Nokkur tilfelli svokallaðrar svínainflúensu hafa greinst síðustu daga og má búast við að þeim fjölgi á næstunni. Á vefnum www.influensa.is má finna fróðleik um veikina og einnig leiðbeiningar um smitgát og sóttvarnir. Foreldrar eru hvattir til að tilkynna veikindi til heilsugæslunnar til að hægt sé að fylgjast með fjölda smitaðra. Brýnt er að börnin séu höfð heima í tvo daga hitalaus eftir veikindi. Æskilegt er að draga úr smithættu með því að takmarka heimsóknir á heimilin á meðan á veikindum stendur.
Skólaheilsugæslan