Skipulags- og byggingafulltrúi Vopnafjarðarhrepps er:
Sigurður Jónsson byggingaverkfræðingur
Verkfræðistofu Austurlands
710 Seyðisfirði
Sími: 472 1771
Fax: 472 1770
Netfang: sigurdur@verkaust.is
Á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps er skrifstofa byggingafulltrúa.
Starfsmaður: Magnús Már Þorvaldsson
Sími 473 1300
Netfang: magnus@vopnafjardarhreppur.is
Byggingarleyfi
Sækja þarf um byggingarleyfi til að byggja nýtt hús, endurbyggja hús, rífa hús, byggja við hús eða breyta húsi. Einnig þarf að bera undir starfsmann leyfi fyrir sólpalla, girðingar, heita potta, garðhýsi og skúra.
Umsóknir má senda á netfang byggingarfulltrúa eða afhenda á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps þar sem einnig má nálgast eyðublöð.
Lög og reglugerðir má nálgast á vef Skipulagsstofnunar.
Umsóknarferlið
1. Umsækjandi sendir inn umsókn.
2. Byggingarfulltrúi tekur umsóknir til meðferðar/afgreiðslu tvisvar í mánuði.
3. Málið fer fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd sem fundar einu sinni í mánuði.
4. Svarbréf sent til umsækjanda.
Ábendingum og kvörtunum má koma til byggingafulltrúa og starfsmanns embættisins.
Við úttektir vegna húsbygginga ber að hafa eftirfarandi í huga:
• Úttektir á sökklum, lögnum í grunn, þ.m.t. rör fyrir rafmagnsheimtaugar áður en hulið er yfir.
• Grunni áður er plata er steypt, járnalögnum í plötur, veggi og bita.
• Grindum, bitum og þaki áður er einangrað er og lokað.
• Frágangi á klæðningu þaka, ystu klæðningu veggja - bæði úr timbri og öðrum efnum.
• Neyslu-, hitavatns-, hita og kælikerfum ásamt einangrun þeirra
• Frárennslis-, regnvatns- og þerrilögnum.
• Tækjum og búnaði vegna loftræsti og lofthitunarkerfa.
• Úttektir á verkþáttum vegna eldvarna.
• Þáttum er varðar aðgengi m.t.t. fatlaðra.
• Fokheldisúttekt. Byggingarstjóra ber að tilkynna byggingarfulltrúa þegar bygging er fokheld. Allir uppdrættir skulu hafa borist byggingarfulltrúa fyrir útgáfu fokheldivottorðs ásamt brunatryggingu hússins. Farið er yfir úttektaferil áður en fokheldisvottorð er gefið út.
• Lokaúttekt. Fyrir útgáfu lokaúttektar skulu meistarar vera búnir að gefa út yfirlýsingu um að byggt hafi verið eftir samþykktum teikningum, stöðlum og reglugerðum.
Byggingarstjóra er skylt að vera við allar úttektir.