Öskudagurinn heppnaðist vel að vanda og ekki skorti nammið í pokana hjá krökkunum. Þegar allir voru mættir í íþróttahúsið sagði hver og einn frá hvað hann/hún væru eða hvað búningurinn táknaði. Frekar erfiðlega gekk að slá köttinn úr tunnunni hjá þeim yngri en það tókst á endanum og tunnukóngar voru þau Enok Örn Pálsson og Edda Björk Vatnsdal. Seinni partinn var svo ball hjá 1.-5. bekk í Drekanum.