• Haust 2011 borði 1

  • Haust 2011 borði 2

  • Haust 2011 borði 3

  • Haust 2011 borði 4

03.02 2012 | 10:19

Þorrablótið

Þorrablótið var skemmtilegt eins og endra nær. 8. bekkingar þjónuðu til borðs, 9. bekkingar sáu um skopteikningar og 10. bekkingar um skemmtiatriði. Að ógleymdu framlagi nokkurra foreldra nemenda í 9. bekk sem lögðu fram mikla vinnu við að útbúa matinn og allt sem því fylgdi; bestu þakkir fyrir það. Engum var hlíft sem kennir 10. bekk og var mikið hlegið. Miðað við það sýnishorn sem við urðum vitni að má ætla að nemendur sjái sem mest um að tileinka sér námið en framlag kennara sé frekar ómerkilegt...

01.02 2012 | 13:09

Lífshlaupið á fullri ferð

Nemendur og starfsfólk skólans  er á fullum krafti  í Lífshlaupinu eins og undanfarin ár en skólinn varð í 3. sæti meðal  70-149 nemenda skólaárin 2009 og 2011. Þátttakendum meðal starfsfólks hefur verið skipt í tvö lið og er mikil keppni þegar hafin milli þessara liða og má segja að fólk sé mikið á ferðinni seinnipart dags.

 






Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir