Fundur hreppsnefndar 16. febrúar 2012

18.02 2012 - Laugardagur

Hreppsnefndarfundurhaldinn fimmtudaginn 16. febrúar 2012 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.


Á fundinn voru mætt ÞórunnEgilsdóttir, Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður Konráðsdóttir, FjólaValsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir og Bárður Jónasson.

 

Jafnframt varmættur sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.

Áður en gengiðvar til dagskrár óskaði oddviti eftir því við fundarmenn að nýtt mál yrði tekiðá dagskrá, „ Tillaga vegna ársreikningagerðar 2011“, var það samþykkt samhljóðaog verður tekið fyrir í lok fundar.


Dagskrá:

1. mál. Fundargerðhreppsnefndar frá 2. febrúar sl.

Lögð fram fundargerðhreppsnefndar frá 2. febrúar sl.

Fundargerðin síðansamþykkt samhljóða.

 

2. mál. Fundargerðfræðslunefndar frá 1. feb.  sl.

Lögð fram fundargerðfræðslunefndar frá 1. febrúar sl.

Fundargerðin lögðfram til kynningar.

Nokkrir fundarmennkvöddu sér hljóðs undir 3. tl. fundargerðarinnar „Byrjun skóladaga“ og lýstusjónarmiðum sínum gagnvart breytingu á upphafi skóladags.  Sjónarmiðin voru mismunandi en til skoðunarer að breyta upphafstíma til hugsanlega kl. 9.00 en hann er 8.10 í dag.

 

3. mál. Óopinberskýrsla um rekstur HSA. Austurglugginn 10. feb. 2012.

 

Oddviti gerði greinfyrir úrdrætti úr skýrslu, sem birt var í Austurglugganum 10. feb. sl., þar semfjallað er um rekstur HSA.   Í skýrslunnieru settar fram margvíslegar tillögur að breyttum rekstri heilbrigðismála ásvæði HSA.  

Á Vopnafirði eru hugmyndirum verulega breytt fyrirkomulag á rekstri legudeildar Vopnfirðinga að Sundabúð.   Hugmyndir þessar eru ekki í samræmi viðviðræður, sem hafa verið í gangi milli Vopnafjarðarhrepps ogVelferðarráðuneytisins svo vægt sé til orða tekið

 

Á fundinn var mætti EinarRafn Haraldsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands og fór hann yfirtilurð þessarar skýrslu.

 

Á fundinum var einnigdreift opnu bréfi forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands dags. 14. febrúar sl.,til starfsmanna stofnunarinnar.   Íbréfinu er gerð grein fyrir tilurð umræddrar skýrslu og hvernig hún er hugsuð.

Gerði hann síðannánari grein fyrir málinu og svaraði spurningum sveitarstjórnarmanna.

Jafnframt vitnaðihann í skýrslu sem unnin var af Velferðarráðuneytinu í nóv. sl.

 

Í máli hans kom meðalannars fram að HSA hefði óskað eftir aðstoð Velferðarráðuneytisins við að fáráðgjöf um hvernig hægt væri að verða við sparnaðarkröfum, sem settar voru framí fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2012.  Ráðuneyti velferðarmála fékk til verksins tvo starfsmenn ráðuneytisinsog óháðan ráðgjafa.   Skiluðu þeir síðanafurð sinni, skýrslunni, af sér til Velferðarráðuneytisins 12. des. 2011.

 

Tillögur sem erusettar fram í skýrslunni stangast í veigamiklum atriðum á við þær hugmyndir semunnið hefur verið með í samvinnu Velferðarráðuneytis, HSA ogVopnafjarðarhrepps. 

Birting hennar meðþessum hætti veldur verulegum óróa hjá vistmönnum og starfsmönnumheilbrigðisstofnunarinnar á Vopnafirði.

 

Eftir umræður vékframkvæmdastjóri HSA af fundi og var honum þökkuð koman.

 

Í framhaldi var lögðfram svofelld ályktun:

 

“   Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps frábiður sérvinnubrögð af þessum toga, sem fram kemur í skýrslu HSA og Velferðarráðuneytisfrá 12. des. 2011.   Birting gagna semunnin eru, af faglegum ráðgjöfum Velferðarráðuneytisins að ósk HSA,  með þessum hætti veldur óþarfa óróa og óvissuhjá bæði vistmönnum og starfsfólki viðkomandi stofnana.  Jafnframt er gert lítið úr þeirri samvinnu umúrlausn mála sem unnið hefur verið að, í góðri trú, í samvinnuVelferðarráðuneytis, HSA og Vopnafjarðarhrepps.

Eðlilegra hefði veriðað kynna niðurstöður sérfræðingateymis ráðuneytisins fyrir þátttakendum straxþegar þær lágu fyrir.  Með því móti hefðimátt komast fyrir stóran hluta af þeirri óvissu og óróa sem um málin ríkir viðþessar aðstæður.”

 

Fyrirliggjandi tillagavar síðan samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að kynna hana fyrirVelferðarráðuneyti og HSA.

 

4. mál. ErindiUmhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, varðandi umsagnir um, samgönguáætlun, annarsvegar 2011-2014 og hins vegar 2011-2022.

Lögð fram erindiUmhverfis- og samgöngunefndar Alþingis dags. 3. feb. sl., þar sem óskað ereftir umsögnum sveitarfélagsins annars vegar um samgönguáætlun árana 2011-2014og hins vegar samgönguáætlun 2011-2022.

Ennfremur var fariðyfir helstu framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru í Norðaustursvæði á mismunanditímabilum áætlunarinnar.

Hreppsnefndarmenntöldu eðlilegt að sveitarfélagið sendi frá sér umsögn þar sem undirstrikaðarværu helstu áherslur sem sveitarfélagið vill leggja áherslu á í þessumefnum.  Fram kom að unnið er að umsögn umþessar áætlanir á vegum samgöngunefndar SSA.

 

Hreppsnefnd samþykktiað fela sveitarstjóra að vinna drög að umsögn, sem lögð verði fyriralsherjarnefnd sveitarfélagsins til endanlegrar samþykktar.

Umsögnin þarf að hafaborist Alþingi fyrir 29. feb. nk.


5. mál  Bréf formanns Almannavarnarnefndar frá 8.feb. sl., varðandi búnaðarkaup fyrir nefndina.

Lagt fram bréf sýslumannsinsá Seyðisfirði frá 8. feb. sl., þar sem hann greinir frá því að á fundiAlmannavarnarnefndar 8. febrúar sl., hafi verið ákveðið að óska eftir fjárframlagiaðiladarsveitarfélaganna, vegna búnaðarkaupa í aðgerðarstjórnstöð.   Annars vegar er um að ræða framlag árið 2012og hins vegar framlag á haus frá árinu 2013.

 

FramlagVopnafjarðarhrepps fyrir árið 2012 skv. þessu yrði 200.000 kr.

Hreppsnefnd samþykkirað greiða umbeðið framlag vegna ársins 2012, enda verði slíkt hið sama gert hjáhinum aðildar sveitarfélögunum.

 

Hreppsnefnd telur þóeðlilegra að beiðni þessi hefði legið fyrir áður en sveitarfélögin kláruðufjárhagsáætlanir sínar í des. sl.

Lagt er til að beiðnium framlög næstu ára verði tekin til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlanasveitarfélaganna fyrir viðkomandi ár.

Tillaga þessi varsamþykkt samhljóða.


6. mál. Erindidags 6. feb. sl., frá stýrihóp verkefnisins heilsueflandi grunnskóli, varðandibættar merkingar á gönguleiðum.

 

Lagt fram bréf dags.6. feb. sl., frá stýrihópi verkefnisins heilsueflandi grunnskóli.  Í erindinu er óskað eftir bættum merkingum ágönguleiðum.  

Hreppsnefnd samþykkirað fela starfsmanni skipulags- og bygginganefndar ásamt forstöðumanniáhaldahúss að vinna tillögu um þessi mál sem lögð verði fyrir skipulagsnefnd ogvið það miðað að tillögurnar verði framkvæmdar á vormánuðum.

Málsmeðferð þessi varsamþykkt samhljóða.

 

7. mál. BréfGuðmundar Vilhjálmssonar dags. 3. feb. sl., þar sem kynnt er erindi tilSkipulagsstofnunar.  Jafnframt svarbréfSkipulagsstofnunar frá 9. feb. sl.

Lagt fram bréf GuðmundarVilhjálmssonar dags. 3. feb. sl., þar sem kynnt er erindi hans tilSkipulagsstofnunar, vegna skipulagsmála í Langanesbyggð.

Jafnframt lagt framafrit af svarbréfi Skipulagsstofnunar, þar sem stofnunin gerir grein fyrirsjónarmiðum sínum.

Erindin lögð fram tilkynningar.

 


8. mál. Ýmismál og fundargerðir
a) Fundargerðheilbrigðiseftirlits frá 2. feb. sl.

Lagt fram tilkyningar.

b) Erindi þingmannahreyfingarinnar frá 7. feb. sl.

Lagt fram tilkynningar.

c) Úthlutaðir styrkirfrá Menningarráði til Vopnafjarðar

Lagt fram tilkynningar.



9.Mál  Ársreikningagerð 2011.

 

Sveitarstjóri fór yfirviðskiptastöður á milli A og B hluta sveitarfélagsins, vegna ársins 2011 oglagði til að neðangreind framlög verð færð vegna félagslegra íbúða ogvatnsveitu til samræmis við neðangreinda bókun:

 

 „a) Félagslegaríbúðir
Sveitarstjórn samþykkir að veita Félagslegum íbúðum framlag vegna rekstararhallaársins 2011 og vegna uppgreiðslu á lánum Félagslegra íbúða sem Aðalsjóður lagðiút fyrir í lok árs.
Samtals nemur framlagið 31,0 millj. kr. og færist til tekna hjá Félagslegumíbúðum og til gjalda hjá Aðalsjóði. Framlagið hefur ekki áhrif á samstæðuársreikning sveitarfélagsins.

b) Vatnsveita
Sveitarstjórn samþykkir að veitaframlag til Vatnsveitu vegna rekstararhalla ársins 2011, samtals að fjárhæð 3,0millj. kr.
Fjárhæðin færist til tekna hjá Vatnsveitu og til gjalda hjá Aðalsjóði,framlagið hefur ekki áhrif á samstæðuársreikning sveitarfélagsins.“

Fyrirliggjandi bókun varsamþykkt samhljóða með 7 atkvæðum. 

Fleira ekki gert og fundislitið 17.55





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir