Síðustu vikur maímánaðar

14.05 2010 - Föstudagur

 
Rúmar tvær vikur eru nú eftir af skólastarfinu. Námsmatsdagar eru 17.-21. maí þar sem bæði fer fram námsmat og kennsla og fá nemendur stundaskrá yfir þess daga. Skólinn byrjar kl. 9:00 og lýkur á mismunandi tímum eftir aldri nemenda. 9. og 10. bekkur eru til kl. 11, 6.7.8. bekkir eru til kl.12:00 og yngstu nemendurnir til kl. 13:00. Í vikunni eftir hvítasunnu, 25.-28. maí, hefst skólinn áfram kl. 9:00 og stendur misjafnlega lengi eftir hvað er að gerast hjá krökkunum en þessi vika fer í tiltekt, vettvangsferðir og fuglaskoðun. Gert er ráð fyrir að krakkarnir borði ef þau óska þess eða þau eru í skólanum á matartíma. Heimkeyrsla í sveitina er kl. 13:10 og eftir skipulagi íþróttaæfinga. Yngstu nemendurnir geta verið í gæslu frá kl. 8:00-9:00 og til kl. 15:00.




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir