Stjórnarfundur Ferðamálasamtaka Vopnafjarðar 05.01.2012

06.01 2012 - Föstudagur

Fundur stjórnar Ferðamálasamtaka Vopnafjarðar

05. janúar 2012, haldinn í Miklagarði kl. 12:00

 

Fundur stjórnar Ferðamálasamtaka Vopnafjarðar var haldinn fimmtudaginn 05. janúar 2012 í félagsheimilinu Miklagarði og hófst kl. 12:00.

 

Mætt til fundar: B. Fanney Hauksdóttir, Magnús Már Þorvaldsson og Sigríður Bragadóttir. Tók Magnús eftirfarandi saman.

 

 

Dagskrá:

 

Í upphafi fundar voru stoðstofnanir Austurlands til umræðu en n. k. mánudag fara Sigríður og Magnús ásamt fleirum til fundar stjórna stoðstofnana en á þeim fundi verður m. a. gerð grein fyrir verkefnum stoðstofnana 2012, starfsmanna- og launastefna rædd, fjármál, stjórnun o. fl. Sitt sýnist hverjum um þá breytingu sem í vændum er en góð reynsla er af núverandi formi Markaðsstofu Austurlands, sem missir forræði sitt undir stoðkerfið með verknefisstjóra og engan framkvæmdastjóra.

 

Sigrún Lóa er þegar ráðin í starf verkefnisstjóra MA en ráða þarf annan og höfum við fyrirtaks fulltrúa þar sem B. Fanney er og hvers vegna ekki að leggja það til að hún verði valin til starfsins – með staðsetningu á Vopnafirði vel að merkja. Verkefni fyrir Magnús og Sigríði að vinna.

 

Formaður fór síðan yfir stöðu mála en sem kunnugt er fengu samtökin 1.5 mkr. samþykktar frá VAXA og 300 þús. til kvikmyndagerðar úr Atvinnuþróunarsjóði Austurlands. Þessa fjármuni þarf að nýta vel en þegar hefur verið haft samband við Hjalta Stefánsson, myndatöku- og kvikmyndagerðarmann, um gerð auglýsingamynda fyrir Vopnafjörð. Er þess að vænta að vel verði vandað til verka enda Hjalti ákaflega hæfur maður. Stefnt verður að því að gera mislangar myndir allt eftir hver tilgangurinn er.

 

Sigríður hefur verið starfsmaður FMV sl. vikur og verður eitthvað áfram en fyrr en síðar þarf að finna nýjan starfsmann enda í nógu að snúast í eigin rekstri. Fanney verður ekki án verkefna á komandi mánuðum og þarf að geta treyst á aðra stjórnarmenn. Fanney hefur fengið samþykkt sem BA verkefni að vinna að úttekt á sérstöðu Vopnafjarðar. Í framhaldi verður unnin stefnumótun er byggir á niðurstöðu BA verkefnis hvar verður til fólks í ferðageiranum leitað. Eru allir að róa til sömu áttar? Magnús mun leggja Fanney til skýrslu Jakobs, „Vopnfirðingar virkja“, eiga við hana samtal auk vinnu Ólafs B. Valgeirssonar o. fl. Vinnist í mars – apríl 2012.

 

Rætt um fuglaskoðun en talið er að hér sé grundvöllur fyrir að gera út á hana. Leita til þeirra sem náð hafa árangri á þessu sviði, svo sem Djúpivogur. Eins mun Ólafur hafa unnið skólaverkefni er varðar fuglaskoðun. Rætt hver gæti annast þetta verkefni, Pétur í Teigi nefndur til sögunnar.

 

Sæluhús hafa lokið verkefni sínu, má flytja þau og nýta í annað? Hugmynd að fá slík hús sem fuglaskoðunarhús. Vel þess virði að skoða.

 

Fanney bar upp þá fyrirspurn hvort hægt væri að koma flipa á heimasíðu sveitarfélagsins sem beinlínis tengist FMV. Telur Magnús það ekkert mál en mikilvægt er að flipinn, reiturinn, sé nýttur og standi ekki vikum saman án tilgangs – fólk hættir að fara inn á ef svo. Reiturinn gæti þjónað ferðamálum almennt, innihaldið t. a. m. viðburðadagatal en þá er líka mikilsvert að allir hlutaðeigandi séu duglegir að senda inn viðburði sína.

 

Gönguleiðamerkingar þarf að klára en staurar munu vera komnir við þær gönguleiðir sem unnið var að merkingum á sl. sumar. Vinna þarf texta og myndir við hverja gönguleið en merkingar Vegagerðar, sem Magnús hefur með höndum í samvinnu við Halldór Jóhannsson, eru annars eðlis.

 

Boðað verður til félagsfundar n. k. þriðjudag kl. 17:00 í Miklagarði þar sem gerð verður grein fyrir stöðu mála og komandi verkefnum. Kallað eftir stöðu verkefna sem hinir ýmsu félagar tóku að sér að vinna.

 

Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 12:50.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir