Skipaður hefur verið stýrihópur sem stjórnar verkefninu : Sigríður Elva Konráðsdóttir, Svava Birna Stefánsdóttir, Bjarney Guðrún Jónsdóttir, Hrafnhildur Ævarsdóttir, Debóra Dögg Jóhannsdóttir.
Til hvers þarf heilsueflingu í skólann okkar?
Heilsufar og menntun er nátengd fyrirbæri. Heilsa nemenda ræður miklu um hvort þeir komast yfirhöfuð í skólann og hvernig þeim gengur í náminu.
Skólinn er þess vegna kjörinn vettvangur til að hvetja til heilsueflingar og heilbrigðra lifnaðarhátta meðal barna á skólaaldri. Nær öll börn og unglingar á aldrinum 4 – 16 ára verja verulegum hluta tíma síns í skólanum. Á þessu skeiði ævinnar læra þau um holla lífshætti, öðlast margvíslega þekkingu og temja sér hátterni sem hefur áhrif á heilsu þeirra síðar á ævinni. Almennt má segja að sjónir manna beinist æ meira að skólunum því það eru menntastofnanir þar sem heilsuefling getur skipt verulegu máli. Skólinn þarf að setja sér stefnu í heilsueflingarmálum þannig að kennarar, foreldrar, nemendur og aðrir sem taka þátt í skólastarfinu hafi í höndum traustar leiðbeiningar og geti gripið til aðgerða í þeim málum.