sé umhverfis kofann. Pallur var reistur við sunnan- og vestanverða hlið kofans en tóftir gamla Mælifellsbæjarins eru norðan- og austanvið kofann, svo ekki var farið frekar inn í tóftirnar. Eru kofaeigendur síðan reiðubúnir til að leggja sitt af mörkum til að hefta uppblástur á örfoka landi utan tófta og almennt að virða viðkvæma náttúruna.
Niðurstaða fundar er að eigendur skálans/kofans leggja fram teikningar hér að lútandi ásamt erindi til skipulags- og bygginganefndar þar sem heimildar til viðbyggingar er óskað. Að fengnu samþykki sveitarfélagsins munu eigendur snúa sér til forsætisráðuneytisins og æskja heimildar til framtíðar fyrir skálann þar sem hann er að finna nú við gömlu bæjartóftir Mælifellsbæjarins.
Samþykkt að uppkast að bréfi starfsmanns til Skipulagsstofnunar verði sent þeim bræðrum áður en það fer frá honum. Formaður fær það venju samkvæmt.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 11:45.