Fundað vegna Brekkubæjar

16.01 2012 - Mánudagur

Fundað v/Brekkubæjar

-Fundað 13. janúar 2012

 

Föstudaginn 13. janúar 2012 kl. 15:30 komu saman til fundar á skrifstofu sveitarstjóra fulltrúar Vopnafjarðarhrepps/verkkaupa, Þorsteinn sveitarstjóri, Magnús Már og Halldóra S. aðstoðarleikskólastjóri og fulltrúi verktaka leikskólans, Mælifells ehf., Steindór og Ingólfur Sveinssynir.

 

Setti sveitarstjóri fundinn og fór yfir stöðuna, sem  er í stuttu máli með þeim hætti að miðrými eldri byggingar er ólokið og hefur af ýmsum ástæðum verið slegið á frest að vinna. Ekki verður við svo búið öllu lengur, aðstaða barna og starfsmanna er, þrátt fyrir nýbygginguna, ekki ásættanleg. Eins er leikskólinn á undanþágu vegna ræstingar, sem er ólokið og hluti miðrýmisins. Lagði Halldóra áherslu á að aðstæður væru erfiðar því eldhúsið vantar og mjög reyndi á langlundargeð HAUST v/ræstingar.

 

Málin rædd þar sem fram kom að Mælifell er eins og aðrir verktakar í sveitarfélaginu bundið við vinnu veiðihússins í Selárdal og mun brátt þurfa að sinna byggingaverkefni HB Granda. Það verkefni eins og velflest önnur fyrir félagið skal vinnast eins skjótt og kostur er. Þetta setur þá í vanda og lögðu til að þeir fengju tóm til að vinna við leikskólann í sumarfríi hans í júlímánuði.

 

Eftir góða umræðu fékkst niðurstaða sem er ásættanleg fyrir verkkaupa og gerleg fyrir verktakann. Hún er þessi:

 

Um mánaðarmótin janúar-febrúar mun Mælifell ehf. hefja störf við miðrými Brekkubæjar en því áfangaskipt; þannig að í febrúar verði lokið við eldhús, geymslu því tilheyrandi, gang og vinnuherbergi. Í júlí verði það unnið sem útaf stendur; lista-/föndurstofa, salerni og ræsting.

 

Magnús mun eins og áður vinna að málefnum Brekkubæjar í samvinnu við starfsmenn og verktaka, svo sem varðandi þau raftæki sem kaupa þarf; uppþvottavél, vaskar, handlaug, helluborð/eldavél og háfur. Ísskápur hefur þegar verið keyptur og er staðsettur í starfsmannarýminu. Skoða þarf grunnmynd eldhúss nánar áður en til smíðavinnu kemur, m. a. með tilliti til uppþvottavélar og vaska.

 

 

Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið kl. 16:15.

 

Fund sátu: Steindór Sveinsson, Ingólfur Sveinsson, Halldóra S. Árnadóttir, Þorsteinn Steinsson og Magnús Már Þorvaldsson, er tók ofangreint saman.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir