Foreldradagur á morgun 24. nóvember

19.11 2009 - Fimmtudagur

Á morgun er hinn árlegi foreldradagur sem við köllum svo. Nemendur og foreldrar koma þá á ákveðnum tíma til viðtals við umsjónarkennara. Farið er yfir skólastarfið og líðan og gengi nemenda, rætt um sjálfsmat nemenda og foreldra ynntir eftir þeirra upplifun á náminu og kennslunni. Eftir viðtalið eru foreldrar beðnir um að svara könnun í tölvustofunni þar sem spurt er nokkurra lykilspurninga um skólastarfið en könnunin er hluti af sjálfsmati skólans. Þá eru foreldrar beðnir að nýta heimsóknina til að ræða við aðra starfsmenn skólans, fá sér kaffisopa og jafnvel súpu í hádeginu.




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir