03.02 2012 - Föstudagur
Þorrablótið var skemmtilegt eins og endra nær. 8. bekkingar þjónuðu til borðs, 9. bekkingar sáu um skopteikningar og 10. bekkingar um skemmtiatriði. Að ógleymdu framlagi nokkurra foreldra nemenda í 9. bekk sem lögðu fram mikla vinnu við að útbúa matinn og allt sem því fylgdi; bestu þakkir fyrir það. Engum var hlíft sem kennir 10. bekk og var mikið hlegið. Miðað við það sýnishorn sem við urðum vitni að má ætla að nemendur sjái sem mest um að tileinka sér námið en framlag kennara sé frekar ómerkilegt...
03.02 2012 - Föstudagur
Nemendur og starfsfólk skólans er á fullum krafti í Lífshlaupinu eins og undanfarin ár en skólinn varð í 3. sæti meðal 70-149 nemenda skólaárin 2009 og 2011. Þátttakendum meðal starfsfólks hefur verið skipt í tvö lið og er mikil keppni þegar hafin milli þessara liða og má segja að fólk sé mikið á ferðinni seinnipart dags.
01.02 2012 - Miðvikudagur
Þorrablót skólans er fimmtudaginn 2. febrúar og hefst kl. 19.30. Þorrablótið er fyrir nemendur í 6. - 10. bekk og starfsfólk skólans. Nemendur úr 10. bekk sjá um skemmtiatriðin sem aðallega byggjast á að gera grín að kennurum þeirra og að sjálfsögðu er annáll og fjöldasöngur. Níundu bekkingar sjá um skopteikningar um atburði úr skólalífinu og 8. bekkingar þjóna til borðs. Aðgangseyrir er 2000 kr. Nemendur í sveitinni eru keyrðir að heiman og heim.
26.01 2012 - Fimmtudagur
Þriðjudaginn 31. janúar er foreldradagur í skólanum. Markmiðið með þessum degi er að treysta starfið í skólasamfélaginu.. Foreldradagurinn er ekki skóladagur en nemendur koma með foreldrum sínum til viðtals við umsjónarkennara. Auk viðtalstímans er gagnlegt að ræða við stjórnendur, aðra kennara og starfsfólk.. Foreldrar eru hvattir til að nýta þetta vel til að stuðla að betri árangri og líðan nemandans í skólanum. Boðið er upp á léttan hádegisverð, kl. 12:00, sem verður skráður á barnið þeirra.
25.01 2012 - Miðvikudagur
Heimildarmaður heimsótti tápmikla krakka skólans á degi íþrótta og tók meðfylgjandi myndir.
24.01 2012 - Þriðjudagur
Íþróttadagur skólans er á morgun og því mikilvægt að allir nemendur komi í eða með íþróttaföt. Á íþróttadeginum keppa nemendur í skólahreysti og ýmsum óhefðbundnum íþróttagreinum. Markmiðið með íþróttadeginum er að nemendur eigi skemmtilegan dag í íþróttahúsinu.
20.01 2012 - Föstudagur
Námsmatsviku lýkur í dag og skólastarf verður því samkvæmt stundaskrá frá og með mánudeginum. Íþróttadagur skólans er á miðvikudaginn og foreldradagurinn 31. janúar.
13.01 2012 - Föstudagur
Í næstu viku verður lokið við að meta námið á haustönninni. Mismunandi er hvernig matið fer fram og hversu mikið prófin sem nemendur taka núna koma til með að gilda í einkunn haustannar. Allir nema yngstu bekkir eru styttra í skólanum þessa daga.
1.-6. bekkur eru alla daga frá 8.10 til kl. 13.10.
7.-8. bekkur eru frá kl. 8.50 til kl. 13.10.
9.-10. bekkur eru frá kl. 8.50 og eru til 12 á mánudaginn; aðra daga eru þau aðeins í prófum. Geta farið heim eftir að prófum lýkur.
05.01 2012 - Fimmtudagur
Námsmatsvika verður dagana 16.-20. janúar. Skipulag vikunnar verður kynnt í næstu viku.
04.01 2012 - Miðvikudagur
Hreppsnefnd hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat á nýju ári. Hver máltíð kostar 375 kr. en kostaði 361 kr. Hækkun á mánuði, miðað við 20 máltíðir, er 289 kr., eða úr 7.220 kr. í 7509 kr.
03.01 2012 - Þriðjudagur
Skólinn óskar nemendum og starfsfólki gleðilegs nýs árs. Skóli hefst 4. janúar kl. 9.
19.12 2011 - Mánudagur
Vopnafjararðarskóli óskar öllum íbúum Vopnafjarðar gleðilegra jóla.