Foreldrar


Á aðalfundi foreldrafélagsin 31. október voru eftirtaldir kosnir í stjórn félagsins.

Stjórn foreldrafélagsins  skólaárið  2011-2012

 

Stefán Már Gunnlaugsson, formaður    

Hrafnhildur Ævarsdóttir

Katla Rán Svavarsdóttir, gjaldkeri

Sandra Konráðsdóttir

 

 


Bekkjafulltrúi

Í hverjum umsjónarhóp/bekk eru kosnir 2 tveir bekkjafulltrúar á foreldrafundi sem haldin er að vori. Starfandi bekkjafulltrúi ber ábyrgð á kosningu eftirmanns síns og að miðla upplýsingum til nýrra bekkjarfulltrúa og afhenda bekkjarmöppu oþh.

Hlutverk bekkjafulltrúa er að ...

·         efla og styrkja samstarf foreldra/forráðamanna,kennara og nemanda innan hvers bekkjar

·         vera tengiliður foreldra og umsjónakennara ef þau vilja koma sérstökum málum á framfæri við stjórn foreldrafélagsins, skólaráð eða skólann og miðlar upplýsingum í báðar áttir.

·         aðstoðar kennara við að skipuleggja þátttöku foreldra í skólastarfinu,  t.d. þegar þarf aðstoð við framkvæmd einstakra stærri viðburða, s.s. jólaföndur, bekkjarskemmtanir, vettvangsferðir, heimsóknir foreldra í bekkinn oþh.

·         kalla saman foreldra barnanna í samráði við umsjónarkennara eigi sjaldnar en tvisvar á ári. Fyrst fundur skal fara fram fyrir 1. október ár hvert. Þá e rætt við foreldra um markmið og framkvæmd bekkjarstarfs á komandi vetri. Einnig er farið yfir á þeim fundi foreldrasáttmálann Heimilis og skóla.

·         hlustar eftir sjónarmiðum nemenda varðandi bekkjarstarf og bekkjaranda. Gott er t.d. að nemendur í eldri bekkjum taki þátt í einum foreldrafundi á hverju ári þar sem málin eru rædd.

·         koma í skólann kynna sig fyrir umsjónarhóp/bekk.

 

Bekkjarfulltrúi ber að virða trúnað um persónulega hagi nemenda og foreldra.

  

Bekkjarfulltrúi er ekki sá sem gerir allt heldur sá sem miðlar verkum og fylgir því eftir sem ákveðið hefur verið.  Í þessu samhengi er mikilvægt að temja sér að allir taka þátt – allir gera eitthvað eitt yfir veturinn.

 

Foreldrafélag Vopnafjarðarskóla, 2011




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir