Gleðilegt sumarfrí

15.06 2010 - Þriðjudagur

Nemendur í 10. bekk luku sínu grunnskólanámi á skólaslitum 31. maí með hátíðlegri athöfn. Að liðnu sumri  hefja þau nám í framhaldsskóla og flest fara þau til Akureyrar líkt og undanfarin ár.

 

Á skólaslitum voru veittar viðurkenningar eins verið hefur undanfarin ár. Bjartur Aðalbjörnsson hlaut viðurkenningu fyrir bestan heildar námsárangur og bestan árangur í íslensku. Lára Sif Sigurjónsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir besta árangur í dönsku og færni í textílmennt, Kristófer Einarsson fékk viðurkenningu fyrir færni í  smíðum og Ellen Sif Skúladóttir fyrir heimilisfræði. Þá fengu 6. bekkingar viðurkenningar fyrir verklegar greinar.  Victoria Rachel Zamora fyrir heimilisfræði, Hólmfríður Linda Víðisdóttir fyrir smíðar og Edda Björk Vatnsdal fyrir textílmennt.




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir