Fundur bygginganefndar Vopnafjarðarhrepps
10. janúar 2012, haldinn í Miklagarði kl. 12.00
Mætt til fundar: Hrund Snorradóttir, Hilmar Jósefsson, Baldur Kjartansson, Þráinn Hjálmarsson, Jóhann L. Einarsson, og Baldur H. Friðriksson.
Einnig mættur: Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.
Í upphafi fundar leitaði formaður heimildar að taka fyrir sem 4. mál á dagskrá bréf Guðmundar Wiium, dags. 07.01.12, varðandi breytta skráningu á Hvammsgerði. Samþykkt samhljóða.
- mál: Fundargerð skipulags- og bygginganefndar frá 21. desember sl. lögð fram.
Samþykkt samhljóða
2. mál: Vegslóðar við Selá – Breytingar á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps vegna vegslóða að og upp með Selá. Nefndin veiti umsögn um framkvæmdina.
Fram fór umræða um málið en síðan var bókað:
Skipulags- og bygginganefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að gerðar verði breytingar á gildandi aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps vegna vegs frá Ytri-Hlíð að Aðalbólsvaði, meðfram Selá, frá fossi að Ytri-Hrútá, í samræmi við bréf Skipulagsstofnunar, dags 01.12.2011. Jafnframt verði uppdrátturinn uppfærður með áorðnum breytingum.
Nefndin felur sveitarstjóra að tilkynna Skipulagsstofnun ákvörðun nefndarinnar og láta vinna breytinguna samhliða tilkynningu framkvæmdaraðila til mats á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar, sem er í vinnslu.
Samþykkt með 4 atkvæðum, 2 sátu hjá
3. mál: Norðausturvegur – breytt lega og ný tenging við þéttbýlið í Vopnafirði. Vegagerðin æskir heimildar til framkvæmda. Hjálagt bréf Vegagerðar, dags. 21. desmeber 2011, til Vopnafjarðarhrepps, bréf sveitarstjóra, dags. 07.11.11 og Skipulagsstofnunar, dags. 10.10.11. Auk heldur bréf sveitarstjóra, dags. 09.01.2012, til skipulags- og bygginganefndar.
Skipulags- og bygginganefnd hefur fjallað um málið og samþykkir samhljóða að framkvæmdaleyfi verði veitt.
4. mál: Hvammsgerði – Bréf Guðmundar Wiium, f. h. Veiðifélags Selár, dags. 07.01.2011, lagt fram. Óskað er eftir að skráningu hússins verði breytt þannig í stað veiðihúss komi íbúðarhúsið í Hvammsgerði.
Nefndin tók málið fyrir og samþykkti að fresta afgreiðslu þess uns málið hefur verið betur kynnt.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 12:55