Þá erum við með fyrstu skólum til að fella saman tómstundaiðkun og skólastarf þannig að yngstu nemendur fari í tómstundir og tónlistartíma fyrir kl. 15. Nokkrar umræður hvafa verið um hvort taka eigi gjald fyrir gæsluna en ekki hefur verið tekin ákvörðun um það. Í mörg ár höfum við ekki haft gæslu nema til kl. 14 á mánudögum vegna starfsmannafunda og verður svo áfram. Þá geta komið upp aðstæður þar sem fræðslufundi er ekki hægt að hafa á þessum tíma einkanlega þegar fólk er að koma að og verður við því að stytta eða fella niður gæslu í þeim tilfellum. Á þessu skólaári höfum við tvisvar breytt gæslutíma og getur það vissulega komið sér illa fyrir foreldra. Fyrirsjáanlegt er, að öllu óbreyttu, að þriðjudaginn 5. október verðum við að breyta til og verður það tilkynnt nákvæmar þegar nær dregur.