Olweusardagurinn

22.02 2011 - Þriðjudagur

Í dag er Olweusardagurinn þar sem unnið er eingöngu gegn einelti; að einelti á aldrei að liðast. Nemendur í elstu bekkjum hafa unnið áhrifarík myndbönd gegn einelti sem sýnd eru á sal. Þá vinna allir nemendur í hópum, plakat, sem farið verður með á helstu vinnustaði eða stofnanir.

Við plakatið er hengt umslag með miðum sem fólk dregur en á þessum miðum er minnt á ýmislegt mikilvægt í sambandi við baráttuna gegn einelti. Farið verður í kröfugöngu um bæinn með kröfuspjöldum gegn einelti og síðan verður plakötunum komið fyrir í fyrirtækjunum. Einelti á aldrei að líðast.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir