Samræmd könnunarpróf eru í næstu viku hjá 4., 7. og 10. bekk. Prófdagana er ekki annar skóli hjá þessum nemendum. Prófin hefjast öll kl 9 og standa til kl. 12. Mikilvægt er að nemendur mæti tímanlega, þá geta þeir fengið sér hádegismat og farið heim á eftir.
10. bekkur er í prófum mánudag, þriðjudag og miðvikudag, í íslensku, ensku og stærðfræði, í sömu röð.
4. og 7. bekkur er í prófum á fimmtudag og föstudag, í íslensku og stærðfræði, í sömu röð.