Haustferðir

31.08 2010 - Þriðjudagur

Á fimmtudaginn verða hinar árlegu haustferðir skólans. Þá fara bekkir eða hópar saman í gönguferðir innansveitar og helst gengið á fjöll, fell eða hæðir miserfiðar eftir aldri.

1. bekkur fer seinna í haustferð en annars ganga 2.-3. bekkur á Deildarfell, 4.-5. bekkur á Sjónvarpshæð, 6.-7. bekkur á Torfastaðanúp, 8.-9. bekkur á Vindfellsfjall og 10 .bekkur á Krossavíkurfjall. Mikilvægt er að krakkarnir séu í léttum klæðnaði og í íþrótta- eða gönguskóm. Þá þurfa þeir að hafa léttan bakpoka og gott nesti með brauði og drykkjum. Þá getur verið ágætt fyrir þá sem eru að ganga á hærri fjöll að hafa með sér rúsínur.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir