Vopnafjarðarhöfn
690 Vopnafjörður
Hafnarvörður
Björgvin Hreinsson
Sími: 473 1299/ 898 5298
Netfang: hofn(hjá)vopnafjardarhreppur.is
Framkvæmdastjóri
Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri
Sími: 473 1300
Netfang: steini(hjá)vopnafjardarhreppur.is

Vopnafjarðarhöfn veitir alla almenna þjónustu en mikil uppbygging hefur átt sér stað undanfarin ár. Hæst ber bygging brimvarnargarðs milli Miðhólma og Skipshólma en framkvæmdin hefur gjörbreytt aðstæðum innan hafnar.
Ný bryggja var reist framan við fiskiðju HB Granda og seinni hluta ársins 2005 var hafist handa við að stækka viðlegurými hafnarinnar um liðlega 100 metra. Samfara framkvæmdunum var höfnin dýpkuð og er 8 metra djúp við hafnarkantinn.
Á athafnasvæði HB Granda hefur á liðnum misserum átt sér stað mikil uppbygging þar sem m. a. hefur verið reist ný fiskimjölverksmiðja, ketilhús og tíu mjölsílóum fyrirkomið - ekkert er sem fyrr og hafnarsvæðið nær óþekkjanlegt frá því sem var fyrir uppbygginguna.
