Hreppsnefndarfundur verður haldinn fimmtudaginn 2. febrúar 2012 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.
Á fundinn voru mætt: Þórunn Egilsdóttir, Ásrún Jörgensdóttir, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður E. Konráðsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir og Bárður Jónasson.
Jafnframt var mættur sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 19. jan. sl.
Fundargerð hreppsnefndar frá 19. janúar sl.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
2. mál. Fundargerð skipulagsnefndar frá 30. jan. sl.
Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 30. janúar sl. Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 2. tl. fundargerðarinnar “ Tillaga að breytingu aðal- og deiliskipulags” Gerði hann grein fyrir málinu og skýrði matslýsingar ásamt tillögum að breytingu á aðal- og deiliskipulagi iðnaðar og urðunarsvæðis að Búðaröxl, Vopnafirði.
Lagði hann síðan til að hreppsnefnd samþykkti fyrirliggjandi tillögu skipulags- og byggingarnefndar eins og hún liggur fyrir í fundargerð nefndarinnar frá 30. janúar sl.
Eftir umræður var fyrirliggjandi tillaga skipulagsnefndar samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
Fundargerðin að öðru leyti samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
3. mál. Fundur atvinnumálanefndar frá 30. jan. 2012.
Lögð fram fundargerð atvinnumálanefndar frá 30. janúar sl. Oddviti gerði grein fyrir tillögum nefndarinnar varðandi úthlutunarreglur byggðakvóta 2011/2012, en í fundragerðinni er tillaga nefndarinnar um það hvernig reglurnar skuli vera á yfirstandandi fiskveiðiári. Nefndin leggur til að um þessi mál skuli gilda nánast sömu reglur og giltu á síðasta fiskveiðiári.
Jafnframt var lagður fram rökstuðningur sveitarfélagsins til Sjávarútvegsráðuneytisins með tillögunum.
Ennfremur lagt fram og kynnt samkomulag milli Toppfisks og Vopnafjarðarhrepps um það að koma á fót fiskvinnslu á Vopnafirði, sem oddviti las og útskýrði.
Talsverðar umræður urðu um þessi mál, þar sem fundarmenn lýstu sjónarmiðum sínum og vörpuðu fram fyrirspurnum sem var svarað.
Fundarmenn samþykktu síðan samhljóða með 7 atkvæðum tillögu atvinnumálanefndar og fólu sveitarstjóra að koma henni á framfæri við Sjávarútvegsráðuneytið.
4. mál. Jafnréttisáætlun Vopnafjarðar
Lagt fram tölvubréf frá Jafnréttisstofu dags. 17. janúar sl., þar sem stofan bendir á að endurskoða þurfi nokkra þætti í jafnréttisáætlun sveitarfélagsins.
Jafnframt lögð fram drög að nýrri jafnréttisáætlun, sem unnin verður til samræmis við ofangreindar ábendingar.
Fundarmenn töldu nauðsynlegt að ljúka vinnu við gerð nýrrar áætlunar til samræmis við framkomnar ábendingar.
Hreppsnefnd samþykkti samhljóða að vísa fyrirliggjandi drögum að jafnréttisáætlun til jafnréttisnefndar sveitarfélagsins til endanlegrar úrvinnslu.
5. mál Reykjavíkurflugvöllur og flugfargjöld; ályktun
a) Fyrir fundinum lá svofelld tillaga framkvæmdaráðs Sambands sveitarfélaga á Austurlandi:
„Ennþá einu sinni dynur yfir landsmenn fréttaflutningur þess efnis að skipulagsyfirvöld Reykjavíkurborgar hyggist láta loka norður-suður braut Reykjavíkurflugvallar árið 2016 eða eftir fjögur ár.
Af því tilefni óskar Samband sveitarfélaga á Austurlandi eftir því að stjórnvöld bregðist nú þegar við til að mæta þessum áformum vegna nauðsynlegrar þjónustu og stjórnsýslu á landsbyggðinni.
Minnt er á að flugmálayfirvöld hafa bent á að flugvöllurinn yrði óstarfhæfur með aðeins einni flugbraut. Jafnframt hefur það komið fram, m.a. á málþingi Háskólans í Reykjavík 19. jan. 2012, að eina raunhæfa lausnin á staðsetningu innanlandsflugsins á suðvestur-horninu, að Reykjavíkurflugvelli frátöldum, sé Keflavíkurflugvöllur. Verði miðstöð innanlandsflugsins flutt til Keflavíkur mun ferðatími verða svo langur og ferðakostnaður það mikill að óásættanlegt væri að sækja opinbera þjónustu með sama hætti og nú er gert til Reykjavíkur.
Það er því óhjákvæmilegt að opinber þjónusta og stjórnsýsla utan höfuðborgarsvæðisins verði efld og í sumum tilfellum byggð upp frá grunni á landsbyggðinni. Nægir þar að nefna heilbrigðismál, menntamál og ýmsa aðra þjónustu á vegum hins opinbera.
Ljóst er að gangi framangreind áform eftir, mun Reykjavíkurborg þar með afsala sér hlutverki sínu sem höfuðborg allra landsmanna.
Þar sem fjögur ár eru skammur tími til undirbúnings fyrir slíkar breytingar vill SSA fara fram á að stjórnvöld hefjist nú þegar handa við undirbúning þeirra breytinga á stjórnsýslu og opinberri þjónustu sem lokun flugvallarins krefst“.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps tekur heils hugar undir tillögu SSA og minnir á að höfuðborgin er höfuðborg allra landsmanna og aðgengi að henni verður því ávallt að vera gott fyrir íbúa hinna dreifðu byggða.
b) Boðaðar hækkanir á notendur innanlandsflugvalla.
Í upphafi þessa árs voru boðaðar verulegar hækkanir á notendur innanlandsflugvalla.
Samkvæmt fréttatilkynningu Flugfélags Íslands kemur fram að lendingargjöld á Reykjavíkurflugvelli eiga að hækka um 72 % og farþegagjöld á sama flugvelli hækka um 71 %, auk þess sem flugleiðsögugjald hækkar um 22 %. Samtals munu þessar hækkanir þýða yfir 100 m.kr. kostnaðaraukningu fyrir Flugfélag Íslands á þessu ári.
Ennfremur hafa verið boðaðar frekari hækkanir á næsta ári, sem þýða, ef af verður 150 m.kr. kostnaðarauka fyrir Flugfélagið eins og fram kemur í fréttatilkynningunni. Komi hækkanir þessar til framkvæmda mun það óhjákvæmilega leiða til verulegra hækkana á flugfargjöldum innanlands.
Lögð fram svofelld ályktun:
„ Hreppsnefnd Vopnafjarðar hvetur samgönguyfirvöld til þess að stilla í hóf hækkunum á umræddum lendingar-, farþega- og flugleiðsögugjöldum svo flugfargjöld hækki ekki um of.
Innanlandsflug er einn helsti máttarstólpinn í almenningssamgangnakerfi landsmanna og er grundvöllur þess að unnt sé að ná fram meginmarkmiðum samgönguáætlunar um það að sem flestir landsmenn geti náð til Höfuðborgarinnar á innan við 3 klukkustundum.
Fullt fargjald fram og tilbaka á leiðinni Vopnafjörður-Reykjavík er, nú, 49.500 kr./mann. Ljóst er, af þessu, að erfitt hlýtur að vera fyrir venjulegan launamann að kyngja frekari hækkunum á þessu sviði.“
Eftir umræður samþykkti hreppsnefnd fyrirliggjandi ályktun samhljóða með 7 atkvæðum og fól sveitarstjóra að koma henni á framfæri við samgönguyfirvöld og þingmenn kjördæmisins.
6. mál. RARIK, bréf dags. 20. janúar, varðandi viðhaldsgjald fyrir götulýsingu.
Lagt fram bréf RARIK frá 20. janúar sl., varðandi viðhaldsgjald fyrir götulýsingu í sveitarfélaginu og breytt eignarhald.
Nokkrar umræður urðu um fyrirliggjandi bréf.
Hreppsnefnd samþykkti síðan samhljóða að fela sveitarstjóra og forstöðumanni áhaldahúss að ræða við fulltrúa RARIK um framangreint málefni. Jafnframt var lagt til að samráð yrði haft við Samband ísl. Sveitarfélaga um þetta mál, þar sem þetta verði rætt með heildstæðum hætti milli sveitarfélaga í landinu og RARIK.
7. mál. Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins 10. feb. nk. á Akureyri.
Lögð fram dagskrá fyrir málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins, sem haldið verður 10. feb. nk. á Akureyri.
Oddviti kannaði áhuga fundarmanna á því að mæta á þingið.
Samþykkt var að þeir hreppsnefndarmenn sem hefðu tök á því að fara myndu gera það.
8. mál. Ýmis mál og fundargerðir
a) Bréf Menntamálaráðuneytis móttekið 30. jan. sl., varðandi dagsetningar samræmdra könnunarprófa 4. 7. og 10 bekkjar 2012
Lagt fram til kynningar og vísað til fræðslunefndar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.10