Á morgun er bolludagur og þá mega nemendur koma með bollur í nesti. Á sprengidaginn er boðið upp á saltkjöt í hádegismatinn. Öskudagurinn kemur svo vonandi bjartur og fagur þó að ekki spái nógu vel. Á öskudaginn koma krakkarnir í búningum kl. 8:10, eru í skólanum fyrstu tímana en fara síðan í göngutúr um bæinn, heimsækja fyrirtæki og fá eitthvað góðgæti fyrir að syngja nokkur lög fyrir starfsfólk. Um kl. 11 koma allir saman í íþróttahúsinu til að slá köttinn úr tunninni og leika sér fram að hádegi og eftir matinn er hefðbundin kennsla.