Hreppsnefndarfundur verður haldinn fimmtudaginn 5. janúar 2012 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.
Mætt voru á fundinn Þórunn Egilsdóttir, Hilmar Jósefsson, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður E. Konráðsdóttir, Fjóla Valsdóttir. Guðrún Anna Guðnadóttir og Bárður Jónasson.
Jafnframt var mættur, sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 15. des. sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 15. des. sl.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða með 7 atkv..
2. mál. Fundargerð hafnarnefndar frá 22. des. sl.
Lögð fram fundargerð hafnarnefndar frá 22. des. sl. Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 2. tl. fundargerðarinnar “Gjaldskrá”. Gerði hann grein fyrir tillögu hafnarnefndar um hækkun gjaldskrár.
Hreppsnefnd samþykkti síðan samhljóða tillögu hafnarnefndar um gjaldskrárhækkun með 7 atkv.
3. mál. Þriggja ára áætlun Vopnafjarðarhrepps áranna 2013-2015.-Síðari umræða.-
Fyrir fundinum lá þriggja ára áætlun Vopnafjarðarhrepps A- og B-hluta ásamt greinargerð sveitarstjóra með áætluninni. Áætlunin var tekin til fyrri umræðu á fundi hreppsnefndar 15. des. sl. og var þá vísað til síðari umræðu í hreppsnefnd.
Lögð var fram þriggja ára áætlun ásamt smávægilegum breytingum, sem gerðar hafa verið á henni milli umræðna. Jafnframt lögð fram greinargerð sveitarstjóra með áætluninni, þar sem gerð er grein fyrir helstu forsendum áætlunarinnar og þeim markmiðssetningum sem fram eru settar í henni.
Sveitarstjóri gerði síðan grein fyrir fyrirliggjandi gögnum og í máli hans kom m.a. fram að:
„Áætlun þessi tekur mið af því að stigin hafa verið stór skref á árinu 2011 í niðurgreiðslu lána sveitarfélagsins. Í fjárhagsáætlun ársins 2012 er einnig gert ráð fyrir því að halda áfram á þeirri braut. Af þessum sökum verður rekstrarniðurstaða samstæðunnar betri en ella væri þar sem fjármagnskostnaður lækkar verulega. Þriggja ára áætlun sýnir að áfram skal halda á þessari braut. Hreint veltufé frá rekstri verður á bilinu 152,6 m.kr. til 166,9 m.kr., sem er 24,4 %-26,2 % af heildartekjum, sem verður að teljast ásættanlegt.
Öll árin 2013-2015 er gert ráð fyrir að hreint veltufé frá rekstri dugi vel fyrir öllum fjárfestingum og niðurgreiðslu þeirra lána sem greiða þarf niður. Miðað við lánamassa sveitarfélagsins eins og hann er í dag eru afborganir ársins 2013 72,3 m.kr. ársins 2014 56,5 m.kr. og ársins 2015 48,6 m.kr. Hér er gert ráð fyrir að greiða lán hraðar niður en nauðsynlegt er. Á hverju ári tímabilsins verða aukalega greidd niður lán að fjárhæð 40 m.kr., hvert ár. Þrátt fyrir þetta er gert ráð fyrir að fjárfestingar á tímabilinu verði um það bil 10 % heildartekna á áætlunartímabilinu. Svigrúm sveitarfélagsins til ýmisra aðgerða er þó töluvert mikið meira þar sem handbært fé er verulega jákvætt allt tímabilið og er 52,0 m.kr. í árslok 2015. Af þessu sést að svigrúm sveitarfélagsins til frekari fjárfestinga eða fjárfrekra aðgerða er talsvert umfram það sem ráðgert er.
Með þessu móti er farin varfærin leið og miðað við að eiga borð fyrir báru komi upp óvænt útgjöld, sem ekki eru fyrirséð eða ef forsendur fjármála þjóðarskútunnar bresta eins og við erum brennimerkt af eftir fjármálakrísuna sem við höfum upplifað frá árinu 2008.
Í ársreikningi 2010 voru skuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins 183 % af heildartekjum, sem er töluvert umfram þau viðmiðunarmörk sem sveitarfélögum eru sett í nýjum sveitarstjórnarlögum en þar er miðað við að þetta hlutfall megi helst ekki fara yfir 150 % markið. Mörg sveitarfélög eru langt yfir þessu marki og í nýju sveitarstjórnarlögunum er gefinn 10 ára aðlögunartími fyrir sveitarfélögin að ná því að fara niður í eða niður fyrir þetta mark. Hér er gengið mun hraðar til verks með sölu eigna og aðhaldi og hagræðingu í rekstri og við það miðað að strax á árinu 2012 verði þetta hlutfall komið í 90 % og lækki síðan í 72,4 % 2013, 56,6 % 2014 og verði í lok tímabils 2015 42,1 %. Af þessu sést að umskiptin eru mikil, sem gefur sveitarfélaginu verulegt andrými inn í framtíðina til þess að sinna skyldum sínum vel og sjá til þess byggja upp og viðhalda mannvirkjum sveitarfélagsins með ásættanlegum hætti án þess að taka lán. Stefna sú sem sett er fram í áætluninni mun til lengri tíma litið skila betri og meiri þjónustu til íbúanna en áður hefur verið unnt að veita.
Gleðilegt er að geta nýtt fjármuni sem áður fóru í fjármagnskostnað til þess að byggja upp betri þjónustu við íbúa og fyrirtæki í sveitarfélaginu.”
Að lokinni yfirferð sinni lagði sveitarstjóri til að fyrirliggjandi þriggja ára áætlun sveitarfélagsins yrði samþykkt eins og hún liggur fyrir á fundinum hér í dag við síðari umræðu.
Nokkrar umræður urðu um fyrirliggjandi áætlun og gögn og svaraði sveitarstjóri framkomnum fyrirspurnum.
Fyrirliggjandi áætlun ásamt greinargerð var síðan samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
4. mál Norðausturvegur, ný tenging við þéttbýli Vopnafjarðar. Umsókn um framkvæmdaleyfi.
Lagt fram bréf Vegagerðar ríkisins frá 21. des. sl., þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi fyrir nýrri innkomu í þéttbýli Vopnafjarðar.
Hreppsnefnd fagnar framkomnu erindi og vísar því til afgreiðslu í skipulags- og byggingarnefnd.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
5. mál. Bréf Sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytisins frá 21. des. sl., varðandi byggðakvóta 2011/2012.
Lagt fram bréf Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins frá 21. des. sl., þar sem tilkynnt er um úthlutaðan byggðakvóta til Vopnafjarðar á fiskveiðiárinu 2011/2012. Alls er úthlutað til Vopnafjarðar 221 þorskígildistonni.
Jafnframt eru lagðar fram reglugerðir um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga og um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012.
Ennfremur var lagt fram yfirlit þar sem fram kemur hvernig tekist hefur að úthluta byggðakvóta fiskveiðiársins 2010/2011 niður á báta í Vopnafirði.
Nokkrar umræður urðu um fyrirliggjandi gögn.
Að svo búnu var málinu vísað til tillögugerðar í atvinnumálanefnd sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
6. mál. Bréf Skipulagsstofnunar frá 19. des. sl., varðandi tillögu að deiluskipulagi við Búðaröxl.
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunnar frá 19. des. sl., varðandi matslýsingu að deiliskipulagi athafna- og urðunarsvæðis við Búðaröxl. Í bréfinu eru gerðar nokkrar athugasemdir varðandi matslýinguna og samræmi hennar við aðalskipulag sveitarfélagsins og jafnframt bent á tilkynningarskyldu, vegna endurnýjunar starfsleyfis urðunarstaðar skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.
Talsverðar umræður urðu um þessi mál og í framhaldi samþykkti hreppsnefnd að fela sveitarstjóra að svara bréfi Skipulagsstofnunar og koma málinu í það ferli sem óskað er eftir.
7. mál. Beiðni Vopnafjarðarhrepps um gerð samnings við Menntamálaráðuneytið, vegna fræða- og þekkingarseturs í Kaupvangi.
-Samningur-
Lagt fram bréf Vopnafjarðarhrepps frá 28.nóv. sl., þar sem óskað er eftir því að gerður verði samningur milli Vopnafjarðarhrepps og Menntamálaráðuneytisins um starfsemi fræða -og þekkingarseturs á Vopnafirði.
Hugmyndin með slíkum samningi er að tryggja sem best fjárveitingar til starfseminnar.
Ennfremur lagður fram samningur sem tekist hefur að gera og tryggir fjárveitingar til ársloka 2013. Samningurinn hefur verið undirritaður með fyrirvara um samþykki hreppsnefndar.
Hreppsnefnd lýsir yfir ánægju með samninginn og samþykkir hann fyrir sitt leyti.
Hér er um að ræða skemmilegt dæmi um gott samstarf ríkis og sveitarfélaga.
8. mál. Ýmis mál og fundargerðir
a) Fundargerð nýrrar samgöngunefndar SSA frá 14. des. sl.
Lögð fram til kynningar.
b) Fundargerð Haust frá 14. des. sl.
Lögð fram til kynningar
c) Fundargerð sambands ísl. Sveitarfélaga frá 16. des. sl.
Lögð fram til kynningar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl.17.00