Félagsfundur Ferðamálasamtaka Vopnafjarðar 10. janúar ´12

12.01 2012 - Fimmtudagur

Opinn félagsfundur Ferðamálasamtaka Vopnafjarðar

10. janúar 2012, haldinn í Miklagarði kl. 17:00

 

Stjórn Ferðamálasamtaka Vopnafjarðar hélt opinn fund mánudaginn 10. janúarr 2012 í félagsheimilinu Miklagarði og hófst kl. 17:00.

 

Mætt til fundar: B. Fanney Hauksdóttir, Sigríður Bragadóttir, Anna Jörgína Kjartansdóttir, Cathy Josephson, Pétur V. Jónsson, Jósep H. Jósepsson og Magnús Már Þorvaldsson, er tók eftirfarandi saman.

 

 

Dagskrá:

 

1.      mál: Tillaga að fundarstjóra – Tillaga formanns að Sigríður Bragadóttir verði fundarstjóri var samþykkt samhljóða.

 

  1. mál: Tillaga að ritara – Tillaga formanns að Magnús Már Þorvaldsson verði ritari fundarins var samþykkt samhljóða.

 

3.      mál: Formaður og starfsmaður, Fanney og Sigríður – Vikið að styrkjum, 1.5 mkr. styrk úr VAXA og 300 þúsund úr atvinnuþróunarsjóði til kvikmyndagerðar. Sótt ennfremur til Ferðamálastofu kr. 500 þús. vegna gönguleiða innanbæjar, ósvarað.

 

Ráðinn var starfsmaður tímabundið, Sigríður Bragadóttir. Fer hluti VAXA styrks til launa starfsmanns, gerð markaðssetningar, verkefni eins og bæklingagerð Cathyar o. fl.

 

Eitt og annað á döfinni en hjá formanni það mikilvægasta BA-verkefni við Hólaskóla, sem tekur til rannsókna á stöðu ferðamála í Vopnafirði – hver er sérstaða Vopnafjarðar? Náttúra og saga koma í hugann – er það rétt mat og stefnum við öll í sömu átt? Hugmynd að 2ja daga dagskrá í Vopnafirði fyrir ferðamanninn með leiðsögn allan tímann sent ferðaskrifstofum í Reykjavík og þá einkum þeirra er heimsóttu Vopnafjörð í haust.

 

Leitað hefur verið til Hjalta Stefánssonar viðvíkjandi gerð myndefnis. Mun hann byrja á að taka það saman sem til er en síðan mynda hér næsta sumar það sem við teljum að sé markverðast. Gerir myndbönd í mismunandi útfærslum allt eftir hver notkunin er. Sagði Sigríður bréf hafa verið sent sveitarstjóra á sl. hausti varðandi tjaldstæði sveitarfélagsins, sem er lítið, engin viðbrögð enn sem komið er.

 

Kristbjörg frá Impru/Nýsköpunarmiðstöð kemur hingað í janúar ásamt starfsmanni Þróunarfélagsins. Spurt verður um styrki til ferða- og fræðslumála, þjónustunámskeið o. fl.

 

Fuglaskoðunarverkefnið er komið að stað með aðkomu Péturs Valdimars og telur hann fyrsta hús (eða samb.) komi við Straumseyrina – nærri lónunum en þangað koma gjarnan flækingsfuglar. Brýnt að leita þangað sem þekkinguna er að finna, svo sem til Djúpavogs. Ólafur Björgvin vann fuglaverkefni í skólanum og það má/á að nýta sér. Fuglaskoðun ein út af fyrir sig lengir ferðamannatímabilið þar eð skoðunin er einkum bundin við vor og haust. Velt upp þörfinni fyrir hús í þessu samhengi, hvaða aðilar eiga mögulega hús sem henta og kosta ekki mikið, var spurt. Pétur benti á heimasíðuna www.sjonauki.is þar sem sjónauka og ýmislegt annað er að finna.

 

4.      mál: Verkefni yfirfarin – Áhugafólk tók að sér verkefni fyrir veturinn, sbr. fund samtakanna 03. október sl. Þannig tók Hrund að sér að vinna upplýsingakort fyrir þéttbýlið.

 

Skilti við þjóðvegi, vega- og upplýsingaskilti: Magnús Már. Gerði Magnús grein fyrir samskiptum sínum við Halldór skipulagshönnuð og Vegagerðina. Ljóst er að möguleikar okkar eru miklir því Vegagerðin er reiðubúin til að kosta gerð hinna ýmsu skilta en frumkvæðið er og verður alltaf okkar. Vanda þarf til verks og fá sem flesta að vinnunni því betur sjá mýmörg augu en mörg! Stóra upplýsingaskiltið í Vesturárdalnum við millidalaleið er afgerandi skilti og þá ekki síður nýtt upp gatnamót þjóðvegar og Vopnafjarðarheiðar. Laga þarf skiltið í Hofsárdal og þéttbýlinu – hvað þar? Upplýsingaskilti verði uppsett er sýna gönguleiðir (blátt), minjasafn (rautt), örnefni o. fl. Til og með skilti er varðar sögur af huldufólki, álfum og samb. eru styrkhæf en ekki við eyðibýli en Vegagerðin setur þau upp ef vill. Golfvallarskilti er til en í geymslu, af hverju?

 

Fram kom að Árni Sverrir kaupmaður er tilbúinn að greiða fyrir skiltin við gönguleiðirnar – skiltin með upplýsingum um tiltekna gönguleið – og er vel boðið. Anna hefur merkt gönguleiðir og er reiðubúin að halda því áfram. Sagði frá hugmynd sinni um „Sæluvika í sveit“, heilsutengd ferðaþjónusta, er verður betur kynnt síðar en hugmyndin er athyglisverð.

 

Fanney kvaðst hafa rætt við Signý Ormarsdóttur um að Vopnfirðingar stæðu saman að einu stóru verkefni, sem Signý segir horft til með velþóknun. Sér Fanney fyrir sér samvinnu Vesturfarans, Bustarfells, Vina Vopnfirðinga sögu o. fl. = búa til söguslóð í Vopnafirði. Rætt nánar, jafnvel vikuhátíð sem inniber „allt“, menningu, sögu, náttúru og afþreyingu. Sjálfsagt að skoða en útilokar ekki annað, t. a. m. Vopnaskak í einhverri mynd og þaðan að síður Einu sinni á ágústkvöldi.

 

Ekki meira gert og fundi sltið kl. 18.50. Næsti fundur áætlaður mánudaginn 06. febrúar n. k. á sama stað.

 

Svo er rétt að hafa neðangreint í huga og var til bókar fært á fundinum 03. október sl.:

 

Heiðarbýli, merking þeirra framhaldið: Þórunn. Kálffell, Brunahvammur, Fagrakinn o. fl. Fanney nefndi ferð á Langanesið hvar sett hafa verið upp skemmtileg skilti gerð úr plönkum og Jósef myndaði.

 

Bæklingar og texti fyrir skilti: Ágústa og Cathy. Lagði Ágústa fram lista yfir skilti sem hún telur þörf á að sett verði upp – sum varða þéttbýlið og eru þá ábyrgð þeirra sem það hafa með að gera.

 

Listinn: 1) Kaupvangur: Menningar- og fræðasetur, Múlastofa, Vesturfaramiðstöð, Þekkingarnet, upplýsingamiðstöð, Kaupvangskaffi. Framkvæmdaaðili/greiðandi: Vopnafjarðarhreppur. Ábyrgðarþáttur þéttbýlinga. 2) Endurnýja stóru upplýsingaskiltin í þéttbýli, neðan Vatnsdalsgerðis, á vegamótum Háreksstaðaleiðar. Framkv.aðli: Vegagerðin og fellur þá undir ábyrgðarþátt MM. 3) Athuga að ræða við landeigendur um heimild til skiltauppsetningar. 4) Merkja heiðarbýli við þjóðveg (MM). 5) Merkja a. m. k. 4 gönguleiðir og lagði þá til: a) Fuglabjargarnes, b) Þverárgil, c) Skjólfjörur og d) Tangasporður. Ágústa lagði til að verktakavinna verði keypt af Cathy við bæklingagerð og var það samþykkt.

 

Þéttbýli: Fanney, Hrund og Guðrún Anna. Útbúa kort yfir þéttbýlið með upplýsingum fyrir ferðamenn, afþreying, merking gönguleiðar, merking húsa o. fl.

 

Veiði: Jósep Joð og Pétur Joð. Samantekt upplýsinga, skiltagerð o. fl.

 

Fuglaskoðun: Helgi Þorsteins, Þorsteinn Steinsson … Ýmsir staðir til skoðunar, Fuglabjarganes, hólmarnir, o. fl. staðir

 

Barnaafþreying: Anna J. í Vatnsdalsgerði og Guðrún Anna. Barnaafþreying, krakkakort, Sandvíkin o. fl.

 

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir