Boðið verður upp á kakó og mega nemendur koma með smákökur í nesti. Skóla lýkur kl. 13:10, heimakstur strax á eftir en gæsla með óbreyttu sniði.
Fimmtudaginn 16. des.. er haldið áfram í föndri og kortagerð og nemendur æfa skemmtiatriði fyrir Litlu jólin. Í hádeginu verður ,,jólamáltíð“ þar sem starfsfólk þjónar til borðs og spiluð verða jólalög. Engin gæsla er þennan dag, skóli er til 13:10 og heimakstur strax á eftir.