Fundur Menningamálanefndar Vopnafjarðarhrepps
Mættir:
Hreiðar Geirsson, Jósep H. Jósepsson, Sigríður Jóhannesdóttir, Einar Ólafur Einarsson, Magnús Már Þorvaldsson og Elín Dögg Methúsalemsdóttir.
Í upphafi fundar greindi Magnús Már sagði frá því að 6. febrúar síðastliðinn hafi Menningarmálaráð Austurlands úthlutað styrkjum til menningarmála og hafi 650.000 kr. verið úthlutað til þriggja verkefna á vegum Menningarmálanefndar. Verkefnin sem hlutu styrk eru:
o Sagna- og skáldakvöld (Sigfús Halldórsson) 200.000 kr.
o Vopnaskak 250.000 kr.
o Einu sinni á águstkvöldi (listasmiðjur) 200.000 kr.
Menningarmálanefnd Vopnafjarðar sótti einnig um styrk vegna skálda- og sagnakvölds á Einu sinni á ágústkvöldi en var þeirri umsókn hafnað.
Auk þessara styrkja til Menningarmálanefndar Vopnafjarðarhrepps komu einnig tveir aðrir styrki til menningarmála á Vopnafirði, en þeir voru:
o Minjasafnið Bustarfelli 200.000 kr.
o Rokk og rímur ( verkefni í samstarfi Menningarmiðstöðvar Norður Þingeyinga, Kaupvangs fræðaseturs og Sigríðar Dóru Sverrisdóttur) 800.000 kr.
Rætt var um þessar úthlutanir og það að samstarf verði að vera við aðstandendur Rokks og rímna um dagsetningar þess atburðar og atburða á okkar vegum. Magnús Már tók að sér að ræða við Hrund Snorradóttur um málið. Menningarmálanefnd tekur eðlilega fullt tillit til þeirra dagskrár og frumkvæðinu fagnað.
Vakin er athygli að á vegum sveitarfélagsins er starfandi menningarmálanefnd, sem starfar með menningarmálafulltrúa þess, og þessir aðilar sinna málefnum menningar í sveitarfélaginu. Rímur og rokk, sem dæmi, er óháð nefndum aðilum sveitarfélagsins, en varðar ekki málið að öðru leyti.
Upphaflega var áætlað að sagna- og skáldakvöld yrði haldið í júní, Vopnaskak með hápunkt 6. - 8. júlí og Einu sinni á ágústkvöldi vikuna 6. til 12. ágúst. Þar sem útlit er fyrir að Rímur og rokk verði í júní kom upp sú hugmynd að sameina sagna- og skáldakvöld við Vopnaskak og það yrði þá föstudagskvöldið 5.júlí. Er til skoðunar uns annað er ákveðið.
Nokkuð var rætt um fyrirkomulag Vopnaskaks og ákveðið að kanna möguleika á tónleikum fimmtudagskvöldið 4.júlí og tónleikum og dansleik laugardaginn 6.júlí. Einar Ólafur tók að sér að ræða við viðkomandi aðila, þ. e. Hvanndalsbræður og Mugison.
Stefnt verður að markaðsdegi líkt og síðasta ár og tengja safnadag Minjasafnsins á Bustarfelli inn í dagskrá Vopnaskaks líkt og verið hefur undanfarin ár. Auk þessa kom fram sú hugmynd að athuga hvort félagasamtök á staðnum vildu koma að hátíðinni með dagskrá eða uppákomum fyrir börn.
Ákveðið var að athuga hvort hægt væri að fá leiksýningu á staðinn í maí og kanna hvaða sýningar stæðu til boða.
Athugasemd kom fram frá nefndarmanni um að síðustu fundargerðir menningarmálanefndar vanti inn á heimasíðu Vopnafjarðarhrepps og gæta þurfi þess að skila þeim inn til Magnúsar Más. Varamanni ritara, Arnars Ingólfssonar, falið að ræða við hann um málið.
Stefnt er að því að næsti fundur verði haldinn á Bókasafni Vopnafjarðar um mánaðarmót febrúar/mars.
Fundi slitið kl. 13:05
Elín Dögg Methúsalemsdóttir