Fundargerð hreppsnefndar 15. desember 2011

18.12 2011 - Sunnudagur

Hreppsnefndarfundur var haldinn fimmtudaginn 15. des. 2011 kl. 16.00 í Kaupvangi.

Mætt voru Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson, Bárður Jónasson, Fjóla Valsdóttir, Kristján Guðjónsson, Sigríður Konráðsdóttir og Eyjólfur Sigurðsson.

Jafnframt var mættur sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.

Dagskrá:

1.       Mál.  Fundargerð hreppsnefndar 5. des. sl.

Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 5. des sl.

Fundargerðin síðan samþykkt.

2.      Mál.   Þriggja ára fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps.-Fyrri umræða.-

Lögð fram drög að  þriggja ára áætlun A- og B-hluta Vopnafjarðarhrepps fyrir árin 2013-2015.  Í gögnunum kemur fram rekstrarreikningur áranna 2012-2015, efnahagsreikningur og sjóðsstreymi fyrir sömu ár.   Í sjóðstreymi kemur fram að ráðgert er að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir er liðlega 100 m.kr. og þegar leiðrétt hefur verið fyrir afskriftir er hreint veltufé frá rekstri um 150 m.kr. öll árin.

Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum og helstu forsendum.

Lagði hann síðan til að áætluninni yrði vísað til síðari umræðu í hreppsnefnd.

Nokkrar umræður urðu um fyrirliggjandi áætlun Vopnafjarðarhrepps til næstu þriggja ára.   Sveitarstjóri svaraði framkomnum fyrirspurnum.

Að því loknu var samþykkt samhljóða að vísa áætluninni til síðari umræðu í sveitarstjórn.

 

3.      Mál.   Atvinnueflingarsjóður Vopnafjarðar.-   Undirbúningur að stofnun-

Lögð fram drög að stofngögnum fyrir Atvinnueflingarsjóð Vopnafjarðar.   Farið var yfir gögnin og velt upp ýmsum spurningum varðandi fyrirkomulag og rekstur svona sjóðs.

Fundarmenn töldu allir æskilegt að ganga frá stofnun Atvinnueflingarsjóðs.

Fundarmenn samþykktu að fela sveitarstjóra í samvinnu við atvinnumálanefnd og KPMG að ganga frá endanlegum stofngögnum og stofnun Atvinnueflingarsjóðs Vopnafjarðar.

 

4.      Mál.   Bréf Skipulagssofnunnar frá 1. des. sl., varðandi vegaframkvæmdir við Selá.

Gerð grein fyrir bréfi Skipulagsstofnunar frá 1. des. sl., varðandi vegaframkvæmdir við Selá.    Jafnframt lagður fram tölvupóstur frá Teikn á lofti, þar sem lýst er hvernig standa skal að málum í þessu sambandi.

Nokkrar umræður urðu um þetta og  töldu fundarmenn að ekki væri gott að láta málin ganga fram með þessum  hætti.

Samþykkt var samhljóða að vísa erindinu til afgreiðslu Skipulags- og byggingarnefndar. 

 

 

 

 

5.      Mál.   Sögufélag Vopnafjarðar bréf dags. 16. nóv. sl.

Lagt fram bréf Sögufélags Vopnafjarðar dags. 16. nóv. sl., þar sem óskað er eftir stuðning Sveitarstjórnar við að endurlífga félagið og styðja við söfnun gagna fyrir ritun sögu Vopnafjarðar.

Hreppsnefndarmenn tóku vel í erindið og fólu oddvita og sveitarstjóra að ræða við bréfritara um framvindu málsins.

 

6.      Mál ýmis bréf og erindi

a)       Bréf sveitarfélagsins Skagafjarðar dags. 30. nóv. sl., varðandi ályktun vegna tillagna frá starfshópi Sjávarútvegsráðherra.

Lagt fram til kynningar.

b)      Fundargerð stjórnar Brunavarna á Austurlandi frá 8. des. sl.

Lögð fram til kynningar.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.10

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir