Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar fór fram hjá okkur í dag. Keppnin er fyrir nemendur í 7. bekk og er undankeppnin haldin til að velja nemendur í aðalkeppnina sem fram fer eftir hálfan mánuð. Krakkarnir okkar stóðu sig öll vel og erfitt að var að velja bestu lesarana. Dómnefnd var skipuð Hafþóri, Siggu Dóru og Stefáni Má og komust þau að þeirri niðurstöðu að sigurvegarar væru Edda Björk Vatnsdal og Sigurrós Halldórsdóttir og til vara Albert Jóhannsson og Gabríela Sól Magnúsdóttir