Fundargerð hreppsnefndar 05. desember 2011

07.12 2011 - Miðvikudagur

Hreppsnefndarfundur haldinn mánudaginn 5. des.  
2011 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.

 

Á fundinn voru mætt Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson, Einar Björn Kristbergsson, Sigríðir Konráðsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Kristján Guðjónsson og Bárður Jónasson.

Jafnframt var mættur sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson og ritaði hann fundargerð.

Dagskrá:
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 17. og 29. nóv. sl.

Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 17. og 29. nóv. sl.

 

Fundargerðirnar síðan samþykktar samhljóða.

2. mál  Fundargerð hafnarnefndar frá 28. nóv. sl.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

3. mál. Fundargerð húsnæðisnefndar frá 28. nóv. sl.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

4. mál.  Fundargerð fræðslunefndar frá 24. nóv. sl.

 

Gerð var fyrirspurn vegna fjárveitingar til Tónlistarskóla.   Oddviti svaraði framkominni fyrirspurn og gerði grein fyrir því að ekki væri gert ráð fyrir frekari hækkun launa til Tónlistarskólans en fram kemur í fjárhagsáætlun fyrir árið 2012.  Heldur yrði reynt að auka fjölbreytni kennslunnar með sérstökum samningum við kennara sem koma tímabundið og kannaðir möguleikar á samvinnu við tónlistarskóla nágrannasveitarfélaganna.

 

Minnihluti hreppsnefndar lagði fram svofellda bókun:” Við tökum undir athugasemdir fræðslunefndar varðandi áætluð fjárframlög til Tónlistartónlistarskólans.

Við teljum mikilvægt að ráðinn verði annar tónlistarkennari eins og fræðslunefnd hefur margoft óskað eftir.”

 

Sigríður E. Konráðsdóttir (sign)

Einar Björn Kristbjörnsson (sign)

 

Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.

 

 

5. mál   Álagningarreglur fasteignagjalda fyrir árið 2012

Lagðar fram svoffelldar tillögur að álagningu fasteignagjalda, sem einnig höfðu verið til umfjöllunar á fundi hreppsnefndar 17. nóv. sl.:

 

„Álagning fasteignagjalda 2012 verður ákveðin með eftirfarandi hætti.

I.                     Hreppsnefnd Vopnafjarðar samþykkir að fasteignagjöld fyrir árið 2012 verði lögð á sem hér segir:

a)       Fasteignaskattur á :

1)   Íbúðarhúsnæði  og bújarðir.                  0,55   %   af heildarfasteignamati

2)   Atvinnuhúsnæði  og annað húsnæði.    1,65 %   af heildarfasteignamati

3)   Sjúkrastofnanir, skólar, heimavistir,

      leikskólar, íþróttahús og bókasöfn        1,32 %   af heildarfasteignamati

 

b)       Vatnsgjald og holræsagjald:

 

1.        Vatnsgjald nemi 0,3 % af fasteignamati húss.

 

·         Aukavatnsgjald skv. mæli verði kr. 34 fyrir hvern rúmmetra vatns.

 

2.        Holræsagjald nemi 0,2 % af heildarfasteignamati.  

 

c)       Lóðarleiga

Lóðarleiga verði 2,0 % af fasteignamati allra lóða á Vopnafirði.

 

Gjalddagar fasteignagjalda 2012  verða 8 og verða þeir  15. febrúar 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst og 15. september.   Eindagi verði 30 dögum síðar. 

 

                  Athugið!    Ef fjárhæðir til innheimtu eru lágar er þeim ekki dreift á  átta gjaldaga, heldur færri.

                      Hreppsnefnd heimilar með stoð í 4. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna  sveitarfélaga að fella niður fasteignaskatt elli- og örorkulífeyrisþega af eigin íbúð á eftirfarandi hátt.   Niðurfelling fasteignaskatts skal vera tekjutengd.   Tekjuviðmiðun eru árstekjur 2011 skv. skattframtali 2012:

 

a)       Einstaklingar

                   Brúttótekjur 2011 allt að kr.  2.245.799            100% niðurfelling

                   Brúttótekjur 2011 allt að  kr. 3.111.523                50 %  niðurfelling

 

b)       Hjón:

                   Brúttótekjur 2011 allt að kr. 3.328.327           100 % niðurfelling

                   Brúttótekjur 2011 allt að kr.3.708.112                  50 % niðurfelling

 

Við fráfall maka eða sambýlings skal fasteignaskattur af íbúðarhúsnæði, sem fjölskylda hins látna ( hinnar látnu) á og býr í felldur niður að fullu fyrsta árið en að hálfu annað árið eftir fráfall.

Búi fullvinnandi einstaklingur (eða hjón) inni á heimili ellilífeyrisþega, fellur fasteignaskattur ekki niður.

Hafi veruleg tekjulækkun orðið hjá ellilífeyrisþega milli áranna 2011 og 2012 hefur hreppsnefnd heimild til að taka tillit til þess við niðurfellingu fasteignaskatts, berist umsókn um slíkt.

Sömu reglur skulu gilda um niðurfellingu fasteignaskatts hjá öryrkjum með fulla örorku.

Falli aðstæður ekki undir þær reglur sem að framan greinir skal hreppsnefnd ákveða um lækkun eða niðurfellingu.

 

II.                   Hreppsnefnd Vopnafjarðar samþykkir á grundvelli laga nr. 81./ 1988 IV. kafla 22. gr., að leggja á sérstakt sorphirðu og sorpeyðingargjald á hverja íbúð á Vopnafirði á árinu 2012.   Hvort gjald um sig skal vera kr. 10.500 á íbúð eða samtals 21.000   Innheimta skal gjaldið með fasteignagjöldum og eru gjalddagar þeir sömu.

Um gjöld að öðru leyti fyrir sorphirðu og meðhöndlun úrgangs á Vopnafirði fer samkvæmt samþykktum og gjaldskrá sem Vopnafjarðarhreppur hefur sett sér og tóku gildi á árinu 2011.  Gögn þessi má finna á heimasíðu sveitarfélagsins.“

 

Sveitarstjóri gerði grein fyrir tillögunum og lagði til að þær yrðu samþykktar.

 

Eftir umræður voru fyrirliggjandi tillögur samþykktar samhljóða með 7 atkvæðum.

 

6. mál. Þjónustugjaldskrár-hækkanir-.

Lagðar fram tillögur að gjaldskrá fyrir leikskólagjöld, Félagsheimilið Miklagarð, Skólamötuneyti, Bókasafn, íþróttahús og vegna hunda- og kattahalds.

Gerð var grein fyrir fyrirliggjandi tillögum að gjaldskrám.

 

Hreppsnefnd samþykkti síðan fyrirliggjandi tillögur samhljóða með 7 atkvæðum.

 

7. mál. Fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps A- og B hluta fyrir árið 2012.- Síðari umræða-

Fjárhagsáætlun var tekin til fyrri umræðu 17. nóv. sl.   Milli umræðna hafa verið haldnir vinnufundir um fjárhagsáætlun, sem allir hreppsnefndarmenn hafa tekið þátt í.   Vonast er til að þess að fyrir tilstilli þessarar vinnu verði fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 betri og nákvæmari en hún ella hefði orðið.

Sveitarstjóri lagði fram breytingartillögur, sem gerðar hafa verið milli umræðna á frumvarpi til fjárhagsáætlunar.  Skýrði hann breytingarnar og lagði síðan fram nýtt málaflokkayfirlit eftir breytingar, rekstrarreikning samstæðunnar, sjóðsstreymi og efnahagsreikning.   Öll þessi gögn tóku mið af þeim breytingartillögum, sem unnar höfðu verið milli umræðna.

 

Þá var greint frá því að milli umræðna hefði tekist að selja öll hlutabréf sveitarfélagsins í HB Granda og hefðu þau verið seld á genginu 12,1, en salan hafði verið samþykkt samhljóða á aukafundi sveitarstjórnar 29. nóv. sl.

 

Sala þessi hefur veruleg áhrif á skuldastöðu sveitarfélagsins til batnaðar og breytir fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 allmikið.

 

Lögð voru fram gögn sem sýna breytingar, sem verða á fjárhagsáætlun 2012, vegna þessarar sölu hlutabréfa á yfirstandandi ári.

Sveitarstjóri gerði grein fyrir breytingunum og lagði fram breytingarskjal sem greinir frá breytingum sem verða á fyrirliggjandi frumvarpi að fjárhagsáætlun 2012 fyrir tilstilli umgetinnar hlutabréfasölu.  Jafnframt var lagt fram málaflokkayfirlit yfir rekstur Vopnafjarðarhrepps árið 2012 miðað við þessar breytingar, rekstrarreikningur samstæðunnar, sjóðsstreymi og efnahagsreikningur.

 

Að lokinni yfirferð sinni lagði sveitarstjóri til að fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2012 yrði samþykkt að teknu tilliti til fyrirliggjandi gagna og breytinga, sem kynntar voru á fundinum.  

 

Samkvæmt sjóðsstreymi er rekstrarafgangur samstæðu Vopnafjarðarhrepps 90,6 m.kr. og veltufé frá rekstri 149,5 m.kr.   Í sjóðsstreymi kemur einnig fram að áætlað er að greiða skammtímaskuldir að fjárhæð 28,5 m.kr., fjárfesta fyrir 67,7 m.kr. og greiða afborganir langtíma lána að fjárhæð 71,3 m.kr.   Engin ný lán verða tekin til þess að ljúka öllum þessum  greiðslum heldur er þetta allt greitt af sjálfsaflafé og gengið á handbært fé, sem verður í árslok, ef allt gengur upp 59,6 m.kr.

 

Jafnframt er boðað í áætluninni að heildarskuldir sveitarfélagsins lækki umtalsvert frá ársreikningi 2010 en þá voru skuldir sveitarfélagsins 183 % af heildartekjum en verða samkvæmt fyrirliggjandi áætlun um 90 % heildartekna.   Hér er því um mikil umskipti á greiðslustöðu sveitarfélagsins að ræða, sem auðveldar sveitarfélaginu til muna að sinna verkefnum sínum á komandi árum.

 

Fyrir fundinum lá einnig greinargerð sveitarstjóra með fjárhagsáætluninni eins og hún er kynnt hér í dag með áorðnum breytingum.  Í greinargerðinni segir meðal annars:

 

“Í áætluninni er lögð höfuðáhersla á að sinna allri grunnþjónustu sveitarfélagsins eins vel og nokkur kostur er.   Framkvæmdir eru lágmarkaðar, enda þótt nauðsynlegt sé að taka á tilteknum verkefnum. 

Frá hruni má segja að framkvæmdir hafi nánast verið stöðvaðar og allt kapp lagt í að lækka skuldir eins og frekast er kostur. 

Í þessari áætlun er þó gert ráð fyrir  67,7  m.kr. fjárfestingu nettó, en nauðsynlegt er m. a. að ráðast í lagfæringar á vatnsveitu, ljúka leikskóla, gera gangstéttir, malbika o. fl.   Sérstaklega þarf þó að fara yfir forgangsröðun þessara verkefna.  

Með samvinnu við forstöðumenn deilda og stofnanna á yfirstandandi ári hefur verið reynt að hagræða sem kostur er í rekstri.   Þessi vinna mun leiða til sparnaðar á komandi ári án þess að unnið sé eftir flötum niðurskurði útgjalda í heild.

 

Áætlun þessi tekur einnig mið af því að á yfirstandandi ári hefur tekist að lækka skuldir um nálægt 400 m.kr. þ.a. að skuldir breytast úr því að vera 183 % af heildartekjum sveitarfélagsins samkvæmt ársreikningi 2010  í að vera rétt um 90 % miðað við fyrirliggjand fjárhagsáætlun ársins 2012, sem léttir verulega greiðslubyrði sveitarfélagsins til framtíðar.   Þetta tókst með því að selja eignir, sem sveitarfélagið átti og með aðhaldssömum rekstri. 

Hér er verið að tala um mikið gæfuspor fyrir rekstur sveitarsjóðs.   Sökum þessa er unnt að greiða niður ennfrekar langtíma lán á næstu árum en orðið er og vinna nauðsynlegar framkvæmdir án þess að taka ný lán.”

 

All nokkrar umræður urðu á fundinum um fyrirliggjandi áætlun og gögn, þar sem fundarmenn lýstu sjónarmiðum sínum á fyrirliggjandi fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps A -og B huta.

Minnihluti hreppsnefndar lýsti óánægju með það að fjárveiting til Tónlistarskólans væri skorin niður í fjárhagsáætlun 2012 frá því sem er á yfirstandandi ári.   Oddviti gerði grein fyrir því að ekki stæði til að hækka fjárveitingu til skólans að svo stöddu.   Heldur yrði reynt að sinna skólahaldi sem best með því formi sem er í dag og styrkja það með samningum um lausakennara og samvinnu við nágrannasveitarfélögin ef kostur væri.

 

Minnihluti sveitarstjórnar lagði síðan fram svofellda bókun:

” Við teljum það algerlega óásættanlegt að ekki sé gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun Vopnafjarhrepps að ráða annan tónlistarkennara við Tónlistarskólann.  Það er mikil afturför að ekki sé boðið upp á fjölbreytt tónlistarnám í sveitarfélaginu.”

 

Sigríður E. Konráðsdóttir (sign)

Enar Björn Kristbergsson (sign)

 

Að svo búnu var gengið til atkvæða um fyrirliggjandi tillögu sveitarstjóra um að samþykkja fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps A- og B-hluta fyrir árið 2012 með áorðnum breytingum eins og þeim er lýst í fyrirliggjandi gögnum.

 

Fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2012 var síðan samþykkt með 5 atkvæðum og 2 sátu hjá.

 

 

 

 

8. mál.   HB Grandi sala hlutabréfa

 

Kynnt kvittun vegna sölu hlutabréfa HB Granda, sem voru í eigu Vopnafjarðarhrepps.   Gengið hefur verið frá sölu allra bréfa Vopnafjarðarhrepps á genginu 12,1 miðað við 2. des. sl.

Salan var samþykkt samhljóða á aukafundi sveitarstjórnar 29. nóv sl. og sveitarstjóra falinn frágangur málsins.

 

Á fundinum var einnig gengið frá endanlegri undirskrift sveitarstjórnar, á sölusamningi um söluna.

Fundarmenn lýstu ánægju með söluna og voru sammála því að nýta söluandvirðið að mestum hluta til niðurgreiðslu skulda sveitarfélagsins.

 

9. mál. Framhaldsskóladeild Vopnafirði.-Skipun undirbúningsnefndar.-

Málið var til umföllunar á fundi sveitarstjórnar 17. nóv. sl.

 

Oddviti gerði grein fyrir málinu og lagði fram tillögu um skipun í nefndina.   Í nefndinni verði:   Stefán Már Gunnlaugsson, Sigríður Elva Konráðsdóttir og Kristín Jónsdóttir.

 

Fyrirliggjandi tillaga var síðan samþykkt samhljóða.

 

10. mál. Ýmis mál og fundargerðir

a) Bréf Fjarðarbyggðar dags. 25. nóv. sl., varðandi Atvinnueflingarsjóð Austurlands.

Lögð fram til kynningar

b) Bréf æskulýðsfélags Hofsprestakalls dags 30 nóv. sl., þar sem þakkaðir er stuðningur sveitarfélagsins við félagið.

Lagt fram til kynningar.

c) Héraðsskjalasafn Austurlands bréf dags. 28. nóv. Sl., stofnsamþykktir og aðalfundargerð.

Hreppsnefnd samþykkir samþykktirnar fyrir sitt leyti.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.45

 

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir