
Á morgun miðvikudag hefst verkefnið Göngum í skólann sem var fyrst haldið á síðasta skólaári.
Verkefnið er á vegum Lýðheilsustöðvar og er hvatning til nemenda grunnskóla á landinu öllu. Mjög góð þátttaka var hjá okkur á síðasta ári og hvetjum við foreldra til að hvetja krakkana til að ganga eða hjóla í skólann. Foreldrar 1. bekkinga ættu þá að sína krökkunum einföldustu leiðina í skólann og eins gætu foreldrar þessara krakka keyrt þá áleiðis til að byrja með.