Þorrablót skólans

03.02 2011 - Fimmtudagur

Fyrsta Þorrablóts Vopnafjarðarskóla var haldið skólaárið 1983-1984 en sá sem kom þessu af stað var Elvar Höjgaard sem kenndi við skólann þetta ár og starfaði með nemendaráði en hann lést fyrir aldur fram. Þetta er því 28. þorrablót skólans. Fyrstu þorrablótin voru haldin í skólanum á Torfastöðum, síðan voru þau haldin í Miklagarði og frá 2001  hafa þau verið í sal skólans. 
Á  þorrblótunum  hefur 10. bekkur séð um skemmtiatriði. 9. bekkur sér  um að teikna eða hanna skopmyndir og myndbönd með textum þar sem bæði nemendur og starfsfólk koma við sögu. 8. bekkur þjónar til borðs og foreldrar 9. bekkinga sjá um matseldina nema matráður skólans sýður hangikjötið. Eru þeim færðar bestu þakkir fyrir hjálpina. Á skemmtidagskránni í kvöld eru leikþættir þar sem nemendur leika  kennara og annað starfsfólk skólans, þá verður fjöldasöngur og lesinn er annáll sem kallað er  heyrst hefur.
 




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir